Alþýðublaðið - 05.02.1920, Blaðsíða 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
Leikslokin.
Munu tiokkiir meta það
oiöammum til bóta
þó að Sjálfstjóra sendi af stað
svívirðingu Ijóta ?
Margur blekking biindaður
bar út iyga slaður.
Inn komst þó hann Ólafur
alþýðunnar maður.
Eftir mannorðsmorð og níð
nrörgum tapast friður.
Sjálfstjórn grætur gengna tíð
grafarbakkann viður.
Viskusmellin varð að ná
valdabrdiin klíka.
Fesgðarsvelli síðar á
Sjáifstjórn feiiur 'íka.
xh '20 Knútur hertogi.
Um áapn og Yeginn.
Yeðrið í dag.
Reykjavík, SV, hiti -í-0,3.
ísafjörður, A, hiti -í-3,7.
Akureyri, S, hiti 1,0.
Seyðisfjörður, S, hiti 3,2.
GrrímsstaÖir, SV, hiti —3,0.
Vestmannaeyjar, NNA, hiti 2,0.
bórsh., Færeyjar, SV, hiti 7,4.
Stóru stafirnir merkja áttina,
þýðir írost.
Loftvog lægst norður af Vest-
fjörðum; suðvestlæg átt; þýða á
Rorðurl.
Tii lítils. Sótt varnarn efndin
^rýnir fyrir mönnum, að fylgja
þeim reglum, sem settar hafa
verið um sóttvarnir. En hvernig
e‘ga menn að þekkja þær reglur,
^0gar þær haía ekki verið birtar
llettia í Lögbirtingablaðinu, sem
bltölulega mjög fáir lesa.
Skákþing Tslendinga hefst í
Rvik 7. apríl.
Ólafsson, eigandi Duus-
v®rzlunar, er jarðaður í dag í
^höfn.
^hugi mikill er vaknaður
háskólastúdenta á því, að
komið verði upp stúdentabústað
og háskólahúsi hið bráðasta. Er
slíkt varla að undra, því hvergi í
víðri veröld, þar sem háskóli er
á annað borð, mun slíkri stofnun
vera sýndur jafnlítill sómi og hér
á landi. Áfram, stúdentar! Berj-
ist til sigurs! i.
Skjöldnr kom í gær ofan úr
Borgarnesi. Með honum komu
þessir þingmenn, sem vér vitum
um: Stefán Stefánsson, Jón Sig-
urðsson, Pétur Ottesen, Pétur í
Hjörsey.
St. Skjaldbreið heldur fund
annað kvöld, samkv. auglýsingu
hér í blaðinu.
Kútter Yaltýr lagði út til
fiskiveiða í gær. Er hann fyrsta
þilskipið, sem byrjar veiðar á þess-
ari vertið. Skipstjóri er Pétur M.
Sigurðsson, einn af aflasælustu
þilskipaformönnum héðan úrRvík.
6 eða 7 þilskip eru að útbúa sig.
Prentviila var í klausunni um
togararia í gær. Þar stóð 6 kassar,
en átti að vera 600.
Bæjarstjórnarfundur er í dag;
hefst kl. 5 síðd. Á fundinum verð-
ur kosinn hafnargjaldkeri. Um þá
stöðu hafa sótt 24 menn. Hafnar-
nefnd hefir eftir tillögu hafnar-
stjóra mælt með því, að Sigurði
Þorsteinssyni (áður á bæjarfógeta-
skrifstofunni) verði veittur staafinn.
Sitt hvað úr
sambandsríkinu.
Flugmaður dáinn.
í nóvember fóru io danskir
flugmenn úr herliði Dana til Frakk-
iands til þess að kynnast fluglist-
inni þar. Vildi þá það slys til,
þegar einn af beztu flugmönnura
Dana Johansen (sergear.t) var að
æfa sig, að það kviknaði í vél-
inni og féll hún í Ijósura Iogum
til jarðar. Johansen liföi falliB, en
lést tveim tímum síðar.
Árekstur í írlandshafl.
Danska þrímastraða skonnoztan
„Zenitha" frá Svendborg var á
sigiingu í írlar.dshafi, A't í einu
urðu skipverjar varir við gufuskip
og rétt á eftir rendi það á „Zen-
itha“ og skenidí allmikið skipið,
en ekki þó svo að leki kæmi að
því. Af gufuskipinu ver nú hróp-
að: „Are you alí weil?“ (Er alt í
lagi?) Var þeirri spurningu svarað
neitandi frá skonnortunai, en gufu-
skipið hélt sfna leið þrátt fyrir
það, og þó þeir dönsku reyndu
að kalla á það með þokulúðrinum.
Sökum náttmyrkurs sást ekki nafn
gufuskips, og ekki einu sinni lag,
aðeins að skipið var dökkt að lit.
Stolið af þjóðmenjasafninu.
Mikla eftirtekt vakti þ-'.ð í Dan-
mörku í haust, að stolið hafði
verið fjöida af munum af þjóð-
menjasafninu. Komst brátt upp,
að mununum ölíum hafði stolið
byggingafræðingur einn ungur,
Mondrup Paulsen að nafni. Hafði
hann Ittið selt af mununum en
hafði þá heima hjá sér, sér til
gamans, eð því er hann sagði.
Marie Nielsen.
Margir munu hafa heyrt getið
danska bolsivíkans, Marie Nielsen
kenslukonu. Húo vsr handtekin í
fyrrahaust fyrir upphlaup og fyrst
dæmd í 18 mánaða betrunarhús,
en hæstiréttur færði refsinguna nú
fyrir skömmu niður í 6 mánaða
fangelsi. Sá, sem þetta ritar, var
viðstaddur þegar hún var hand-
tekin og sá hve svívirðilega lög-
reglan hagaði sér. Henni var al-
gerlega að óþörfu steypt niður
2 mannbæða háar steintröppur og
var hún þó með bandjárnum.
Málaflutningsmaður sá er hið op-
inbera hafði sett fyrir hana sótti
um náðun fyrir hana, en án henn-
ar vitundar, en er hún heyrði það
lýsti hún því yfir að hún tæki
ekki við náðun nemn aðrir sem
væru í fangelsum í Dsnmörku
væru einnig náðaðir.
+
Ágiriidin.
Ágirnd með sér bölvun ber,
blessun alla niður sker,
hún er ávalt, hvar sem er,
hornsteinn þess sem miður fer.
J.