Skák


Skák - 15.02.1983, Blaðsíða 3

Skák - 15.02.1983, Blaðsíða 3
SKÁK Útgefandi og ritstjóri: Jóhann Þórir Jónsson # Umsjón með efni: Guðmundur Arnlaugsson # Ritnefnd: Friðrik Ólafsson Guðmundur Sigurjónsson L. Alburt Helgi Ólafsson Guðmundur G. Þórarinsson Jón Pálsson Birgir Sigurðsson # Út koma 10 tölublöð á ári 32 síður í senn # Áskriftarverð 800 kr. árgangurinn # Einstök blöð 90 kr. # Gjalddagi er 1. janúar # Utandskrift: SKÁK, pósthólf 1179 Reykjavík # Prentað í Skákprent, prentsmiðju tímaritsins Skák Dugguvogi 23 Símar: 31975, 31391, 31335 Ritstjórarabb Loks er annað tölubiað þessa árgangs á ferðinni. Við biðjum áskrifendur og lesendur velvirðingar á þeim seinagangi sem verið hefur á útgáfunni, en því valda breytingar í prentsmiðj- unni. Vonum við að úr þessu verði bætt fljótlega og fleiri blöð komi út áður en langt um líður. # Aðalfundur Skáksambands Islands var haldinn í maílok. Var hann óvenju illa sóttur og virðist sem eldlegur áhugi síðari árin á fundarsókn hafi dofnað til muna, hver svo sem skýringin á því kann að vera. A aðalfundinum kom berlega í Ijós, að Skáksambandið á í miklum fjárhagserfiðleikum og skuldabaggamir eru að bera skákhreyfinguna og skáklíf í landinu ofurliði. Stjórn S. í. á við mikla erfiðleika að etja og er vandséð hvernig því andófi lyktar. Skákhreyfingin hefur löngum átt við fjárhagslega erfiðleika að búa og afkoma tíðum verið bág, enda þótt stundum hafi komið betri tíð með blóm í haga. Frjáls félagsstarfsemi á við ramman reip að draga í okkar landi. Þar reynir mest á dugnað og atorku þeirra manna sem vilja leggja ómældan tírna og vinnu sem sjálfboðaliðar í þessu félagsstarfi, en skilningur hins opinbera á störfum þeirra og sam- taka þeirra verið mjög takmarkaður. Má nefna að árum saman hafa styrkir Alþingis og borgar verið jafnaðarlega hinir sömu að krónutölu rétt eins og ráðamenn hafi aldrei haft spurnir af þeirri óðaverðbólgu sem tröllríður landi voru og efnahag. Skákhreyfingin nýtur velvilja alls þarra þjóðarinnar og Island hefur eignast marga afreksmenn á alþjóðlega vísu í skákinni. — Þar eru á ferðinni ungir menn sem líklegir eru til mikilla afreka og skákstyrkleiki Islendinga vekur alþjóða athygli. Því er sárt til þess að vita, að um þessar mundir virðist sem skák- forustan og okkar öflugustu skákmeistarar eigi ekki samleið og er þar gleggsta dæmið þátttakan í Islandsþinginu. Hér verður enginn dómur lagður á þennan ágreining, en það er með öllu ótækt að slíkir fáleikar séu með þessum aðilum sem raun ber vitni. Hér verður að ráða bót á eftir öllum tiltækum leiðum, og hin ný-endurkjörna stjórn Skáksambands íslands verður að láta hendur standa fram úr ermum og vinna ötullega að lausn þessa vanda svo og að koma fjármálum skákhreyfingarinnar á heil- brigðan grundvöll. Það er ekki nóg að standa í stað. SKÁK 33
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Skák

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.