Alþýðublaðið - 13.03.1926, Síða 3
3
ALÞYÐUBLAÐID
DagsferöHarfiindur
í Bárubúð á morgun, sunnudag, kl. 2.
Umræðuefni: Kaupdeila verkakvennafélagsins.
Mætið vel og stundvislega!
Sýnið skirteini! Stjðrnin.
Um daginn og vegisrn.
Næturlæknir
er í nótt Daníel Fjeldsted, Lauga-
vegi 38, sími 1561, og aðra nótt Ölaf-
ur Þorsteinsson, Skólabrú 2, sími
181.
Verbakvennafélagið „Framsökn“
heldur fund um kaupgjaldsmálið
annað kvöld kl. 8 í Góðtemplarahús
inu. Er skorað á allar verkakonur
að sækja fundinn, og væntanlega
verða konur vel við þeirri áskorun,
enda ríður nú mjög á samheldni
verkakvenna, og því betri sem hún
er, því vísari er sigurinn og stuðn-
ingur annarar alþýðu við verka-
konur í barátiu þeirra.
Landkjörið.
Auglýst er, að það fari fram 1.
júlí n. k.
Söngflokkur
„K. F. U. M.“ ætlar til Noregs
22. apríl með „Lyru“.
Stúdentafræðslan.
Cand. Brynjólfur Bjaruason flyt-
ur erindi um sögu jafnaðarstefn-
unnar kl. 2 á morgun í Nýja Bíó.
Ættu menn að fjölmenna þangað,
því að erindið verður vafalaust
fróðlegt.
Fiskifréttir.
Ferðamaður, nýkominn úr Kefla-
vík, sagði í fyrra dag mokafla þar
undan farna daga þá sjaldan á sjó
hefir gefið. 1 Sandgerði voru gæft-
ír góðar fram eftir vertíðinni, en
afli fremur tregur. Nú er nógur
fiskur þar úti fyrir, en mjög sjaldan
gefur á sjó. Hefir svo verið á aðra
viku, þar til í gær, að margir bát-
ar voru að veiðum og öfluðu vel.
Saltskip,
en ekki Villemoes, kom til Peter-
sens & Co. í fyrra dag. Villemoes
ifer i förum fyrir Landsverzlun.
Séra Halldör Bjarnarson
í Presthólum hefir nýlega fengið
lausn frá embætti.
Messur
á morgun: í dómkirkjunni kl. 11
séra Bjarni Jónsson, kl. 5 séra Frið-
rik Hallgrímsson. I fríkirkjunni kl.
5 séra Árni Sigurðsson. í Landakots-
kirkju kl. 9 f. m. hámessa, kl. 6
e. m. guðsþjónusta með predikun.
1 aðventkirkjunni veröur ekki mess-
að.
Togararnir.
Otur kom af veiðum í morgun
með 97 tunnur lifrar og Njörður
með 95. Tryggvi gamli kom frá
Énglandi í gærkveldi. Búist er við,
Umsöknir
um styrk úr minningarsjóði Sig-
ríðar Thoroddsen sendist ásamt
læknisvottorði til stjörnar Thor-
valdsensfélagsins (Thorvaldsens-
bazar) fyrir 25. þessa mánaðar.
Reykjavik, 12. marz 1926.
Stjórnin.
Stúdentafræðslan.
Á morgun talar
cand. Brynjölfur Bjarnason
um
sögu jafnaðarstefnunnar
kl. 2 i Nýja Bió.
-Miðar á 50 aura við inngang-
inn frá kl. I30.
Leyfi mér að minna á, að ég hefi
jafnan hús til sölu, og eins, að ég tek
að mér að selja hús. Það kostar
ekkert að spyrjast fyrir. Helgi Sveins-
son, Aðalstræti 11.
að Skallagrímur og Þórólfur fari
í dag á veiðar. Hafa þeir legið
nokkuð léngi. Skúli fógeti fer lík-
lega einnig bráðlega á veiðar.
Listasafn
Einars Jónssonat. Aðgangur ó-
keypis ki. 1—3 á sunnudögum. —
Enginn, sem þess á kost, ætti að
láta hjá líða að skoða þetta ágæta
safn. «
„Villemoes“
fór í gærkveldi áleiðis til Eng-
lands.
Næturvörður
er næstu viku í lyfjabúð Lauga-
vegar.
Veðrið.
Hiti mestur 1 stig; minstur .10
st. frost. Átt austlæg, rokstormur
í Vestm.eyjum, annars staðar frem-
ur hæg. Töluverð snjókomb í Stykk-
ishólmi. Loftvægishæð 72 mm. við
Norðausturland. Djúp loftvægislægð
við Suður-Grænland. Otlit: Austlæg
átt, hvöss á Suðvesturlandi, alllivöss
á Vesturlandi. tírkoma á Suðurlandi
og snjókoma á Austurlándi. í nótt
Herluf Clausen,
Simi 39.
,V0ti Tarzan‘
er komim.
sennilega suðaustlæg átt, allhvöss
og hvöss á Suður- og Vestur-landi.
Fyrlrspiarss.
Ég er atvinnurekandi. Einn af
verkamönnum mínum verður fyrir
slysum. Ég tilkynni það ekki hlutað-
eigendum. Fyrir hvað miklum sekt-
um get ég orðið, ef upp kernst,
samkvæmt slysatryggingalögunum?
Spurull nr. 2.
Svar.
Farðu þegar og skýrðu lögreglu-
stjóra eða hreppsstjóra frá slysinu,
því að fleirum en þú hyggur er
kunnugt um vanrækslu þína. Annars
máttu búast við, að þú kunnir að
verða sektaður samkv. 22. gr. slysa-
tryggingalaganna, 'se.m ■ ákveður
sektir við broti gegn lögunum 50
til 1000 kr. Bætur verða greiddar,
ef slysið er tilkynt innan árs frá
því, er það varð, sbr. 12. gr. lag-
anna.