Leikskrár Þjóðleikhússins - 24.01.1969, Page 29

Leikskrár Þjóðleikhússins - 24.01.1969, Page 29
G. B. S. (Framhald af bls. 21). hæfis, ef honum þóknaðist. Þessi fjögur leikrit kallaði hann „skemmtileg", og sýnist það vel við hæfi. í hinu skoplega molodrama ,Devil’s Desciple (1896), stillir hann þorpara upp sem hetju; hann reynir að skáka Shakespeare með Caesar and Cleopatra (1897), en tókst það illa að flestra dómi — nema sjálfs sín. Captain Brassbound’s Conversion (1898) er samið handa Ellen Terry, sem var ein af þeim fögru og mikilhæfu prímadonnum leiksviðsins er heilluðu Shaw. The Admirable Bashwille (1900) sauð Shaw upp úr skáldsögu eftir sig, er nefnd- ist Cashel Byron’s Profession. Að uppástungu A. B. Walkley, sem þá var leiklistargagnrýnandi við Times, þess efnis að hann setti saman leikrit um Don Juan, skrifaði Shaw Man and Super- man (1901), íburðarmikið verk með miklum tilþrifum, en mörg- um hefur þótt það nokkuð langt og ofhlaðið. Til þessa hafði áhugi Shaws nær eingöngu beinzt að Englandi, en írland virtist hafa horfið í yztu myrkur — þar til William But.ler Yeats bað hann að semja leikrit handa Abbey-leikhúsinu. Shaw skrifaði leikritið John Bull’s Other Island (1904), og er það enn í góðu gildi, þráttfyrir nokkuð breytt viðhorf í sambúð þessara þjóða. Shaw samdi leikritið How She Lied to Her Husband (1904) eftir beiðni; hér er um að ræða svipað efni og í Candidu. í Major Barbara (1905) fjallar Shaw um meinsemdir í þjóðfélag- inu, og einnig öllu ýtarlegar í The Doctor’s Dilemma (1906), en þar er umbóta-reseftið nægilega rótækt til að valda endalausu rifrildi í blöðum og meðal lækna. í leikritinu Getting Married (1908) er fjallað um giftingar og fráskilnað á enska vísu. The 27

x

Leikskrár Þjóðleikhússins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Leikskrár Þjóðleikhússins
https://timarit.is/publication/2016

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.