Bæjarblaðið Jökull - 30.04.2008, Side 7
Til hamingju, brautryðjendur
Það var mikill heiður að
útskrifa fyrstu nemendur
Grunnmenntaskólans á Snæ-
fellsnesi 19. apríl, síðastlið-
inn.
Það voru 23 nemendur
sem lögðu af stað í þessa æv-
intýraferð í haust á vegum Sí-
menntunarmiðstöðvarinrtar,
í samstarfi við Fræðslumið-
stöð atvinnulífsins og eru nú
komnir á áfangastað. Þegar
horft er til baka verður að
segjast að þetta hafi verið
bæði krefjandi og gefandi
leiðangur. Nemendurnir
geta verið rnjög stoltir af
sjálfum sér að hafa lokið
þessu námi og við, starfs-
menn Grunnmenntaskólans
getum aftur á móti líka verið
stoltir af því trausti sem
námsmennirnir sýndu okk-
ur. Mætingin var mjög góð
og enginn gafst upp þrátt
fýrir að fýrir flesta hafi þetta
verið auka álag á hinn venju-
lega dag. Vinnuandinn var
mjög góður og nemendurnir
voru alltaf reiðubúnar aó
prófa eitthvað nýtt og krefj-
andi. Skólinn fékk margar
gagnlegar heimsóknir og síð-
ast en ekki síst lögðu kennar-
arnir sig alla fram til að efla
þekkingu nemendanna og
auka sjálfstraust þeirra.
Allt sem nemendurnir
gerðu söfnuðu þeir í svokall-
aða færnimöppu sem er frá-
bær vitnisburður um það
sem þeir lærðu og gerðu í
vetur. Nemendurnir lögðu
mikla vinnu og alúð í náms-
efnið sitt og við erum viss að
þeir geta notað það aftur og
aftur í framtíðinni.
Framtíð námsmannana
getur orðið ófík. Við eigum
öll okkar drauma og áætlan-
ir. Grunnmenntaskólinn hef-
ur hjálpað þeim af stað sem
halda áfram í námi en hann
hefur líka hjálpað hinum að
efla sjálfstraustið og styrkja
stöðu þeirra á vinnumarkaði
og í lífinu.
Ég vona að Grunnmennta-
skólinn hafi opnað nýjar dyr
í lífi allra námsmannanna og
hjálpað þeim að sjá sig sjálfa
í nýju ljósi. Ég óska öllum
námsmönnunum góðs geng-
is á þeirra ævintýravegum
Sundnámskeib
fyrir börn sem eru fædd 2002 og 2003
Fyrsta námskeiðið 5.-9- maí
Annað námskeiðið 19. - 23. maí
Þriðja námskeiðið 26. - 30. maí
Allir tímar eru kl 17:10 - 18:00
Börnin eru ein með kennurunum
ofan í lauginni.
Verð íyrir námskeiðið er 2500 kr
Skráning í síma
894 2446 Sigrún og 661 8610 Snædís
hvert sem þeir leiða þá
áfram.
„Það er aldrei of seint að
vera það sem þú hefðir get-
að orðið“
Bestur kveðjur og ham-
ingjuóskir
Barbara Fleckinger, verk-
efnisstjóri Grunnmennta-
skólans á Snæfellsnesi
SNÆFELLSBÆR
Þar sem jökulinn ber viö loft...
Stjórnunarstöður
við leikskólann Kríuból á Hellissandi
Vegna mikillar frjósemi undir Jökli vantar okkur
í afleysingar leikskólastjóra og aðstoðarleikskólastjóra
við leikskólann Kríuból á Hellissandi.
Einnig vantar deildarstjóra á yngri deild.
Ráðningartími er 1 ár og æskilegt er að umsækjendur
geti hafið störf eigi síðar en 15. júní,
en deildarstjóri þarf að hefja störf í ágúst.
Leikskólinn er fyrsta skólastigið og annast uppeldi og
menntun barna á leikskólaaldri. Þar er lögð áhersla á
nám og þroska í gegnum leik og starf.
Gerð er krafa um að umsækjendur
séu með leikskólakennaramenntun.
Nánari upplýsingar fást hjá leikskólastjóra í síma 433-
6723 eða á skrifstofu Snæfellsbæjar í síma 433-6900
Skriflegum umsóknum ber að skila til skrifstofu Snæfells-
bæjar fyrir 20. maí n.k. Umsóknareyðublöð má finna á
heimasíðu Snæfellsbæjar, www.snb.is undir „Stjórnskip-
an" og „Eyðublöð"
Hellissandur er einn af þremur þétlbýliskjömum sem mynda sveitarfélagið
Snæfellsbæ. Snæfellsbær er ungt sveitarfélag sem vefur sig utan um Snæ-
fellsjökul: Staðarsveit, Búðir, Breiðuvík, Amarstapi, Hellnar, Hellissandur,
Rif, Ólafsvík og Fróðárhreppur. I góðu veðri er Hellissandur í tveggja
tíma akstursfjarlægð ffá Reykjavík - og veðrið er að sjálfsögðu alltaf gott
undir Jökli! Hér býr gott fólk sem er alltaf tilbúið til að bjóða nýja Snæ-
felfsbæinga velkomna. I Snæfellsbæ er sérstaklega falfegt umhverfi þar
sem Snæfellsjökul ber htest, cnda býður bæjarfélagið upp á afla flóru
landsins þegar kemur að landslagi, fúgla- og dýrafífi.
Utivist og íþróttir er hægt að stunda hvenær sem er ársins, skíði og snjó-
bretti, gönguferðir, golf, hestamcnnsku, sund og margt flcira. Nýtt glæsi-
legt íþróttahús er í Ólafsvík (9 km). Öflugt tónfistarlíf er í sveitarfélaginu
og félagastarfsemi með miklum blóma.