Skák - 15.02.1985, Qupperneq 16
Garðar, sem voru næstum hníf-
jafnir, en Jón Garðar var þó ögn
hærri þegar lengra var talið og er
því skákmeistari Norðurlands í ár.
Jón Garðar er ungur Akureyringur
sem oft hefur staðið sig vel á skák-
mótum nyrðra, en þetta er í fyrsta
sinn að hann vinnur sigur á Skák-
þingi Norðlendinga. Gylfi bar
hins vegar hitann og þungann af
mótshaldinu sem formaður Skák-
sambands Norðlendinga, og sé
tekið tillit til þess er frammistaða
hans ótrúlega góð.
Sveinfríður Halldórsdóttir og
Arnfríður Friðriksdóttir hlutu
báðar 3 vinninga í opna flokknum,
en Sveinfríður var hærri að stigum
og er því skákmeistari norðlenskra
kvenna á þessu afmælisári.
I unglingaflokknum voru tefldar
níu umferðir. Þar voru keppendur
35 og-urðu úrslit þessi:
1. Páll A. Jónsson frá Siglufirði
16 ára, 7 v.
2. —4. Sigurður Gunnarsson Siglu-
firði, Tómas Hermannsson
Akureyri og Skafti Ingimars-
son Akureyri, allir 13 ára,
6.5 v.
5.—5. Rúnar Sigurpálsson Akureyri
og Ásgrímur Angantýsson
Raufarhöfn, báðir 12 ára ,
6 v.
Aðalkeppninni lauk upp úr hádegi
á sunnudag, en þá hófst hraðskák-
mót eftir stutt hlé. Þar var teflt af
mikilli leikgleði og ekkert sparað í
skákafjölda: ellefu tvöfaldar um-
ferðir tefldar í opna flokknum. I
ofanálag þurfti svo að tefla einvígi
um tvö efstu sætin og einnig um
tvö þau næstu, svo jöfn var keppn-
in. Það var því liðið langt fram yfir
tilsettan upphafstíma þegar þátt-
takendur komu loks í lokahófið
á Hótel KEA, en til þess hafði
bæjarstjórn Akureyrar boðið af
mikilli rausn. Þar sátu menn í góð-
um fagnaði við ræðuhöld og
verðlaunaveitingar. En áður en
varði var komið að skilnaðar-
stund, því að margur átti langa
leið heim og á brott héldu menn
með góðar minningar frá skák-
móti sem hafði farið hið besta
fram.
Þetta skákmót bar vott um tals-
verða grósku í skáklífi norðan-
lands. Athyglisvert þótti mér að
mótið sóttu tveir hópar drengja,
annar af Svalbarðsströnd, hinn
alla leið austan af Raufarhöfn.
Þessir skemmtilegu drengjahópar
báru því ljóst vitni hverju hægt er
að fá áorkað í fámenninu, ef
áhugi og lagni fylgjast að.
Ekki spillti það fyrir þessu ágæta
móti að þar var einn keppandi sem
er lifandi persónugervingur skák-
sögu landsbyggðarinnar. Þetta er
Hjálmar Theódórsson, sonur
Theódórs Friðrikssonar rithöf-
undar. Hjálmar er fæddur á Húsa-
vík, en hefur búið víða annars
staðar á landinu og hvarvetna
komið við skáksöguna. Meðal
annars er hann fyrsti skákmeistari
Vestmannaeyja og að ég hygg
einnig fyrsti skákmeistari Suður-
nesja. Hjálmar tefldi á fyrsta skák-
þingi Norðurlands fyrir fimmtíu
árum og tók aftur þátt nú. Hann
hefur tvívegis orðið skákmeistari
Norðurlands. Hjálmar á nú aftur
heima á Húsavík. Honum var
boðið sérstaklega til mótsins ásamt
eiginkonu sinni og honum var
sýndur margháttaður sómi eins og
verðugt var, meðal annars var
hann kjörinn heiðursfélagi Skák-
sambands Norðurlands.
Hér er ekki rúm til að rekja þessa
sögu ítarlegar, en ég lýk frásög-
unni á skrá um þá sem unnið hafa
titilinn Skákmeistari Norðlend-
inga frá upphafi:
SKÁKPRENT
Dugguvogi 23 — Sími 31975
Skákmeistarar Norðlendinga
1935—1985
1935 Sveinn Þorvaldsson
1936 Haukur Snorrason
1937 Guðbjartur Vigfússon
1938 Guðbjartur Vigfússon
1939 Sigurður Lárusson
1940 Jóhann Snorrason
1941 Sigmundur Halldórsson
1942 Jón Þorsteinsson
1943 Jón Þorsteinsson
1944 Jón Þorsteinsson
1945 Jóhann Snorrason
1946 Guðmundur Arnlaugsson
1947 Unnsteinn Stefánsson
1948 Júlíus Bogason
1949 Júlíus Bogason
1950 Margeir Steingrímsson
1951 Jóhann Snorrason
1952 Jón Þorsteinsson
1953 Jón Þorsteinsson
1954 Júlíus Bogason
1955 Margeir Steingrímsson
1956 Júlíus Bogason
1957 Ingimar Jónsson
1958 Halldór Jónsson
1959 Júlíus Bogason og
Þráinn Sigurðsson
1960 Jónas Halldórsson
1961 Jón Ingimarsson
1962 Jónas Halldórsson
1963 Freysteinn Þorbergsson
1964 Jónas Halldórsson
1965 Hjálmar Theodórsson og
Hjörleifur Halldórsson
1966 Jónas Halldórsson
1967 Jónas Halldórsson
1968 Freysteinn Þorbergsson
1969 Halldór Jónsson
1970 Hjálmar Theodórsson
1971 Guðmundur Búason
1972 Halldór Jónsson
1973 Freysteinn Þorbergsson
1974 Jón Torfason
1975 Frank Herlufsen
1976 Hreinn Hrafnsson
1977 Gunnar Skarphéðinsson
1978 Páll Leó Jónsson
1979 Pálmi R. Pétursson
1980 Gylfi Þórhallsson
1981 Jón Torfason
1982 Jakob Kristinsson
1983 Pálmi R. Pétursson
1984 Gylfi Þórhallsson
1985 Jón Garðar Viðarsson
40 SKÁK