Skák


Skák - 15.02.1985, Side 37

Skák - 15.02.1985, Side 37
(a) Hafi teflendur biðskákar samið um jafntefli og skýra dómaranum frá þeirri ákvörðun, en síðan kemur í Ijós að skráður hefur verið biðleikur sem er ógildur samkvæmt grein 10.15, skaljafn- teflið standa. (b) Hafi annar teflendanna í biðskák tilkynnt dóm- aranum að hann gefist upp, en svo kemur í Ijós þegar umslagið er opnað að andstæðingur hans hefur skráð biðleik sem er ógildur samkvæmt grein 10.15, þá skal uppgjöfin standa. 14.3. Sé sá teflandi sem á að svara biðleiknum fjarver- andi, skal klukka hans sett af stað, en umslagið með biðleiknum ekki opnað fyrr en hann kemur. 14.4. Sé teflandinn sem lék biðleiknum fjarverandi, þarf hinn ekki að svara honum á skákborðinu. Hann á rétt á að rita svarleik sinn á eyðublað sitt, setja það í umslag, stöðva sína klukku og setja klukku and- stæðingsins af stað. Umslagið skal geymt á örugg- um stað og opnað þegar andstæðingurinn kemur. 14.5. Hafi umslag með leik sem skráður er samkvæmt greinunum 13.1 og 13.2 horfið — (a) Skal halda skákinni áfram frá stöðunni eins og hún var þegar skákin fór í bið og klukkurnar stilltar eins og þær voru þegar skákin fór í bið; (b) sé ekki unnt að ná stöðunni upp, er skákin ógild og skal þá ný skák tefld; (c) sé ekki unnt að ná fram tímanum eins og hann var á klukkunum þegar skákin fór í bið, skal dómarinn úrskurða hvað gera skuli. Sá tefland- inn sem lék biðleik, skal leika honum á borðinu. 14.6. Hafi klukka annars hvors teflanda verið ranglega stillt þegar tekið er til við biðskák, og bendi annar- hvor teflandinn á það áður en hann leikur fyrsta leik sínum, skal skekkjan leiðrétt. Sé ekki bent á skekkjuna á þennan hátt, heldur skákin áfram án leiðréttingar nema dómaranum finnist afleiðing- arnar of alvarlegar. 14.7. Tímalengd setu við biðskák skal mæld á klukku í skáksal og skal fyrirfram tilkynnt um hvenær taflið hefst og hvenær því lýkur. Grein 15. Framkoma teflenda 15.1. (a) Meðan skák er í gangi er teflendum hvorki heimilt að nota handrituð gögn, prentuð eða framleidd á annan hátt, né athuga skákina á öðru skákborði. Þeim er einnig bannað að þiggja ráð þriðja aðila eða álit hans, hvort sem um það er beðið eða ekki. (b) Einnig er bannað að nota athugasemdir sem skráðar eru meðan á skákinni stendur, til minn- is, aðrar en skráning leikjanna sjálfra og um- hugsunartímans. (c) Oll rannsókn skáka er bönnuð í skáksal meðan verið er að tefla skákir eða biðskákir. (d) Bannað er að trufla eða ónáða andstæðinginn á nokkurn hátt. 15.2. Brot á þeim reglum sem nefndar eru í grein 15.1 geta varðað refsingu, jafnvel tapi á skákinni. Grein 16. Dómarinn Til að stjórna keppni skal skipa dómara. Skyldur hans eru þessar: 16.1. Að sjá um að farið sé nákvæmlega að settum regl- um. 16.2. Að hafa vakandi auga með gangi keppninnar, ganga úr skugga um að teflendur hafi ekki farið yfir tilskilin tímamörk, ákveða í hvaða röð biðskákir skuli tefldar, að sjá um að farið sé eftir ákvæðum 13. greinar (gæta þess að upplýsingar á umslaginu séu réttar), að varðveita biðskáka-umslagið þar til bið- skákin verður tefld, o.s.frv. 16.3. Að sjá um, að farið sé eftir úrskurði hans í deilum sem upp hafa komið í keppninni. 16.4. Að stuðla að því eftir getu að keppnin fari sem best fram, aðstæður séu eins góðar og unnt er, og að keppendur trufli ekki hver annan, né heldur valdi áhorfendur truflunum. 16.5. Að leggja refsingu á keppendur fyrir hverja yfirsjón eða brot á reglum þessum. Grein 17. Skráning vinninga Fyrir unna skák hlýtur sá sem sigrar einn (1) vinning, en sá sem tapar núll (0); fyrir jafntefli fær hvor keppandi hálfan ('A) vinning. Grein 18. Túlkun þessara laga Leiki vafi á því hvernig beita skuli þessum lögum eða túlka þau, skal FIDE rannsaka málavexti og kveða upp opinberan úrskurð. Er þá öllum aðildarsamböndum skylt að fara eftir þeim úrskurði. I tillögum eða fyrirspurnum um túlkanir er aðildarsambönd senda skal gerð nákvæmlega grein fyrir málavöxtum. Grein 19. Gildistaka Enski textinn er talinn frumtexti þessara skáklaga er voru samþykkt á FIDE-þingi árið 1984. Lögin taka gildi fyrsta janúar 1985. SKÁK 61

x

Skák

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.