Leikskrár Þjóðleikhússins - 05.01.1996, Page 34
alltaf farið upp í rúm með hverjum nýjum
möguleika.
Helga Brá: Ég sé ekki alveg hvað það káfar upp á
þig. Enda finnst mér jafn hallærislegt að
halda alltaf við þann sama og að vera
með eina sjónvarpstöð í staðinn fyrir
þrjátíuogtvær eða sex.
Helga Gná: Hvað meinarðu eiginlega!?
Helga Brá: Þú hefur alltaf verið svo fyrirsjáanleg.
Varst búin að mæla út og hanna týpuna
sem þú ætlaðir að vera með strax í
grunnskóla. Tilfinningasamband fyrir þér
er bara svona forrit. Og þegar þessi eini
rétti fór síðan frá þér líður þér eins og
rannsóknarlögreglumanni í Geirfinns-
málinu; heldur áfram að leita en finnur
ekki neitt.
Helga Gná:
Helga Brá:
Helga Mjöll:
Helga Brá:
Helga Mjöll:
Helga Brá:
Helga Mjöll:
Helga Brá:
Helga Gná:
Æ, góða. ég var nú ekki oróin kynþroska
þegar það mál kom upp.
Þú þarft ekki að taka öllu svona bókstaf-
lega.
Þurfið þið alltaf að búa til þessa há-
spennu og lífshættu þegar við loksins
hittumst? Er ekki hægt að ræða það sem
gerðist án þess að missa stjórn á sér?
Byrja þú nú ekki að væla enn einu sinni.
Þú sem lætur allt ganga yfir þig án þess
að segja eitt né neitt. Ferð aldrei alla leið,
gott ef þú hefur nokkurn tíma lagt af stað.
En ég kvarta ekki. Maður verður að taka
því sem að höndum ber eins og mann-
eskja. Það er ekki hægt að hafa stjórn á
öllu. Maður reynir bara af fremsta megni
að klæða ástandið af sér.
Þú vilt helst vera ósýnileg. Þú hvarfst líka
alltaf í skugga hans án þess að hann væri
beint að trana sér fram.
Mér finnst algerlega ástæðulaust að
blanda honum Guðmundi inn í þetta.
Jæja góða. Þú heldur samt ennþá við
hann í gengum þessa miðilsfundi skilst
mér. Eða er það með besta vini hans,
þunglynda gleðimanninum þarna?
Hvernig geturðu sagt svona við vinkonu