Skák


Skák - 15.02.1956, Síða 5

Skák - 15.02.1956, Síða 5
SKÁK Rit8tjóri oo útoefandi: Birolr Siourösson — Ritnefnd: Inoi R. Jóhannsson, Einar Þ. Mathieaen, FriöriTc ólafsson oq Arinbjörn Ouö- mundsson — Blaöið Tcemur út 8 sinnum á ári, 16 síður í hvert sinn — Áskriftarverö þess er kr. 65.00 — Einstök blöö kr. 10.00 — Ojalddaoi er 1. janúar — Afgreiösla blaösins er á HoltsQötu 31 — Prentaö i fsafoldarprentsmiöju h.f. Benft Larsen Skákmeisftari Norðurlanda Sigraði Friðrik Ólafsson í einvígi með 4J/2:3r/2 Arið 1955 var haldið Skákþing Norðurlanda í Osló. í landsliðsfl. báru sigur úr býtum þeir Bent Larsen og Friðrik Olafsson. Til þess að fá úr því skorið, hvor skyldi hljóta tignina Skákmeistari Norðurlanda, urðu þeir að heyja einvígi. Því var fundinn staður i Reykjavík, og fjöldi skákanna á- kveðinn átta. —• Skáksamband ís- lands sá um allan undirbúning keppninnar, sem haldin var í Sjó- mannaskólanum. Einvígið fór mjög vel fram, þeg- ar tekið er tillit til fjöldans, sem það sótti. Fyrsta kvöldið varð að loka húsinu, þegar komnir voru á sjöunda hundrað áhorfenda, en hámarki sínu náði aðsóknin í síð- ustu umferðinni, því að þá munu hafa komið 800 manns til að horfa á lokabaráttuna. Þetta mun hafa verið bezt sótta skákkeppni á Is- landi, og er það sannarlega á- nægjulegt að almenningur skuli vera farinn að gefa skákinni meiri gaum en hann gerði. Keppnin var ákaflega spennandi og skemmti- leg, því aðeins ein skák varð jafn- teflisdauðanum að bráð. Aftur á móti voru skákirnar ekki eins vel tefldar og búast mátti við af svo góðum skákmönnum, sem þeir Friðrik og Larsen eru. Það kom ekki ósjaldan fyrir, að annar aðil- inn lék af sér manni eða skifta- mun, sem ekki myndi henda þá nema einu sinni eða jafnvel aldrei í 19 umferða skákmóti. Þessi mikli fjöldi afleikja stafar fyrst og fremst af taugaóstyrk, sem báðir keppendur komust í snertingu við. Eftir 5 skákir stóðu ieikar 3%:1% Larsen í vil. Þessi vinningatala hefði orðið til þess að draga úr kjarki hvers meðalmanns, en Frið- rik er enginn meðalmaður, eins og við komumst að raun um í 6. og 7. skákinni. Hann gerði sér lítið fyr- ir og sigraði í tveim skákum í röð, og tókst þannig að jafna metin fyrir síðustu skákina. Eftir þessa tvo síðustu sigra Friðriks áleit ég að hann myndi bera sigur úr být- um í einvígi þessu, en í annað sinn kom Larsen mér á óvart með sinn sterka sigurvilja. f fyrra skiptið var það í Osló, er hann sigraði Friðrik í úrslitaskákinni í síðustu umferð, og svo núna í 8. skákinni tókst honum að sigra Friðrik, sem valdi flókið afbrigði gegn Sikileyjar-vörn Larsens. — Larsen kom með nýjung í byrjun- inni, eins og í Osló, og Friðrik eyddi miklum tíma til þess að átta sig á hinu nýja viðhorfi, sem skapaðist við leik Larsens. Friðrik hóf síðan sókn á kóngsvæng, en hafði ekki gefið sér nægilegan tíma til að undirbúa sóknina, enda var hún andvana fædd. Þannig lauk þessu skemmtilega skákeinvígi með sigri danska skák- meistarans Bent Larsens, sem af flestum var álitinn hafa teflt bet- ur í þessari keppni. Eg gekk þess ekki dulinn, að Friðrik tefldi undir sínum vana- lega styrkleika í flestum skákum einvígisins. Aðeins tvisvar sinnum sá ég hans gamla sigurvilja glampa, en það var í 2. og 7. skák- inni. Ég freistast því til að álíta, að hann hafi ekki haft nægilega langan tíma til hvíldar eftir skák- mótið í Hastings. Þetta ættu for- ráöamenn Friðriks að athuga, þeg- ar hann heyr næstu baráttu sína fyrir Islands hönd. Skákstjóri var Áki Pétursson, og keppnisstjóri Jón Einarsson. Þess- ir menn leystu starf sitt vel af hendi og gætu eftirkomendur þeirra margt lært af þeim. Guð- mundur Arnlaugsson sá um út- skýringar á hverri skák, jafnóðum og hún var tefld, og honum til aðstoðar voru margir af kunnustu skákmönnum Reykjavíkur. Þessi nýbreytni féll í góðan jarðveg hjá áhorfendum, sem fengu að leggja orð í belg, þegar útskýrendur ræddu um hin margvíslegu af- brigði, sem komið gátu fyrir í hverri skák fyrir sig. Æskilegt væri að hafa slikar skýringar í framtíðinni á meiriháttar skák- mótum, sem íslendingar kunna að halda. Forseti Skáksambandsins, Sig- urður Jónsson, á þakkir skildar fyrir það mikla verk, sem hann hefur lagt af mörkum við fram- kvæmd á þessu skákeinvígi, og er óskandi að hann sjái sér fært að gefa skákinni eitthvað af tíma sínum í framtíðinni. Inoi R. Jóhannsson. 1 2 3 4 5 6 7 8 V. Bent Larsen .. 1 0 1 Vz 1 0 0 1 4y2 Friðrik Ólafsson .. .. 0 1 0 % 0 1 1 0 3% S KÁK 17

x

Skák

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.