Skák


Skák - 15.02.1983, Síða 4

Skák - 15.02.1983, Síða 4
Guðmundur Sigurjónsson: HASTINGS 1982-83 Yíirburðasigur sovéska stórmeistarans Vaganjan Er Vaganjan að komast í hóp- inn? Glæsilegur sigur hans í Hastings vekur upp þessa spurn- ingu. Það eru nefnilega mjög fáir, sem geta unnið skákmót með þvílíkum yfirburðum og hann gerði í þessari sögufrægu borg við Ermarsundið nú um áramótin. En hvort hann er að komast í hóp þeirra Fischers, Aljékíns og Kasparovs er líklega of fljótt um að dæma. Þetta var 58. alþjóðlega skák- mótið í Hastings. A meðal hinna fjórtán keppenda voru sjö stór- meistarar, en tæpast verða þeir allir taldir vera í fremstu röð. Hastings höfðar nefnilega ekki lengur til þeirra bestu. Keppnin um efsta sætið varð aldrei spennandi. Yfirburðir Vaganjans voru of miklir. — Hinn 29 ára gaml'i Armeni tefldi af miklu öryggi og iðulega átti hann eftir klukkutíma ónotaðan, þegar hann hafði lokið 40 leikjum. — Byrjanirnar, sem hann teflir, láta lítið yfir sér, en í miðtafl- inu flækist staðan og þá nýtur hann sín. Hann sýndi oft frá- bæra tækni í endatöflum, og ljóst er, að þessi skákmaður hef- — Áskriftarsíminn er 31975 — ur náð miklum jiroska. Hann hlýtur að blanda sér í áskor- endakeppnina innan tíðar. Tveimur og hálfum vinningi neðar kom Júgóslavinn Kovace- vic. Hann varð frægur, þegar hann vann Fischer fallega árið 1970. Síðan fór lítið fyrir hon- um, en á síðustu tveimur árum hefur hann oft staðið sig vel. Hann teflir óvenjulegar byrjan- ir, t. d. 1. d4 d5 2. Bg5, og er góður í erfiðri stöðubaráttu, en líklega er hann þó bestur í tafl- lokum. Murey stóð fyrir sínu og var aðeins hársbreidd frá stórmeist- aratitli. Stöðurnar, sem hann fær upp á skákborðinu eru oft eins og úr ævintýrum, enda reynir maðurinn að tefla sem skrýtnast. Þessi óvenjulegi skák- maður lífgar alltaf upp á mótin, sem hann tekur þátt í. Jafn honum að vinningum kom Tékkinn Ftacnik. Hann er dæmigerður ungur skákmaður, sem kann sínar byrjanir út og inn eins og góður nemandi sínar lexíur. Tukmakov náði sér ekki veru- lega á strik í mótinu. Mestel varð efstur heimamanna, en þeir stóðu sig fremur slælega. Hebden kom þó þægilega á ó- vart, en ungstirnið Short var sí- fellt að klúðra niður hálfum vinningi hér og hálfum vinningi þar. Henley og Farago stóðu sig illa og Lein var heillum horf- inn og hann reynir án efa að þurrka þetta skákmót úr minn- ingunni sem fyrst. Skák nr. 5429. Hvítt: Svart: Vaganjan Plaskett Drottningarpeðsbyrjun. 1. d4 e6 2. Rf3 Rf6 3. Bg5 Þessi leikmáti er stundum kallaður Torre-árásin og hefur Vaganjan oft brugðið henni fyr- ir sig. Rétt er þó að geta Petro- sjans í þessari andrá, því að hann hefur teflt svona um ára- tugi og auðgað þetta afbrigði með mörgum athyglisverðum hugmyndum. Sumir vilja því kenna byrjunina við hann. 3. — h6 4. Bxf6 Dxf6 5. Rbd2 d6 6. c3 Hvítur er ekkert að flýta sér að Ijóstra því upp hvar hann ætlar að hafa biskup sinn. 6. — Rd7 7. a4 g5 8. g3 Þarna á biskupinn að vera og jafnframt fær riddarinn reit á h4 eftir 8. - g4. 34 SKÁK

x

Skák

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.