Skák


Skák - 15.02.1990, Side 31

Skák - 15.02.1990, Side 31
þessum árangri (stundum í félagi við annan eða aðra): Fyrstu verðlaun einu sinni, önnur verðlaun fimm sinnum, þriðju og fjórðu verðlaun einu sinni hvor. Á um 40 mótum öðrum, flestum all sterkum náði hann nítján sinnum að verða í efsta sæti en sjö sinnum náði hann öðru sæti. Keres varð þrívegis skákkóngur Sovétrikjanna: 1947, 1950 og 1951 og þarf ekki að geta þess að allt voru þetta feiknalega öflug mót. Meðal þeirra er hann skaut aftur fyrir sig þar voru Botvinn- ik, Bronstein, Geller, Petrosjan og Smyslov. Sem dæmi um hve lengi Keres var í allra fremstu röð má nefna að aldarfjórðungi eftir að hann vann einhvern eftirminnilegasta sigur (AVRO 1938) sigrar hann á mjög öflugu skákmóti í Banda- ríkjunum, móti sem er okkur íslendingum minnisstætt vegna góðrar frammistöðu Friðriks Ólafssonar: Piatígorskímótið í Los Angeles 1963: 1,—2. Keres og Petrosjan 8,5; 3.—4. Friðrik og Najdorf 7,5; 5. Reshevsky 7; 6. Gligoric 6; 7.-8. Benkö og Panno 5,5,. Að sjálfsögðu slípaðist og breytt- ist skákstíll Keresar nokkuð á langri leið. Hann Iagði niður þær glæfralegu byrjanir sem hann leyfði sér stundum að beita þegar hann var ungur, valdi yfirleitt klassískar byrjanir og var feikna vel að sér í þeim, enda var minnið nær óbrigðult. Jafnframt þjálfaðist hann í nákvæmni, þeirri list að spinna mikið úr litlu, tefla sveigjanlega, skipta einu hagræði fyrir annað, þessari list sem virðist gera skákina að ofur einföldum leik þegar vel tekst til. Við skulum líta á dæmi dæmi um þetta. Skák nr. 6380 Hvítt: Keres Svart: Portisch Skákþing í Bled 1961 (Minn- ingarmót um skákþingið 1931) Franskur leikur 1. e4 e6 3. Rd2 c5 5. Rgf3 Rc6 7. O—O Re7 2. d4 d5 4. ed5 ed5 6. Bb5 Bd6 8. c4 0—0 Fyrirmyndin að þessari byrjun gæti verið sótt í fræga skák Botvinniks við Boleslavskí frá árinu 1941. Þar var haldið þannig áfram: 8. dc5 Bxc5 9. Rb3 Bb6 10. Be3! Bxe3 11. Bxc6t bc6 12. fe3 0—0 13. Dd2 Db6 14. Dc3. Botvinnik vann þessa skák, en dr. Filip benti á að svartur gat náð allgóðu tafli með 14. - a5. 9. dc5 Bxc5 10. Rb3 Bb6 11. Bxc6 bc6 12. c5 Bc7 13. Rfd4 Hvítur hefur komið sér upp góðum framverði. Nú veltur allt á því að geta nýtt sér yfirburði sína á drottn- ingarvæng og neytt aflsmunar með peðum. Framvinda skákarinnar leiðir í ljós hvernig Keresi tekst að hrinda þessari hugmynd í fram- kvæmd með ýmiskonar smábrellum. 13. — Dd7 14. Hel Rg6 15. Bd2 Re5 15. - a6 hefði Keres svarað með 16. a4. En 15. - Ba6 kom mjög til greina. 16. Ba5! Bb8 17. De2 Db7 18. Bc3! Nú vofir 19. Re6 og 20. Bxe5 yfir svarti. Þá ætti hvítur góðan riddara gegn lélegum biskupi. 18. — Dc7 19. g3 Bg4 20. f3 Bd7 Nú strandar 19. Re6 á Rf3t 21. Rf5 f6 Svartur kærir sig ekki um 21. - Bxf5 22. Bxe5. 22. Rd6 a5 Hvítur hótaði að vinna drottning- una. Svartur lætur því peð en vonast eftir mótspili á þeim línum sem nú opnast. 23. Bxe5 fe5 24. Dxe5 Ba7 Ekki var hægt að taka f-peðið: 24. - Hxf3 25. Hfl Hxfl 26. Hxfl og ekki er unnt að verjast hótuninni Hf7. En nú hótar svartur a4. 25. Hacl Hxf3 26. Re4! Glettinn leikur sem vinnur peð. Ljóst er að nú myndu drottninga- kaup kosta svart skiptamun. Hann getur heldur naumast leikið 26. - Dc8 vegna 27. Rb6. 26. — Dd8 27. Rxa5 Bb8 28. Rxc6! Hvert bragðið kemur af öðru: 28. - Bxc6 29. De6t Kh8 30. Rd4!! (En ekki 30. Dxc6 Bxg3!) og nú 30. - Hf6 31. Rxc6 eða 30. - Bd7 31. Dxd5! 28. — Bxe5 29. Rxd8 Hxb3 Eða 29. - Bxb2 30. Hdl Hxd8 32. Hxd5 30. Hxe5 En ekki 30. ab3 Bd4t 30. — Hxb2 31. c6! Smiðshöggið. Biskupinn má ekki sleppa valdi á e8 og við 31. - Hxd8 er svarið 32. Hxd5 Hxa2 33. Hxd7 og SKÁK 59

x

Skák

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.