Alþýðublaðið - 27.03.1926, Side 1
Gefið út af Alþýðuflokknuna
1926.
Laugardaginn 27. marz.
74. lölublað.
Samningar milli atviimurekenda og verkakvenne
mmdirskrifaðir i gærkveldi.
Tilslakanir á báða bóga.
Frá því í íyrra dag höfðu stað-
ið yfir unileitanir urn sættir í
kauptleilufflii fyrir milligöngu
sáttasemjara. í gærkveldi var
J)éim umleitunum svo vel á veg
komið, að umboðsmenn samn-
ingsaðilja, þeir Jón Baldvinsson
og Ólafur Thors aljjingismenn,
gátu undirritað sanming þann, er
hér fer á eftir:
koinulags á baða bóga eins og
gerist í samningum. Auglýstur
kauptaxti verkakvenna er með
sanmingnum viðurkendur í fimm
atriðum: kvöldvinnukaupi og öll-
um fiskþvottar töxturn öðrum en
fyrir stórfisk og „Labra“ untíir
18 þuml., en aftur er slakað til
á tímakaupi í dagvinnu, nætur-
og helgidaga-vinnu og í fiskþvotti
eins og áður er sagt. Tilslakan-
irnar munu vera sem næst að
jöfnu á báða bóga.
Það var tilskilið við samnings-
gerðina, að verkfalli verkakvenna
og samúðarverkfalli verkamanna
skyldi af létt þegar i stað og
vinna hefjast k,1i. 6 í imorgun. Allar
sakir á báðar hliðar skulu niður
fallnar og verkbann, en jafnframt
séu skip togaraeigenda leyst úr
banni verkalýðsins í Englandi.
Aðalávinningurinn við þessa
niðurstöðu er sá, að verkakonur
hafa fengið fram kröfu sína um
hækkun á kvöklvinnu og að mestu
Jeyti taxta sinn í tiltölulaunavinnu
(,,akkorði“). Enn fremur hafa at-
vinnurekendur orðið að falla ofan
af því að ákveða kaupið emhliða.
Samtök verkalýðsins hafa og éflst
mjög í baráttunni, og það er nú
sýnt, að ef hann stendur samein-
aður um málstað sinn, þá hefir
hann sitt mál fram. Það er lær-
dómurinn af kaupdeilunni fyrir
framtíðina.
í
Samnmgua* milli verkakvennafélagsins
„Framkóknaru og „Félags islenzkra botn-
vörpuskipaeigeiida4*
1. gr. Kaupgjald kvenna skal vera:
A. Tímavinna:
Dagvinna frá kl. 6. f. m. til kh. 6 e. m. . . kr. o,80 á klst.
Kvöldvinua frá kl. 6 e. m. til kl. 8 e. m. . . — 1,00 » —
Nætur- og helgidaga-vinna ................— 1,10 » —
—: — r—'»— við uppskipun . . — 1,35 « —
B. 'Fiskþvottur:
Stórfiskur og langa.....................kr. 2,10 f. 100 stk
Smáfískur alt að 18 þum). ...... — 1,20 - 100 —
Ýsa . .................. . . ...........— 1,30 - 100 —
Ufsi . . ................................. - 1,45 - 100 -
Labradorfiskur 18 — 20 þuml............—^0,90 - 100 —
—»— undir 18 þuml............— 0,60 - 100 —
2. gr. Samningur þessí gildir til 1. oktöber 1926.
3. gr. Samningurinn er gerður i tveimur samhljóða eintökum, og held-
ur hvor aðali sínu eintaki.
Reykjavik, 26. marz 1926.
f. h. »Félags islenzkra botnvörpuskipaeigenda«
Ólafnr Thórs.
f. h. Verkakvennafélagsins »Framsökn«
Alþýðusamband íslands.
Jón Balduinsson.
Svo sem sjá má af samningnum, I felast í honum tilslakanir til sam-