Alþýðublaðið - 10.02.1926, Qupperneq 1
Erlend sanaskeyfi.
¥erðlækkmarsalan heiiir Ira:
Khöfn, FB., 9. febr.
Mussolini hótar Þjóðverjum.
Mussolini hefir haldið þrumandi
ræðu í þinginu um félagsskap í
Suður-Þýzkalandi og Ausíurríki,
er starfa að því, að útiloka ítalsk-
ar vörur. Sagði Mussolini, að taki
Þýzkaland á sig ábyrgð þessara
félaga og styðji íbúana í Suður-
Tyrol í baráttu þeirra gegn svart-
liðastefnunni, muni ftalir gera
nauðsynlegar ráðstafanir í Bren-
ner-skarði og færa síðar landa-
mærin heldur norður á bóginn en
hitt. !
Brennivinsvina-skeyti.
Frá Washington er símað, að
Jromið hafi í Ijós í þinginu, þegar
rætt var um bannlögin, að kostn-
aðurinn, er þau hafa í för með
sér, er 100 milljónir dollara ár-
lega.
GiðiJ.Vfkar,
Framhaldsaðalfuitdnr
verður haldinn á morgun i Góðtemplarahúsinu
kl. 8 e. m.
Á dagskrá er kaupgjaldsmálið o. fl.
Félagar! Fjölmennið! Stjórnin.
Leikfélag Reykjavíkur.
verður leikinn fimtudag 11. þ. m. kl. 8 síðdegis.
®jl!gr Niðursett verð.
Aðgöngumiðar seldir i dag frá kl. 4 — 7 og á morgun frá
kl. 10—1 og eftir kl. 2.
Sími 12. Sími 12.
iimleMd ©@ ílílemd,
mlkið dffval siýkeimlð.
G. Bjarnason & Fjeldsted.
Enginn þorir að kannast við
rógskeytið.
ítarlegar tilraunir hafa verið
gerðar af bannvinum til þess að
komast að því, hver spann upp
lygasöguna um Pussyfoot (að
hann hafi .sagt, að bannið hefði
alls staðar gert meira tjón en
gagn). Virðist ógerlegt að sanna,
hver á sök á lyginni. Bannvinir
stórreiðir yfir lygasögunni.
Khöfn, FB., 10. febr.
60 stiga frost.
Frá Stokkhólmi er símað, að
í smábæ einum í norðurhluta
Svíþjóðar hafi verið mælt mest
frost, sem komið hefir á Norður-
löndum, sem sé 00 stig á Cel-
síus-mæli.
„Niður með allar harðsíjóinir!"
Frá Lundúnum er símað, að
blöðin séu harðorö um frekju
Mussolinis. Blaðið „Daily Ex-
press“ endar grein um þetta með
þessum orðum: „Niður með allar
harðstjórnir!"
Þjóðverjar reiðir Mussolini.
Frá Berlín er símað, að öll blöð-
in geri ræðu Mussolinis að um-
talsefni. Er talsverð æsing og
biturleiki gegn honum út af hót-
unum hans.
Ferðamenn í Frakklandi.
Samkvæmt skýrslu ferðamanna-
félagsins franska, þá komu til
Frakklands síðast liðið ár yfir ein
milljón skemtiferðamanna, er eyddu
TVaniilIjörðumfrankaí dvölinni þar.
Kirkjuhljösnleikarair,
sem Páll ísólfsson heldur í fríkirkj-
\ unni í kvöld, eru hinir fyrstu í sinni
röð og vafalaust mikilfenglegustu
kirkjuhljómleikar, haldnir hér. 40
menn syngja, og 20 manna hljóm-
sveit leikur á hljóðfæri. Ernil Thor-
oddsen leikur á flygilinn, og Öskar
Norðmann flytur einsöngva.