Skák - 15.02.1990, Blaðsíða 30
þýsku. Þar fylgir Kcres í þau spor
er Tarrasch markaði fyrstur
manna, bókin er jafnframt
hugsuð sem óformleg kennslu-
bók í skák. Skýringar við skák-
irnar eru afar vandaðar, ná-
kvæmar og ítarlegar. Bókin
hefur að geyma 100 úrvalsskákir
hans frá tímabilinu 1931 til 1958.
Hún er á fimmta hundrað síður
að lengd svo að rúmar fjórar
síður koma á hverja skák og er
þó mikið lesmál á hverri síðu.
Þessi bók er góður vitnisburður
um taflmennsku Keresar og ekki
síður um hugsunarhátt hans og
nákvæmni.
Keres hefur fengist við smíði
skákþrauta eins og Botvinnik,
Smyslov, Benkö og fleiri tafl-
meistarar og eru sumar þrautir
hans býsna snúnar. Hér koma
tvenn tafllok af léttara tagi.
Hin fyrri er frá því Keres var
tvítugur og hlaut lofsamleg
ummæli í ungverska skákblaðinu
árið 1936.
Hvítur á að vinna.
1. Rc2t Ka2 2. Rb4t Kal
3. Da2t ba2 4. Rc6!
Næst fer riddarinn svo til d4 og þá
getur biskupinn ekki varið báða
reitina c2 og b3.
1. — Bxc2
dugar heldur ekki:
2. Db8 Bhl 3. Dxb3 c2
4. Da3t Ba2 5. Dc3 inát.
Sama er að segja um
2. — Ka3
Þá vinnur hvítur með
3. Rd3! Bxd3 4. Dd6t Ka2
5. Dd5!
Sú næsta er frá 1946 og sýnir
laglega mátfléttu.
Hvítur á að vinna.
1. Rb4 a2 2. Rxa2 Kxc2!
Nú eru bæði biskupinn og riddarinn
í hættu. Leiki hvítur 3. Bel kemur
3. - Bd2! Annaðhvort verður hvítur
þá að taka biskupinn og getur þá
ekki lengur mátað, eða leika bisk-
upnum á brott og þá fellur
riddarinn.
3. Ba5! Kb3 4. Rb4 Ka4!
5. Rb7 Bd2
Nú virðist riddarinn vera að falla, en
þá kemur lokasveiflan:
6. Rc2! Bxa5 7. Rc5 mát.
VÍGREIF VÖRN
EFTIR H. VV. KELSEY
Bók sem allir bridgespilarar
verða aö eignast.
SKÁKPRENT
DliGGUVOGI 23 • SÍMI 31975
Og að lokum eitt skákdæmi eftir
Keres:
Hvítur á að máta í fjórða leik.
Komist hvíti biskupinn á horna-
línuna mátar hann, svo mikið er
ljóst. En svartur virðist geta
varist öllum tilraunum til þess:
t.d. 1. Bd2 Hc7, 1. Be3 Hd7, 1.
Bf4 Rf7 eða d6 o.s.frv. En með
því að nýta færin í réttri röð tekst
þetta: 1. Bg5 Hf7 2. Bf4 Rc6 3.
Bd2 og mátar í næsta leik.
Hvítur dró hrókinn til f7 þar sem
hann varð fyrir riddaranum, sem
þess vegna þurfti að fara til c6
þar sem hann stóð i vegi fyrir
hróknum. Svo einfalt var þetta.
Oft finnst manni lausn skák-
þrautar svo einföld - þegar
maður loks hefur fundið hana -
að maður furðar sig á hve Iengi
hún gat vafist fyrir.
12. Að leiðarlokum
Hér hefur verið stiklað á stóru,
einkum á síðari hluta skákferils
Keresar. Það yrði allt of langt
mál að fara að rekja feril hans
frá móti til móts - og gildi þess
reyndar vafasamt. THE OX-
FORD COMPANION OF
CHESS sem yfirleitt er nokkuð
áreiðanlegt rit telur að á tíð
Keresar hafi verið haldin tíu
skákmót er voru í 15. styrkleika-
flokki eða meira. Keres hafi tekið
þátt í átta þessara móta og náð
58 SKÁK