Skák


Skák - 15.02.1990, Side 29

Skák - 15.02.1990, Side 29
17. — I)c7 18. Rc5 f6 Hvorki 18. - Bd6 19. Dh5 g6 20. Rg4! né 19. - h6 20. Df5, né heldur 19. - f5 20. Bxf5 Bxe5 21. Be6t. 19. Dh5 g6 20. Rxg6 hg6 21. Bxg6 'mm M ***** t s* U M 'Mb 1%'wm 'Wfr, B A m Ui A 1 2 mÆ', wm, wm. Ww/. mm. ^iíf ^p T1 Hli 'S' A M ^ 1« Sá varnarleikur sem Geller velur nú dugar skammt, en erfitt er að benda á betri vörn. 21. - Dg7 23. f4 Dh8 25. Khl Hc7 27. De6t Kg7 22. Hd3 Bd6 24. I)g4 Bc5t 26. Bh7t! Kf7 28. Hg3t og mátar í næsta leik. 11. Ritstörf og þrautasmíð Á yngri árum mun Keres hafa lagt stund á nám í stærðfræði en horfið frá því þegar hann komst á kaf í skákina. Sem sovéskur stórmeistari hefur hann þegið einhver laun frá ríkinu en jafn- framt hefur hann starfað sem blaðamaður á skáksviði og skrifað fréttir frá skákmótum. Hann hefur einnig skrifað bækur um skákmót. Ég hef heyrt getið um bók hans um heims- meistarakeppnina 1948 en ekki séð hana. í riti sínu um sovéska skák frá 1968 gerir R.G. Wade samanburð á henni og bók Golombeks um sama mót sem hann telur einnig góða en segir þó mikinn mun á þeim, þar komi fram munurinn á meistara og raunverulegum stórmeistara. Af ritum Keresar um skák er bókin HAGNÝT ENDATÖFL kunnust á íslandi, en þýðing Jóns Torfasonar á þeirri ágætu bók hefur verið kennslubók ungra íslenskra skákmanna meira en áratug. Ávallt er erfitt að velja meðalveginn milli handhægs leiðarvísis og grund- vallarrits. Keres þræðir þann veg af þeirri nákvæmni sem honum er eiginleg: Bókin er tæpar 400 síður, svipuð að stærð og grund- vallarrit Jóhanns Bergers um endatafl (THEORIE UND PRAXIS DER ENDSPIELE) er kom út 1890 (fyrsta útgáfa) og síðari höfundar hafa mjög byggt á. Bók Keresar er ljós og lipur- lega rituð og hefur að geyma flest eða allt sem venjulegur maður þarf á að halda á þessu sviði skákarinnar. Um taflbyrjanir hefur Keres ritað tvær bækur: FRANSKUR LEIKUR (1. e4 e6) og OPIN TÖFL (1. e4 e5). Kunnáttumenn er til þekkja telja þessar bækur óvenju vel úr garði gerðar. Þar sé ekki aðeins fjallað um þær leiðir sem voru í tísku þegar bókin var rituð (eins og margar bækur um byrjanir geri), heldur kanni Keres einnig gamlar leiðir (sem hæg- lega geta komist í tísku aftur). Þótt nokkuð sé um liðið síðan þessar bækur voru skrifaðar munu þær enn góður grundvöll- ur þeim sem vilja komast ræki- lega niður í þessum byrjunum. Þeir Alexander Kotov og Keres rituðu saman bók um miðtafl. í sænskri þýðingu heitir hún LISTIN AÐ VINNA í SKÁK. Það er ekki stór bók en hún er fjörlega rituð og fróðleg á ýmsan hátt. Keres skýrði einnig margar af skákum sínum í því bindi af HEIMSSÖGU SKÁKARINN- AR (WELTGESCHICHTE DES SCHACHS) þar sem um hann er fjallað og birtar um 500 skákir hans. En mesta bók Keresar er skák- ævisaga hans AUSGEWAHLTE PARTIEN sem kom út í Hollandi 1964 en er rituð á Geller, Keres og Petrosjan í Göteborg 1955. SKÁK 57

x

Skák

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.