Kristilegt skólablað - 01.09.1975, Síða 30

Kristilegt skólablað - 01.09.1975, Síða 30
ITm... FRAMHALD bls. af bls. 27 KENNSLA í KRISTINDÓMI. Kennsla í kristnum fræðum á að vera málefnaleg. Það eru þrjú megin atriði sem verður að hafa í huga svo að það geti orðið. 1) Láta texta tala. Með því er átt við að Biblíutextinn sé borinn fram hreinn og ómengaður. Kennarinn bætir engu inní, né sleppi úr, þrátt fyrir að kennar- inn sé, e.t.v. ekki á sama máli. 2) Gerður sé greinamunur á trú- aratriðum og þekkingaratriðum. Við skulum taka dæmi. Það er sagnfræðileg staðreynd að Jesú Kristur var uppi á sínum tíma. Rómverski sagnritarinn Tactius getur Jesú í sínum ritum. Hins vegar eru ekki allir á eitt sáttir hvort Jesús hafi verið sonur Guðs, því það er hreint trúar- atriði. Þessi greinarmunur þarf að vera skýr svo að nemendur fari ekki að efast um þekkingaratriði. 3) Öll kristindómsfræðsla þarf að miðast að því að nemendur hafi það góða þekkingu á lífi, starfi og friðþægingu Jesú Krists að þeir séu færir um að velja og hafna þegar þeir hafa þroska til. Þeim þurfa einnig að vera ljósar afleið- ingar af vali sínu og að þeir séu ábyrgir einstaklingar gagnvart Guði og mönnum. KRISTINDÓMUR EÐA SIÐFRÆÐI Sú skoðun er nokkuð ríkjandi að taka eigi kristna siðfræði út úr og leggja aðaláherzlu á hana. Kristin siðfræði verður ekki kennd ein sér, vegna þess að hún og kristin trú eru svo samfléttuð. Hjá Mattheusi stendur: „Þú skalt elska Drottinn Guð þinn, af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum huga þínum“. (Matt. 22.37.) Þetta er hið stærsta og fyrsta boðorð en framhaldið er eftir og það hljóðar svo: ,,Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig“. Þarna kemur fram trúarleg siðfræði og það gerir m.a. Ijóst hve náið samband er milli kærleika til Guðs og kærleika til manna. Það sem sker úr í kristinni siðfræði er að grundvallarafstaða til Guðs og manna sé rétt. Þannig að ljóst má vera að ekki er hægt að aðskilja kristna siðfræði og kristna trú. LOKAORÐ. Kristnir menn verða að standa saman gegn hverju því niðurrifs- afli sem vill gera lítið úr kristin- dómsfræðslu í skólum. Við ber- urn ábyrgð á boðun orðsins og þá ■:.m leið a kristindoms- fræðslu í skólum landsins. Gunnar Finnbogason. <aerl*®*' tréskornir, léttir Þægilegir og i tisku pad er nokkud, sem vit er i domus simi 18519 1/ZK-7Á-R&ÖTU 6B Sími 1 55 55 71 U ULULtSZkj 30

x

Kristilegt skólablað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.