Kristilegt skólablað - 01.09.1975, Qupperneq 24
fjarri foreldrum svona lengi í einu og sjá þau ekki
nema mjög sjaldan á meðan við vorum í skólan-
um.“
Var málið ykkur hindrun?
Vallý: „Nei, við lærðum málið mjög fljótt.“
Nú hafið þið eignast norska og eþíópska vini
úti. Var erfitt að skilja við þá, saknið þið þeirra?
Vallý og Gulli: ,Já, það var mjög erfitt að skilja
við alla vinina. Af því að við bjuggum á heimavist
fannst okkur að við værum systkini. Þetta voru
líka mikið af sömu krökkunum öll árin og þess
vegna þekktum við þau mjög vel. Þess betur sem
við þekkjum fólk, þess erfiðara er að skilja við það.
Sama gildir um eþíópísku vinina og við söknum
þeirra mikið.
Þið komuð heim 1972 og fóruð þá í gagnfræða-
skóla. Var það ekki undarlegt og erfitt eftir öll
þessi ár?
Vallý: ,JÚ það var bæði undarlegt og erfitt að
byrja í skóla hér. Eftir að hafa verið 10 ár í
Eþíópíu og þar af 7 og 8 ár í norskum skóla,
kunnum við mjög lítið í íslensku, og má segja að
það hafi verið aðal vandamálið í skólanum. Mér
fannst líka skrítið að vera allt í einu ein kristin í
bekknum.“
Gulli: „Það var líka skrítið að heyra bara íslensku
talaða í kring um sig eftir að hafa heyrt næstum
aðeins norsku og eþíópsku öll þessi ár.“
Hvers vegna eruð þið í K.S.S.?
Vallý: „Eg er í K.S.S. vegna þess að þar fæ ég að
heyra um Jesúm Krist og fræðast í Guðs orði, og
þar er ég meðal kristinna unglinga.“
Gulli: „Ætli ég sé ekki í K.S.S. af sömu ástæðu og
Vallý. Þar fæ ég að heyra Guðs orð boðað og ég
24
varðveiti það í hjarta mínu. K.S.S. er eitt af
gróðurhúsum Jesú. Þar fæ ég að fræðast í Hans
orði og vaxa í trúnni á Hann. Hann sem gefur
eilífa lífið. Ég veit að svo lengi sem ég fæ að
nærast á hinu lifandi vatni mun ég aldrei fölna,
heldur eiga eilíft líf með Honum. Einnig er K.S.S.
mér mikilvægt, vegna þess að þar á ég trúaða
vini, sem hjálpa mér að standa stöðugt í trúnni á
Jesú, frelsara heimsins.“
Eitthvað að lokum?
Vallý: „Eftir að hafa verið í Eþíópíu í 10 ár og séð
neyð heiðingjanna, sé ég hvað við sem höfum
tekið á móti Jesú sem okkar frelsara eigum gott.
Við þurfum ekki að vera hrædd við Satan, því við
þekkjum þann, sem er sterkari, Jesú Krist. Til
H ans getum við komið með okkar erfiðleika og
Hann hjálpar okkur. Hann heyrir allar okkar
bænir og svarar þeim eins og það er best fyrir
okkur. Jesús vill að allir komi til sín, heiðingjarnir
og líka sá sem ekki hefur komið til Hans, því að
það stendur í Matt. 11.28. „Komið til mín, allir
þér sem erfiðið og þunga eru hlaðnir og ég mun
veita yður hvíld.“ Hann einn getur gefið full-
komna hvíld og gleði.“