Vonin


Vonin - 28.08.2025, Side 22

Vonin - 28.08.2025, Side 22
101 NÝNEMAVIDTÖ L Waddup kæri busi, nú er stóra stundin runnin upp, loksins komið að því....BUSAVIÐTÖ L. Þetta er fullkomið tækifæri til þess að láta ljós sitt skína og heilla nefndina sem þú brennur fyrir. Ekki vera smeykur við að skrá þig í viðtal því þú munt sko ekki sjá eftir því. Þú ert örugglega mjög stressaður en engar áhyggjur við höfum öll gengið í gegn um þetta og viti menn, þetta er ekkert mál! Hugsaðu bara að allir sem sitja yfir þér í viðtalinu voru á sama stað fyrir 1 eða 2 árum. Við í Viljanum erum hér til að leiða þig í gegnum þessi viðtöl og ef þú fylgir okkar ráðum áttu eftir að fara skítlétt með þau! Við skiljum að þú ert ábyggilega rosalega spenntur fyrir nefndunum og veist jafnvel ekkert hvaða nefnd þú átt að velja, svo þú skráir þig í öll viðtölin!!!.....wrong. Ekki gera þetta elsku busi. Einbeittu þér frekar að einni nefnd, þeirri sem þú hefur langmestan áhuga á. Þú getur t.d. kynnt þér fyrir stjórnarnefndunum hér á fyrri blaðsíðum í Voninni og fundið nefndina fyrir þig. Það fyrsta sem þú verður highkey að gera er að kynna þér fyrir nefndinni, lærðu nöfnin at least skiluru, það er alveg frekar illa séð að mæta í viðtal og vita ekki hvað allir í nefndinni heita. Þú VERÐUR að mæta vel undirbúinn, því það er aðeins einn busi tekinn inn í hverja nefnd. Þess vegna er langbest að skrá sig í eitt viðtal og einbeita sér að því. En hvernig áttu að undirbúa þig? No worries Viljinn has your back. Undirbúðu glærukynningu, texta, bækling, myndband o.s.frv. Sýndu nefndinni hvað þú hefur fram á að færa, nýjar hugmyndir, hvernig þú myndir framkvæma þær og afhverju hún ætti að velja þig yfir aðra. Hafðu gaman af þessu. Plís ekki koma með korters langa glærukynning það er ógaman. Nefndin eyðir svo miklum tíma saman, hún mun alltaf velja einhvern sem er skemmtilegur í viðtalinu í yfir eh leiðinlegan. Þetta er ekki eitthvað atvinnuviðtal, ekki svona deep, dont be boring og vertu viðbúin fyrir spurningum milli himins og jarðar. Okei þetta hljómar smá ógnvekjandi hingað til en það er samt lang mikilvægast að vera rólegur í viðtalinu. Það sem heillar nefndirnar er einhver sem er yfirvegaður og ófeiminn við að vera hann sjálfur. Auðvitað er eðlilegt að vera stressaður í viðtalinu, en af hverju, í alvöru talað? Þetta er bara spjall við fólk sem gæti orðið framtíðarnefndin þín. Be who you are elsku busi. svo mikid clutch

x

Vonin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vonin
https://timarit.is/publication/2078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.