Alþýðublaðið - 19.03.1926, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 19.03.1926, Blaðsíða 3
ALÞÝÐUBLAÐID 3 drykkja eða vera undir áhrifum þeirra við bifreiðaakstur. Bifrc'ð- arstjóri, sem ekur ölvaður eða brýtur gegn því ákvæði bifreiða- laganna að nema pegar staðar, ef slys verður við notkun bifreið- arinnar, skýra frá nafni sínu og heimilisfangi og hjálpa peim, er slasast hafa, ef þörf gerist, skal auk sekta sviftur ökuskírteini (þ. e. ökuleyfi) um ákveðinn tíma, eigi skemur en 6 mánuði, eða æfilangt, ef brot er margítrekað, valdið er verulegu slysi vegna öl- æöis eða miklar sakir eru að öðru leyti. Hins vegar heimilar frv. aukningu bifreiðahraða frá pví, sem nú er löggleyft í kaup- stöðum og slíku þéttbýli, úr 12 km. á klst. upp í 18, en annars- staðar í björtu úr 35 km. í 40. — Magnús dósent flytur frv. um, að heimilt sé að veita guðfræð- ingum frá-háskólum í Danmörku, Noregi og Svíþjóð prestsembætti hér á landi, ef guðfræðideild (ísl. háskólans, á hann víst við) mælir með því, og þeir fullnægja öðrurn seítum skilyrðum. Afvopnun samþykt. (Tilkynning frá sendiherra Dana.) Afvopnunarfrumvarpið var sam- þykt í þjóðþinginu með‘75 atkv. (jafnaðarmannaflokkurinn og ger- bótamenn) gegn 71 atkv. (vinstri- menn og íhaldsmenn). Um daginn og veginn. Væturíæknir er i nótt uiafnr Jírrso", Vcr.ar- stræti 12, simi 959. Bakarasveinafélag íslands heldur ársskemtun sína á morgun. Sjá auglýsingu hér í bláðinu f fyrra dag. Frá Vestmannaeyjum var símað í morgun, að afli væri þar lítill í net en góður á línu. Átt er suðaustlæg og mikið brim. Leiðrétting. í blaðinu'í gær misprentaðist nafn ísfirzka vélarbátsins. Hann heitir ..Frigg". Munið! Bellmanns-fyrirlestur Matthíasar Þórðarsonar í Nýja Bíó i kvöld kl. 7,30 til ágóða fyrir mannskaðasam- skotin. Miðar á 1 krónu og fást í Nýja Bíó eftir kl. 4 Togarinn Apríl konr frá Englandi í gær. Víðvarpið í gærkveldi tókst sæmilega vel; mörg hundruð manns söfnuðust fyr- ir utan glugga Hljóðfærahússins til að hlusta á sönginn og hljóðfæra- sláttinn. I kvöld leikur hljómsveit undir stjórn Emils Thoroddsens í víðvarpiö kl. 8 og hljóðfæraflokk- urinn hjá Rosenberg kl. 9 Verkfallið. Vinna liggur yfirleitt niðri á fisk-' stöðvunum. Verkakonur halda fast saman. Að eins í „Kveldúlfi" er reynt að halda uppi einhverju Hreins~ stangasápa er seld í pekkum og einstökum stykkjum hjá jillum kaupmönn- um. Enginl’alveg eins góð. Reyktar rauðmagi, oq mjólkurostur á kr. 1,50 pr. Va kg. Verzlun Hannesar Ólaf ssonar, Grettisgðtu 2. Simi 871. Sími 871. / vinnukáki, og var nokkrum utanfé- lagskonum laumað þar inn. um glugga í morgun eins og þýfi. Einar skálaglam: Húsið við Norðurá. IV. KAFLI. Majornum sýnd veiðln, en ekki gefin. Ekki hafa farið neinar sagnir af því, hvað þeim Eiríki-og Jóni fór á milli í stofunni. En það eitt er víst, að þeir voru báðir heldur en ekki kampakátir, er þeir komu út, og var auðséð á svip þeirra beggja, að þeir þóttust hafa leikið sæmilega hvor á annan. Það var og fullráðið, að Guðrún ætti á hverjum degi að koma til veiðihúss- ins og elda þar, og átti Jón að taka þriggja sterlingspunda umbun fyrir á viku. Þótti honum þar tekinn góður fengur á þurru lapdi. Jón hélt í einfeldni sinni, að Eiríkur gleddist af því einu að vera nú viðskila við eldamenskuna, en það grunaði hann ekki, að gleðisvipur Eiríks með augað stafaði aðallega af því, að majórinn greiddi honum fjögur pund á viku fyrir þetta, svo að Eiríki áskotnaðist þar eitt p.und fyrir ekkert. En þar skildi feigan og ófeigan, að Eiríkur vissi upp á hár, hvað í huga Jóns bjó ög olli gleði hans, því að það var Eiríkur sjálfur, sem hafði sáð til þeirrar ánægju. Hingað til hafði það alt af verið draumur Jóns, að einhver gleraugum skrýddur og innskeifur, nývígður guðfræðingur eða þá diplomatfrakka-búinn kaupfélagsstjóri með gúmmíflibba og hvíta slaufu með „gleymdu mér ei‘‘, saumaðri í hvert horn á henni, sigi hátíðlega upp að altari veglegrar timbur- » kirkju með Guðrúnu, en þar stæði stígvéla- gljáandi, sílspikaður, sýnodussækjandi hér- aðsprófastur með fálkakross á viðeigandi stað og keyrði þau í krafti laganna inn í ginið á heilögu hjónabandi einhvern tima seint og siðar meir, þegar ekkert væri hægf að græða á því lengur, að hún sæti heima. En nú hafði Eiríkur opnað honum nýtt og skínandi fagurt víðsýni yfir spánnýja mögu- leika, er gætu teymt hann og. hana fram að skörum voldugasta hásætis i heimi.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.