Alþýðublaðið - 09.04.1926, Side 1
Gefið út af AJf>ýðuflokknuKn
1926.
Föstudaginn 9.
april.
82. tölublað.
FATAEFNI
verulega göð og falleg eru nýkomin. Sjövetlinga-
lopi, Blágrár lopi, sauðsvartur og mórauður, fást
daglega. — Bezt frá Álafossi.
Hafnarstræti 17. Slmi 404. Af0T. ÁlafOSS,
Hafnarstræti 17. Sími 404.
Vinum og ættingjum tilkynnist hér með, að maðui*-
inn minn, Kristinn Asgrimsson, andaðist 8. april að
heimili sinu, Laugavegi 111.
Ólafia S. Jónsdöttir.
Stört úrval af:
Hftrgreiðum, andlitssápum, ilmvötnum, hárburstum, fataburstum,
tannburstum, naglaburstum. — Andlitscréme, andlitspuður,
handáburður, hármeðal, .skeggsápur, ‘speglar alls konar, fila-
beinskmnbar. — Kjólaskraut, siðasti möður. — Tin- og plett-
vörur afarsmekklegar og ödýrar. — Koparskildir, leðurvörur
og gúmmivetlingar. — Nýjar birgðir með hverju skipi.
Komið og skoðiðt
Verzlimin Goðafoss,
Simi 436. Laugavegi S. Simi 436.
Ný bók! "Wm
Skjöna,
Fæst h|á ÍHlum bóksðlum*
dýrasaga eftir Einar Þorkelsson
fyrrv. skrifstofustjóra. Verð 1 krdna
Prentsm. Acta h.f.
Erlend sámskeyti.
Khöfn, FB., 9. aprík
Ensk aðalskona skaut á Musso-
lini.
Frá Rómaborg er símað, að
Mussolini sé lítið eitt særður. Hélt
hann stutta ræðu af veggsvöium
í dag og fer í dag til Tripolis.
Múgurinn er í algleymingi. Ensk
aðalskona hefir játað að hafa
skotið á Mussólini og hefir verið
sett í fangelsi.
Óeirðir svartliða.
Frá Feneyjum er símað, að ó-
eirðir séu þar í borg. Hafði slegið
í bardaga milli amerískra sjóliðs-
manna og svartliða og særðust
fjölda margir.
Hækkun dönsku krónunnar.
Stauning (forsætis- og verzlun-
armála-ráðherra jafnaðarmanna-
stjórnarinnar dönsku) væntir gull-
innlausnar árið 1927.
Þess skal geta, sem gert er.
Við getum ekki látið hjá líða að
minnast með nokkrum orðum
dugnaðar og hjálpfýsi Grindvík-
inga, er togarinn „Ása“ strandaði
þar 3. apríl s. 1. Þegar skipið var
strandað um nóttina og blés eim-
pípunni, brugðu þeir mjög fljótt
vio og voru eftir skamma stund
komnir með ljósker niður í flæð-
armál. 1 Jrá 11 tíma, sem við urð-
um að bíða í skipinu, var fjöldi
manns viðbúinn í fjörunni til að
nota hvert tækifæri, sem gæfist,
til þess að bjarga, og lögðu þeir
þrisvar á báti út í brimið, áður
en þeim tókst að ná duflj með
línu frá skipinu. Þegar strengurinn
var kominn í land stóðu margir
menn úti í sjónum í mitti til að
taka á móti okkur og hjálpa upp
fjöruna. Án þessarar góðu hjálpar
hefðum við aldrei komist allir ó-
meiddir í land. Þegar í land köm,
vantaði heldur ekki góðar við-
tökur; aliir fengu hressingu, og
föt manna voru þurkuð á skömm-
um tíma. Sérstaklega viljum við
beina þakklæti oklcar til rausnar-
hjónanna í Garðhúsum, Einars
Einarssonar og konu hans, sömu-
leiðis hjónanna á Járngerðarstöð-
um. Alt þetta fólk sýndi okkur
mjög mikla alúð og 'umhyggju,
sem við munum ávalt minnast
með þakklæti.
Skipshöfnin af s/s „Ásn“.