Leikskrár Þjóðleikhússins - 05.01.1996, Page 33
Brot úr óbirtu samtali þriggja
fyrrverandi skólasystra á
Stór-Reykjavíkursvæðinu
Helga Brá:
Helga Gná:
Helga Brá:
Helga Mjöll:
Helga Brá:
Helga Mjöll:
Helga Brá:
Auðvitað er þetta meira en að segja
það.....en það var samt ég sem sagði
honum upp. Eða réttara sagt henti
honum út. Þetta gekk bara ekki lengur.
Ykkur að segja finnst mér algjör óþarfi að
ræða það. Það græðir enginn neitt á að
góna endalaust í baksýnisspegilinn.
Þú gast nú kynnt okkur fyrir honum....
Til hvers svo sem? Ég meina þótt við
séum ungar erum við samt ekki fæddar í
gær.
Ég sá nú aldrei nema myndir af honum.
Ókei. En stelpur, þegar ég hlusta á svona
tal fæ ég oft á tilfinninguna að þið séuð
með legusár af söknuði. Hvað er málið
eiginlega? Þið spólið alltaf í sama farinu.
Þetta er ekki heilbrigt! Farið dýpkar bara
smám saman og þannig grafið þið ykkar
eigin gröf.
Þú ert ekkert að skafa af því. En það er
alltaf gott að hafa einhvern til að halda á
sér.
Til hvers þá? Það er ekkert mál að halda
Helga Gná:
Helga Brá:
Helga Gná:
Helga Brá:
Helga Gná:
Helga Brá:
Helga Gná:
á sjálfri sér. Karlmenn eru nú ekki beint í
útrýmingarhættu þó að við séum hlut-
fallslega miklu fleiri.
Þegar minn fór var það eins og að deyja í
svefni. Þegar við vorum saman var ég
nefnilega aldrei með sjálfri mér, miklu
frekar bara með honum. Hafiði pælt í því
hvað það fylgir þessu stundum rosalegur
doði?
Já, einmitt. Þetta er eiginlega alltaf
hálfgerður vöggudauði.
Mér leið æðislega á eftir og léttist líka um
mörg kíló.
Alveg dæmigert fyrir þig eitthvað! Þið
áttuð nú aldrei neitt sameiginlegt. Þú ert
eins og þú ert og verður alltaf þannig.
Það var samt eitthvað við hann. Á tímabili
langaði mig meira að segja til að eignast
börn með honum. Ég meina.....til að við
yrðum nær hvoru öðru.
Sem betur fer varð ekkert að því! Börn
eru ekki neitt akkeri í samböndum eins
og sumir eru alltaf að halda fram. Ég blæs
á svoleiðis kjaftæði.
Það hefði samt verið gaman. Og ég er
ekki sá tækifærissinni sem leggst með
hvaða nýju tækifæri sem gefst. Þú hefur