Vonin


Vonin - 28.08.2025, Side 12

Vonin - 28.08.2025, Side 12
kynning Hæ litli busi. Velkominn í Verzló! Þú horfir kannski á orðið “Listó” og sérð fyrir þér einhverjar listaspírur, standandi í hring í cringe keppni á marmaranum með hávaða sem heyrist alla leið upp á fjórðu hæð…og þú myndir hafa hárrétt fyrir þér! En Listó er líka; endalausar klukkustundir upp í skóla, nóg af krísufundum, sómasamlokur í öll mál, alltof mikið af einkahúmór en mikilvægast af öllu: NÝJA FJÖLSKYLDAN ÞÍN. . Listafélagið setur upp leiksýningu á haustönn sem er frumsýnd í bláa sal í lok október. Ferlinu er svoleiðis hrint af stað fyrsta skóladaginn þegar að við frumsýnum trailer þar sem við tilkynnum loksins leikstjórana okkar OG verkið. Prufur hefjast þann sama dag og í lok vikunnar erum við komin með leikhópinn - jeij! Komst ekki inn í leikhóp? Heldur þú að það eina sem þurfi til að búa til leiksýningu sé leikarar og leikstjóri? WRONG. Á bakvið hverja listó sýningu eru hátt í 100 manns sem koma að framleiðslu hennar. Listó er nefnilega með svokallaðar undirnefndir sem eru ekki bara mikilvægur, heldur nauðsynlegur hluti af ferlinu. En ef að þú vilt fara all-in og verða partur af höfuðstöðvunum í þessu stóra ferli, þá mætir þú rakleiðis í busaviðtal til okkar. Nefndin sér um ALLT sem tengist sýningunni frá því að ráða inn leikstjóra að markaðssetningu, búningum, sviðsmynd, allar undirnefndirnar - you name it, we do it. Síðan má ekki gleyma bráðskemmtilegu Valentínusar Vikunni sem við höldum með Skemmtó!! Bara með því að vera í einni undirnefnd, mæta í prufur eða viðtal ertu strax farin að kynnast nýju fólki og koma þér inn í félagslífið. Það er ástæða fyrir því að conceptið “listófjölskyldan” er búið að vera til/thing í áraraðir. En sýningin er ekki það eina sem við gerum heldur höldum við líka VALENTÍNUSARVIKUNA í febrúar með skemmtó<333 Þannig plíís láttu sjá þig í prufum, viðtölum, öllu! Þú munt aldrei sjá eftir því;) TINNA SUNNEVA-VALA-GABRÍEL-HJÖRDÍS-SALKA-HEIÐAR-EMBLA BENEDIKT VÍÐIR-JARÚN-STEINDÓR-ÁRÓRA-SAGA-GUNNAR-NADÍA Verzlingur 1: „Shit, þetta var rosalegt.” Verzlingur 2: „Já ertu ekki að grínast? Þetta var bara það nettasta sem ég hef séð, og þessi bók, vá!” Ég vitna hér í samtal sem ég heyrði út undan mér 19. apríl síðastliðinn. Þetta var ekki eina svona samtalið sem ég heyrði, bókstaflega allir töluðu eins og þessir Verzlingar. Útgáfa Verzlunarskólablaðsins er ekkert grýn. Allir og amma þeirra tölta yfir götuna í Borgarleikhúsið, slást um sæti, bíða ofpeppuð, horfa síðan á útgáfuna og fá svo loks bókina í hendur. Vá, Verzlunarskólablaðið. Í þessari bók finnur þú allt sem einkenndi skólaárið sem var að líða og svo miklu meira en það. Við í V92 ætlum að sjá til þess að öllum líði svona á útgáfudeginum í vor. Við ætlum okkur stærri hluti en nokkru sinni hafa sést innan veggja Verzlunarskólans, og þú kæri nýnemi, ert velkominn með. Já, þú last þetta rétt, ÞÚ! Við tökum inn einn metnaðarfullan, drífandi og skemmtilegan einstakling á 1. ári. Ef þú vilt: a) Gefa út flottasta skólablað landsins. b) Vera í skemmtilegustu nefnd skólans. c) Eignast góða og trausta vini til eilífðar. Þá ert þú á réttum stað. En við takmörkum ekki okkar störf við eina 400 blaðsíðna harðspjaldabók sem er 10x flottari og dýrari (ókeypis fyrir nemendur samt) en öll önnur skólablöð landsins, heldur gáfum við út Snobbið í síðustu viku, gefum út Skeskó með Skemmtó í haust og hver veit nema við séum að elda annað verkefni á bak við luktar dyr…..

x

Vonin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vonin
https://timarit.is/publication/2078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.