Alþýðublaðið - 23.02.1926, Síða 1
Gefið út af Alþýdtiflokknuin
1926.
Þriðjudaginn 23. febrúar.
46. tölublað.
Mótmæli
gegn ríkislögreglu.
175 alþingiskjósendur í Húsavík
hafa sent aljringi mótmæli gegn
því, að svo nefnd ríkislögregla
verði sett á stofn hér á landi.
Mótmælaskjalið hefir verið lesið
upp á alþingi.
Erlend simskeyti.
Leikfélag Reykjavikur.
A ntleið (Outward bonnd)
Sjónleikur i 3 þáttum, eftir Sutton ¥ane
verður leikinn i Iðnó á morgun (24. febrúar).
HSgT Leikurinn hefst með forspili kl. 73/r.
Aðgöngumiðar seldir i dag frá kl. 4 — 7 og á
morgun frá kl. 10 — 1 og eftir 2.
Simi 12. Simi 12.
Khöfn, FB., 19. og 20. febr.
Námumönnum bjargað
Frá New-York-borg er símað,
að mönnum þeim, er luktir voru
inni í Ohio-námunni (sbr. skeyti
16. þ. m.), hafi verið bjargað.
Rússar og afvopnunarmálið.
Frá Moskva er símað, að Rúss-
ar séu því mótfallnir, að afvopn-
unarfundurinn fari fram í Sviss,
og stinga þeir upp á því, að hann
verði haldinn í Kaupmannahöfn.
(Danir eru forgönguþjóð um af-
vopnun i framkvæmd.j
Einræði-stjörnin griska.
Frá Aþenuborg er símað, að
Pangalos hafi látið handsama
suma ráðherrana úr gömlu stjórn-
inni og bar því við, að þeir veki
óánægju meðal þjóðarinnar. Hefir
hann látið flytja þá út á dálitla
eyju í Grikklandshafi. Ofbeldisverki
þetta mælist illa fyrir, og fara
heimsblöðin hörðum orðum um
það.
Fjölkvæmi bannað i Tyrklandi.
Fr^ ’Miklagarði er símað, að
þingið hafi bannað fjölkvæni með
lögum.
Khöfn, FB., 21. febr.
Krónprinzinn vantar.
Frá Bukarest er símað, að óá-
nægjan yfir því, að krónprinzinn
sé alt af utanlands, fari sífelt vax-
andi. Hafa orðið blóðugar óeirðir
vegna þess, að fjöldi manna krefst
þess, að hann verði kallaður heim.
Óeirðirnar fara vaxandi. Stjórnin
óttast byltingu, og hefir konung-
urinn sent mann til Milano, en
þar er Carlos nú, og beðið hann
að koma heim.
Skriðuhiaup bana fólki í Utah.
Frá New-York-borg er símað,
að 115 manneskjur hafi beðið
bana: í skriðuhlaupi í ríkinu Utah.
Framleiðsiuvélar i stað gim-
steina.
Frá Moskva er símað, að fjöldi
gimsteinasala sé kominn þangað
í þeim tilgangi að kaupa gim-
steina og aðra dýrgripi gömlu
keisaraættarinnar. Eru dýrgripirn-
ir álitnir 50 millj. sterlingspunda
virði. Stjórnin ætlar að kaupa iðn-
aðarvélar og landbúnaðartæki fyr-
ir peningana.
Khöfn, FB., 22. febr.
Heimskautsflug ráðgert.
Frá Lundúnum er símað, að
ástralski heimskautkönnuðurinn
Wilkins ætli aö fljúga frá Bar-
rew-höfða í Alaska, yfir norður-
heimskautið til Svalbarða. Tvær
flugvélar ætla að reyna að komast
norður á heimskaut á undan
Amundsen. Hafa þær matarforða
að eins til hálfs mánaðar.
Verzlunarsamningur milli Rússa
og Norðmanna.
Frá Osló er símað, að stór-
þingið hafi nýlega samþykt verzl-
unarsamning við Rússland.
Khöfn, FB., 23. febr.
Ummæli Vilhjálms Stefáns- j
sonar um heimskautsfarir.
Frá New-York-borg er símað,
að Vilhjálmur Stefánsson álíti, að
heimskautsförin muni heppnast.
Sagðist hann ekki álíta, að það
væri sérstaklega hættulegt að
fljúga yfir heimskautssvæðið.
Vonandi verði bráðlega hægt að
senda póst til , Kína og Japan
þessa leið frá Ameríku.
Nýtt met i skiðastökki.
Frá Osló er símað, að í smá-
bæ í norðanverðum Noregi hafi
maður nokkur sett nýtt met í
skíðastökki. Stökk hann 70 metra.
íslenzkt viðvarpskvöld
i Danmörku.
(Tilkynning fró sendilierra Dana.)
Rvík, 12. febr.
Blaðið „Radiolytteren" skýrir f-rá
því, að síðast liðinn sunnudag hafi
á víðvarpsskemtiskránni verið „ís-
lenzkt kvöld“. Hjónin Dora Og Har-
aldur Sigurðsson aðstoðuðu. Enn
fremur hélt Guðmundur Kamban
fyrirlestur um sérkenni íslenzkrar
menningar.