Kristilegt skólablað - 01.09.1975, Blaðsíða 27

Kristilegt skólablað - 01.09.1975, Blaðsíða 27
Formáli: Islenska þjóðin er kristin. Þá er átt við að kristin viðhorf séu ríkjandi en ekki að allir þegnar þjóðfélagsins séu kristnir vegna þess að svo er ekki. Hversu sterk þessi áhrif eru er erfitt um að Hvers vegna knstindómsfmðsla: Er trúfrelsi ekki skert ef kristin- dómur er kenndur einvörðungu í skólum landsins? Svo er ekki Um uppalenda að þcir ali upp börn sín í kristnum anda. Nú hafa foreldrar og kirkjan, sem ber hér líka vissa ábyrgð, fengið skólan- um þessa fræðslu í hendur. 3) Menningararfur okkar, bókmenntir og listir margs konar kristindómsfrœdslu segja. Kristnir menn verða samt að gera sér ljóst4að kristin áhrif hér á landi fara dvínandi. Þessi fullyrðing er ekki byggð á nein- um tölum um þessi mál vegna þess að þær eru ekki til, heldur á skoðannaskiptum manna í fjölmiðlum, á opinberum vett- vangi og almennt í þjóðfélaginu. Kristindómsfræðsla í skólum hefur verið til umræðu í sambandi við nýju grunnskóla- lögin. Vissar tilhneigingar hafa verið í þá átt að skerða hlut kristindómsfræðslunnar. Þessi viðhorf hafa þó enn sem komið er ekki orðið ofan á. skólum vegna þess að: 1) 90 til 95% af þjóðinni tilheyrir þjóðkirkjunni. Það er ekkert und- arlegt að þessi meirihluti fái að kynnast boðskap þeirrar krikju sem þeir eru meðlimir í. 2) Kristindómsfræðsla í skólum er liður í skírnarfræðslu kirkj- unnar. Um leið og barn er skírt, þá er sú ábyrgð lögð á herðar eru meira og minna mótuð af kristnum áhrifum. Til þess að skilja þessi verðmæti og gildi þeirra þá þarf vissa grundvallar- þekkingu í kristnum fræðum. 4) Ríkið styður og verndar kirkj- una og þess vegna er hún þjóð- kirkja. Kristindómur er þá ríkis- trú og hlýtur að hafa viss forrétt- indi. Trúfrelsi er því ekki skert vegna þess að hverjum og einum er heimilt samkvæmt stjórnar- skrá að hafa sína trú og iðka hana. FRAMHALD á bls. 30.

x

Kristilegt skólablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.