Leikskrár Þjóðleikhússins - 05.01.1996, Page 26

Leikskrár Þjóðleikhússins - 05.01.1996, Page 26
Helga I Stefánsdótdr, höfundur búninga, lauk prófi frá leikmyndadeild L'Accademia di Belle Arti í Róm árið 1989 eftir fjögurra ára nám. Aður hafði hún aflað sér víðtækrar reynslu í leikhúsi, m.a. sem nemandi í Listadansskóla Þjóðleikhússins og með leikhópnum Svörtu og sykurlausu. Helga hefur verið búningahöfundur við fjölda sýninga, s.s. A köldurn klaka eftir Ólaf Hauk Símonarson, (LR), Macbeth eftir Shakespeare (Frú Emelía), Bensínstöðin eftir Gildas Bourdet (Nemendaleikhúsið) og við kvikmyndirnar Svo á jörðu sem á himni eftir Kristínu Jóhannes- dóttur, stuttmyndirnarÆvintýri á okkar tímum, eftir Lísu Middleton og Nifl eftir Þór Elís Pálsson, Tár úr steini, eftir Ililmar Oddsson og nú síðast kvikmyndin Agnes eftir Egil Eðvarðsson. Leiksýningar sem Helga hefur gert bæði leikmyndir og búninga við eru m.a. Fló á skinni eftir Gerges Feydau (LR), óperurnar Systir Angelica eftir Puccini (Óperusmiðjan í sam- vinnu við Frú Emilíu), Dido og Eneas eftir Purcell í uppfærslu íslensku hljómsveitarinnar og sýningar Leikfélags Akureyrar á BarPari eftir Jim Cartwright og Óvæntri heimsókn eftir J.B Priestley. Hér í Þjóðleikhúsinu var Helga höfundur búninga við Stræti eftir Jim Gartwright og síðar á þessu leikári við Tröllakirkju eftir Ólaf Gunnarsson. Úlýúr Karlsson, höfundur leikmyndar, varð þrítugur í byrjun ársins. Ilann hefur starfað um árabil við leikmynda- og leikmunagerð fyrir sjónvarp, kvikmyndir, auglýsingar og leikhús. Fyrsta verkefni hans var sjónvarpskvikmyndin Nonni og Manni 1986 þar sem hann gerði leikmuni. Eftir það hefur hann unnið við gerð fjölda sjónvarpsmynda og var fast- ráðinn hjá Sjónvarpinu á árunum 1987-1991. Meðal verka hans má m.a. telja leikmyndir við stuttmyndina Asi og sjónvarpsmyndina Virkið, leikmuni við Víki- vaka, Dag vonar, Tilbmy, Næturgöngu, Steinbam og Sigla himinfley. Einnig gerði hann leikmuni við kvikmyndirnar Sódóma Reykjavík og Nei er ekkert svar. Ilann gerði leikmynd við leikritið Fiskar á þurru landi eftir Árna Ibsen og leikmuni við Hús- vörðinn eftir Harold Pinter, hvort tveggja hjá Pé-leik- hópnum. Árið 1991 hóf Úlfur nám í Myndlista og handíðaskóla fslands og lauk þaðan prófi af fjöl- tæknisviði á síðastliðnu ári. Hann hefur tekið þátt í ýmsurn myndlistarsýningum; í Nýlistasafninu 1994, og 1995 í samsýningum á Mokka, GULLKISTUNNI á Laugavatni og NORR/ENUM BRUNNUM í Norræna húsinu. Kirkjugarðsklúbburinn er fyrsta verkefni hans við Þjóðleikhúsið.

x

Leikskrár Þjóðleikhússins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Leikskrár Þjóðleikhússins
https://timarit.is/publication/2016

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.