Vonin - 28.08.2025, Side 10
kynningHELGA
Íþróttaleg, myndarleg og ekkert eðlilega efnileg. Já þetta eru
þrjú orð sem lýsa nefndarmeðlimum ÍÞRÓ best, og það má með
sanni segja að við séum lang fittasta nefnd skólans. Ég heiti
Helga Sif og er formaður ÍÞRÓ. Ég var svo heppin að vera tekin
inn í nefndina sem nýnemi og er því að hefja mitt þriðja ár í
þessari einstöku nefnd.
En hvað gerir ÍÞRÓ? Við skipuleggjum fjölbreytta
íþróttaviðburði jafnt og þétt yfir skólaárið, eins og golfmót,
handboltamót, fótboltamót og körfuboltamót. Við höldum einnig
mest INSANE vikur skólans þar sem seinni vikan endar á
skíðaferð til AK-city, og eru allir Verzlingar sammála um að
þessi helgi sé sú besta og eftirminnalegasta á öllu skólaárinu!
Vikurnar eru troðfullar af skemmtilegum viðburðum:
dancebattle, lipsync battle, körfuboltaleikur við MS, blindbox,
stjórnarbolti, yoga með Dóru Júlíu og margt fleira. Síðan getum
við ekki verið stoltari af golfmótinu okkar. Þar sem rómantíkin
blómstrar svo sannarlega milli busa og þriðja árs nema.
Nefndarvinna ÍÞRÓ er bæði fjölbreytt og skemmtileg. Þó má
ekki gleyma því hvað nefndin myndar líka sterk og góð
vinasambönd. Mér er óhætt að segja að bæði fyrrverandi og
núverandi nefndarmiðlimir ÍÞRÓ séu meðal nánustu vina minna.
Þar sem viðburðir nefndarinnar dreifast yfir allt skólaárið heldur
hópurinn sér vel saman. Hjá Íþró er alltaf stutt í fjör og gleði, og
þú getur alltaf treyst á tryllta stemningu með okkur. Við erum öll
svo ótrúlega spennt að taka móti ykkur og við hvetjum ykkur
hiklaust að skrá ykkur í busaviðtal til okkar.
Hlökkum til að sjá ykkur heilla okkur upp úr skónum!!!
LOVE ÍÞRÓ
VALDIMAR-ELSA-TÓMAS-EGILL-SESSELJA-ÓÐINN-VALUR
MAGNÚS
MARGRÉT-ÚLFUR-MARTA-NINJA-GUÐBERGUR-ÞÓRDÍS-INGA
Velkomin í Verzló kæru nýnemar, you made the cut. Þetta
verða ekki leiðileg næstu þrjú ár því get ég lofað. Þú ert eflaust
að velta fyrir þér hvernig þú getur eitt þessum árum í
skólanum og þar kemur Nemó til sögu.
Við höldum tvær vikur í skólanum fyrsta er Möffluvikan þar
sem nemendur gæðast á heimabökuðum möffins og vöflum .
Ekki nóg með það gerum við lag eða svökallaða “Möfflulagið”
sem hefur slegið öll met á landinu þegar kemur að tónlistagerð.
Síðan er komið að trailernum þar sem við kynnum leikstjóra
og söngleikinn sem hefur verið fyrir valinu í ár. Seinni vikan er
svo Nemó vikan, eða árshátíð nemenda þar sem við höldum
STÆRSTA menntaskóla söngleik og STÆRSTA ball á landinu
allt á einni viku.
Ýmindaðu þér þetta: þú mætir í leikprufur, kemst áfram, kemst
aftur áfram og færð að lokum hlutverk í söngleiknum. Þetta
eru þau sem gera söngleikin að veruleika og þetta væri ekki
hægt ef fólk eins og þú myndi ekki bara segja fuggid og skrá
sig í prufur, það hefur enginn séð eftir því.
Nefnd, Leikhópur og aldrei að síður undirnefndir, það eru þær
sem sjá til þess að sýningin gangi smurt fyrir sig. Þess vegna
þurfum við að stóla á þú sem lesandi mætir í eitthvað ef ekki
alltsaman. Ef þú ert enþá að lesa þetta er ég skíthræddur um
það að þú hefur brennandi áhuga á þessu og þess vegna ættir
þú að mæta í busaviðtal til okkar. Þegar öllu á botni er hvolf
kemur í ljós að þetta er bara eintóm hamingja og ekkert annað
en það.