Skák - 15.02.1985, Síða 9
SKÁK
Utgefandi og ritstjóri:
Jóhann Þórir Jónsson
*
Umsjón meb efni:
Guðmundur Arnlaugsson
*
Tœknileg umsjón:
Birgir Sigurðsson
*
Ritnefnd:
Friðrik Olafsson
Guðmundur Sigurjónsson
Helgi Olafsson
Bragi Kristjánsson
Margeir Pétursson
Jón L. Arnason
Jóhann Hjartarson
Guðmundur G. Þórarinsson
*
Auglýsingar:
Guðmundur S. Kristjánsson
Einar H. Guðmundsson
*
Ut koma 10 tölublöð á ári
32 síður í senn
*
Áskriftarverð 1600 kr.
árgangurinn
*
Einstök blöð 200 kr.
*
Gjalddagi er 1. janúar
*
Utanáskrift:
SKÁK, pósthólf 1179
121 Reykjavík
*
Prentað í Skákprent,
prentsmiðju tímaritsins Skákar
Dugguvogi 23
Símar:
31975 (skrifstofa)
31391 (tæknideild)
31335 (prentsalur)
31399 (filmugerð)
Ritstjórarabb
Árið 1985 mun eflaust lifa í hugum skákmanna um ókomin ár, þótt
ekki gerist neitt markvert á síðari hluta þess. Sjaldan ef nokkru sinni
hafa garpar vorir verið jafn iðnir við kolann. Þrjú alþjóðleg mót hafa
þegar séð dagsins ljós og eitt er framundan. Margeir Pétursson komst
á millisvæðamót og náði 1. áfanga til stórmeistara. Jón L. náði 1.
áfanga til stórmeistara, en Helgi Olafsson gat látið drauminn rætast
og öðlast nafnbótina stórmeistari í skák. Það eru mikil tíðindi. Þau
voru síðan rækilega undirstrikuð með alþjóðlegum meistaratitlum
Karls Þorsteins og Sævars Bjarnasonar og ekki má líta framhjá Áskeli
Erni Kárasyni, sem gerði sér lítið fyrir og náði árangri FIDE-meist-
ara á Húsavíkurmótinu. Mikil er sigurgleðin, en þó ber á skugga.
Skákþing Islendinga virðist ætla að verða hreint olnbogabarn skák-
hreyfmgarinnar.
Ágætu lesendur, ég vil trúa ykkur fyrir því, að það er mér þyngra en
tárum taki að horfa á gang mála í þessum efnum. Skákþing Islands
á að bera hæst íslenskra skákmóta. Þar á skákmennt okkar að rísa
hæst. Þar eigum við að sýna snilli okkar í skipulagningu.
Vissulega hefur þessi staða mála lítt breyst um nokkurt árabil. Hitt
er samt augljóst að þótt við komum upp glæsilegum afmælismótum
þá má það ekki vera á kostnað Islandsþings. Kappkosta verður, með
öllum tiltækum ráðum, að gera þetta mót sem veglegast svo okkar
rómuðu skáksnillingar láti annað víkja fyrir þátttöku þar. Það er vel
hægt. Má vera að það kosti eitthvað í upphafi en sá kostnaður skilar
sér íljótt aftur.
Ymsir telja nú páskana óheppilegan mótstíma, og vissulega er margt
annað sem freistar manna um þessa lengstu helgi ársins. En áður fyrr
var naumast um annað að ræða en halda mótið um páska. Af lands-
byggðinni áttu menn ekki heimangengt á öðrum tíma og því var
einnig ákveðið að aðalfundur S.í. færi fram um sama leyti.
Þeir sem sitja í stjórn S.I. hafa löngum sannað ágæti sitt sem skipu-
leggjendur. Það er í raun merkilegt umhugsunarefni hversu miklu
þeir afkasta að loknum erfiðum vinnudegi, og vissulega er þeim öll-
um Ijóst að hér þarf úrbóta við.
Taki það stjórn Skáksambandsins of mikinn tíma að leysa þessa
þraut, því mörg verkefni liggja fyrir hverju sinni, þá er auðvitað að
leita til einhverra sem hafa tíma, eða hreinlega að bjóða mótshaldið
út.
Skákþing íslands skal í veglegan sess!
Jóhann Þórir Jónsson
SKÁK 33