Tímarit SÁÁ - nov 1977, Qupperneq 8

Tímarit SÁÁ - nov 1977, Qupperneq 8
þakkir fyrir hönd undirbúningsnefndar. Það þyrfti kjark til þess að stofna nýtt félag, þeg- ar eldri félög á ýmsum sviðum væru á heljar- þröm. Undirtektir almennings hefðu verið merkilegar. Allir væru meðvitandi um, að vandamálið snertir raunar hvern einasta landsmann. Hér væri um þjóðarvakningu að ræða. Vandamálið væri vaxandi og sífellt fleiri gerðu sér grein íyrir því. Hann ræddi nokkuð um fjölmiðla, þakkaði stuðning þeirra og hvatti þá til þess að láta í té fræðslu. Einnig þakkaði hann jákvæðar undirtektir margra vinnuveitenda. „Nú er tímabært að snúa vörn og undanhaldi í sókn. Berklaveikin var sigruð. Við erum nú í svipuðum sporum og braut- ryðjendurnir í baráttunni gegn henni. SÁÁ vill heilshugar samstarf við alla þá, sem vilja vinna gegn mesta meini aldarinnar,“ sagði Pétur að lokum. Fundarstjóri, Eggert G. Þorsteinsson, þakk- aði ræðumönnum, fundargestum komuna og frestaði stofnfundi til sunnudagsins 9. október. Einnig bað hann fundarmenn að láta nokkuð af hendi rakna til greiðslu á húsaleigu og öðrum undirbúningskostnaði. Gerðu fundar- menn það af slíkri rausn að á fundinum söfn- uðust kr. 445.800. Blómaskreytingar á sviði, sem voru frá Blómum og ávöxtum voru send- ar á deild 10, Kleppi, Vistheimilið á Vífils- stöðum og heimilið að Ránargötu 6. — EJ Pétt setinn Stúnasaltu^ Framhaldsstofnfundur Samtaka áhuga- fólks um áfengisvandamálið, SÁÁ, var hald- inn í Súlnasal Hótel Sögu, sunnudaginn 9. október 1977, og hófst kl. 2 e. h. Gagnstætt venju um framhaldsfundi, var Súlnasalurinn þétt setinn að þessu sinni, sem er gleðilegur vottur um hinn almenna áhuga, er þessari félagsstofnun hefur verið sýndur. Eggert G. Þorsteinsson alþingismaður, setti fundinn og kvaddi til fundarstjóra Jóhannes Magnússon, bankafulltrúa. Fundarritarar voru síðan skipuð þau Aðalheiður Bjarnfreðs- dóttir, formaður Starfsmannafélagsins Sókn- ar, og Eggert G. Þorsteinsson, alþingismaður. Þá var gengið til dagskrár. Sverrir Garð- arsson, hljómlistarmaður, skýrði lagadrög samtakanna, en þeim hafði verið dreift á stofnfundi hinum fyrri. Breytingartillaga frá undirbúningsnefnd, um fjölgun í aðalstjórn, ásamt tillögum um fáeinar orðalagsbreyting- ar, voru síðan einróma samþykktar, ásamt lögunum í heild, og eru þau birt annars stað- ar í blaðinu. Að lokinni afgreiðslu laga, var gengið til stjórnarkjörs. Sérstök uppstillingarnefnd lagði fram tillögu um 36 nöfn og var hún einróma samþykkt af fundarmönnum, svo og 5 nöfn til vara. Stjórnarinnar er sérstaklega getið á öðrum stað í blaðinu og verður því ekki tí- unduð hér; þá voru kjörnir endurskoðendur samtakanna. Þá voru tekin fyrir önnur mál. Smellinni, gagnmerkri tillögu frá Ásgeiri Hannesi Ei- ríkssyni, verzlunarmanni, um gengistryggða tekjuöflun, var vísað til framkvæmdastjórnar um nánari athugun. Samþykkt var að menn gætu gerzt stofnfélagar samtakanna til 1. nóv- ember 1977 og lágmarksárgjöld yrðu kr. 1.000 fyrsta árið. Stofnframlög væru þó frjáls, eða eftir efnum og ástæðum hvers og eins. Nokkrar umræður urðu um framtíðarverk- efni samtakanna og tóku þar til máls þau Pétur Sigurðsson, alþingismaður, Kolbeinn Bjarnason, ungtemplari, Valgerður Ágústs- dóttir, rukkari, og Árni Helgason, athafna- maður í Stykkishólmi. í fundarhléi hélt nýkjörin stjórn sinn fyrsta fund og kaus sér framkvæmdastjórn. Hana skipa: Hilmar Helgason, verzlunarmaður, sem er formaður samtakanna, Hendrik Berndsen, verzlunarmaður, JohnAikman, verzlunarmað- ur, Einar Sverrisson, verzlunarmaður, og Björgólfur Guðmundsson, forstjóri. Vara- stjórn: Ingibjörg Björnsdóttir, félagsrsáðgjafi, Eyjólfur Jónsson, skrifstofustjóri, og Sveins- ína Tryggvadóttir, verzlunarmaður. Nýkjörinn formaður samtakanna, Hilmar Helgason, tók síðan til máls. Þakkaði hann

x

Tímarit SÁÁ

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit SÁÁ
https://timarit.is/publication/2068

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.