Kristilegt skólablað - 01.09.1975, Qupperneq 23
áfram að bera út börn sín. Óhætt er að fullyrða að
allt það sem gott er og gagnlegt í menningu þeirra
þjóða sem kristniboð er rekið á meðal, breytist
ekki, en aðeins það sem í raun og veru er fólkinu
til ógagns.“
Hvað segja Eþíoparnir um þetta. A að láta þá
vera í friði?“
Gulli: „Eþíópíumenn hafa yfirleitt tekið kristni-
boðsstarfinu á mjög jákvæðan hátt og viðurkenna
að kristinni trú fylgir gott eitt.“
Gulli og Vallý: „Þegar við vorum orðin 7 ára
þurftum við að fara í skóla í Eþíópíu, fórum í
norskan skóla, sem kristniboðið rekur. Hann er í
Addis Abeba, höfuðborg Eþíópíu sem er um 600
km. frá Konsó. Þetta er heimavistarskóli og í
honum eru börn norsku kristniboðanna. Fjöldi
nemenda var milli 70—80, þegar við vorum þar,
og af þeim bjuggu um 50 á heimavistinni. Skólinn
starfaði frá lok ágúst til lok desember og frá
byrjun janúar til júní loka. Páskafrí var ein vika í
Mynd: Kirkjan [ Kcnso.
Eru heiðingjarnir ánægðir með lífið?
Gulli: „Nei, ég held að heiðingjarnir séu ekki
ánægðir með lífið. Þcir lifa í stöðugum ótta við illa
anda og hin illu öfl. Margir þora t.d. ekki að koma
á sjúkraskýlið þótt þeir séu mjög veikir, í ótta við
að Satan muni hefna sín á þeim og láta einhverja
ógæfu koma yfir þá.“
Er mikill munur á þeim sem eru kristnir og
þeim sem eru heiðnir?
Vallý: ,Já, það er mikill munur á þeim. Aðal-
munurinn er sá að hinir kristnu eru lausir við
óttann á Satan. En breyting ytra kemur fram í því
að þeir læra að þrífa sig og klæða sig betur en
aðrir.“
Hvernig var með skólagöngu ykkar úti í
Eþíopíu?
apríl. Skólatíminn var frá kl. 7.45 — 1.15 mánu-
daga til laugardaga, en yngstu bekkirnir voru
eitthvað styttri. Mikil áherzla var lögð á kristin-
fræði og hún var kennd í öllum bekkjum alveg frá
1.—10. bekk. Þar sem nemendafjöldi í sumum
bekkjum var ekki fleiri en 5 —10 nemendur, og
kennslustofur ekki nógu margar, voru oft 2 og 2
bekkir saman í einni kennslustofu. Vissan tíma
dagsins var skylda að læra, en annars voru íþróttir
og annað þ.u.l. rnikið stundað.“
Hvernig var að vera sem íslenskur krakki í
þessum skóla? Var ekki erfitt að vera útlendingur
og fjarri foreldrum?
Gulli: „Við fundum ekkert fyrir þó að við værum
íslendingar í skólanum. Okkur fannst við vera
norðmenn eins og þau, en það var erfitt að vera
23