Kristilegt skólablað - 01.09.1975, Blaðsíða 26
Þekkir þú sjálfan þig? Hefur
þú nokkurn tíman litið innundir
hversdagsleikan inn í hjarta þitt?
Erum við hrædd við að sjá hið
sanna sem býr í hjarta okkar? Á
þessi líking e.t.v. við okkur?
„Þér líkist kölkuðum gröfum,
sem að utan líta fagurlega út, en
eru að innan fullar af dauðra
manna beinum og hvers konar
óhreinindum“. Við getum litið
vel út að utan, en hugsanir okkar,
þær eru óhreinar. Verum trú
sjálfum okkur og lítum á hlutina
eins og þeir eru. Guð gefi að við
mættum leita sannleikans og
finna hann.
Það er oft þannig að við erum
orðin vön syndinni og myrkrinu
sem við lifum í. Við þekkjum
ekkert annað! En ef við þekktum
ljósið, þá fengjum við glígju í
augun og værum lengi að venj-
ast því. Eftir það væri myrkrið
okkur kvöl. En hvað er þetta ljós
sem ég er að tala um? Það er
Guð. í II. Tím. er talað um þetta:
,,Hann sem einn hefur ódauð-
leika sem býr í ljósi er engin fær
til komist, sem enginn maður leit
né litið getur — honum sé heiður
og eilífur máttur. Amen“.
Eigum við þá að þurfa að lifa í
þessu myrkri dauðans alla tíð?
Nei, við eigum að losna úr því og
fá að lifa í ljósinu. En nú stendur
í versinu að „enginn maður leit
né litið getur“. Það er satt, hvaða
maður hefur nokkurn tíma séð
Guð? Það getur engin hversu
mikið sem hann reynir. En hver
er þessi ,,hann“ sem býr í Ijósinu?
Það er Jesús Kristur, en um hann
segir í Jóh. 1:18 „Engin hefur
26
nokkurn tíma séð Guð; sonurinn
eingetni, sem hallast að brjósti
föðursins, hann hefur veitt oss
þekkingu á honum“. Og það er
Jesús einn sem getur leyst okkur
úr þessu myrkri dauðans og veitt
okkur frið við Guð.
En hvernig getur hann það?
,Jesús, Drottinn vor, sem vegna
misgjörða vorra var framseldur
og vegna réttlætingar vorrar upp
séu þakkir sem gefur oss sigurinn
fyrir Drottinn vorn Jesúm
Krist!“Jesús hefur sigrað dauðann
og syndina og veldi þess er ekkí
lengur hjá honum. Hann býr í
ljósinu og í ljósinu er alls ekkert
myrkur. Þetta er fagnaðarboð-
skapurinn um Jesúm Krist.
Þú sem lifir í myrkri og veist af
því, komdu til Jesú í bæn. Hann
hefur sagt að hann muni ekki
reka neinn í burtu frá sér, heldur
taka við honum. En hvað merkir
það að vera í Jesú? Jú, það er að
lifa í honum, vera eitt í Jesú og
þá erum við í honum sem býr í
ljósinu; við erum í Guði og mun-
um lifa í honum eilíflega. Eg hef
fengið að reyna frelsið í Jesú og
það er von mín og bæn, hver sem
þú ert, að þú eignist það einnig.
Komdu með tvær hendur tómar
til Jesú og biddu hann að gefa
þér líf í sér. Það er það að trúa.
Jesús sagði sjálfur: „Ef sá er
nokkur sem vill gjöra vilja hans,
hann mun komast að raun um,
hvort kenningin er frá Guði, eða
ég tala að sjálfum mér“ Qóh.
7:17). Reyndu sjálfur og þú munt
komast að raun um að Jesús
vakinn“. Það er að segja, Jesús
var framseldur til að deyja á
krossi, til að friðþægja fyrir synd-
ir vorar. Jesús var staðgengill
okkar, við áttum að fá hegning-
una sem kom niður á honum. En
Jesús er líka risin upp frá dauð-
um, þ.e. hann hefur sigrað dauð-
ann eða eins og segir í I,Kor.
15:55 „Dauði hvar er sigur þinn?
Dauði hvar er broddur þinn? En
syndin er broddur dauðans, en
lögmálið afl syndarinnar. Guði
frelsar. Og að lokum vona ég að
þú getir tekið undir þessi orð með
mér sem standa í Rómverjabréf-
inu „Eg er þess fullviss, að hvorki
dauði né líf, né englar, né tignir,
né hið yfirstandandi, né hið
ókomna, né kraftar, né hæð, né
dýpt, né nokkur önnur skepna
muni geta gjört oss viðskila við
kærleika Guðs, sem birtist í Kristi
Jesú Drottni vorum“.
Gutfmundur Gudmundsson.