Alþýðublaðið - 27.04.1926, Page 1
Gefid út af Alfiýdufiokknuin
1926.
Þriðjudaginn 27. april.
96. tölublað.
Landhelgisbrot.
7 togarai* teknir.
„Fylla“ kom í morgun til Vest-
mannaeyja með 5 þýzka togara, er
hún tók að veiðum í landhelgi.
„Pór“ kom þangað einnig í morg-
un með 2 togara, annan þýzkan,
hinn belgiskan. Nánari fregnir ó-
komnar.
Erlenð simskeytí.
Khöfn, FB., 26. apríl.
Það var pá óttaefnið!
Prá Berlín er símað, að þýzk-
rússnesku samningarnir hafi verið
undirskrifaðir, og muni þeir að
líkinclum verða birtir um miðbik
þessarar viku. Gizkað er á, að
aðalinnihald þeirra sé staðfesting
á Rapollo-samningnum, og þeir
séu sáttmáli um hlutleysi.
Friðarhugur Rússa.
Frá Moskva er símað, að stj'órn-
in vilji stuðla að því að gera
beina hlutleysissamninga við önn-
ur ríki, þannig, að samið sé við
hvert ríki, en ekki mörg sameigin-
lega eða fyrir milligöngu Þjóða-
bandalagsins.
Vatnavextir.
Frá Moskva er simað, að mikill
vatnagangur sé í Moskvafljóti, og
sé flóð mikið á götum borgarinn-
ar. Flóðið nálgast Kreml.
Frá New—York-borg er símað,
um mikla storrna og flóð í Oklo-
hama og Texas. Mannskaðar hafa
orðið og eignatjón.
Verkbannið norska.
Frá Osló er símað, að verkbþnn-
ið snerti aðallega verkamenn í játtn-
dúkagerðar-; bygginga-, / klæðn-
aðar- og námu-iðnunum. Forystu-
menn verkamanna mæltu með
miðlunartillögunni, en lands-
bandalag þeirra er enn þá íhlut-
unarlaust.
Viðvarpsnotkun eykst.
Frá Lundúnum er símað, að
myndir og tékkávísanir séu nú
sendar þráðlaust til New-York-
borgar. Frá 1. maí verður víð-
varpið notað í verzlunarviðskift-
um.
Khöfn, FB., 27. apríl.
Ellen Key látin.
Frá Stokkhólmi er símað, að
Ellen Key sé látin. Hún var fædd
1849.
Frá loftfari Amundsens.
Frá Leningrad er símað, að loft-
skipið „Norge“ fari þaðan senni-
lega á föstudag.
Undirokun Sýrlendinga.
Frá París er símað, að Frakkar
beri hærri hlut í vopnaviðskiftum
í Sýrlandi.
Rússar og Norðurlönd.
Frá Moskva er símað, að stjórn-
in hafi sent Norðurlandastjórnun-
um tilkynningar um, að Rússland
vilji gera svipaða samúðarsamn-
inga við þau og Þýzkáland. Kaup-
mannahafnarblöðin álíta, að slíkir
sérsamningar myndu stuðla að
klofningi Þjóðabandalagsins.
Sundrung meðal svartliða.
Frá Berlín er símað, að alvar-
leg misklíð sé komin upp á milli
svartliða í Norður-ítalíu. Öflugir
áhangendur Farinacci hefja bylt-
ingaröldu gegn Mussolini.
Kolanámumálið brezlta.
Frá Lundúnum er simað, að
málamiðlunartilraunir stjórnarinn-
ar hafi enn engan árangur borið.
Illviðri i Suður-Evrópu.
Frá Róm er símað, að vetrar-
veður sé víða suður i Evrópu.
Vínakrar eru snjóþaktir, eignatjón
orðið af völdum storma. Kúpull-
inn á páfahöllinni^ er fokinn.
(Seinasta klausan er allmjög af-
hökuð í skeytinu, en á sennilega
að vera svo.)
Erindreki í bjorgunarniálum.
Fiskiþingið síðasta ákvað að
ráöa Jön E. Bergsveinsson sem
erindreka félagsins í björgunar-
málinu. Veitti þingið 5000 kr. á
þessu ári og 4000 á ári næstu 2
árin til erindrekastarfsins. Jón
heldur áfram síldarmatsstarfinu
eftir sem áður. Gert er ráð fyrir,
að Jón ferðist bráðlega til útlanda
og kynni sér nýjungar á sviði
björgunarmálanna hjá nágranna-
þjóðunum. Enn fremur er honum
ætlað að ferðast um landið (sjáv-
arþorpin) og fræða menn um
þessi mál.
Enginn vafi er á því, að mikil
þörf er á, að vel og viturlega sé
unnið að þessu nauðsynjamáli, og
ómetanleg framför verður það, ef
betra skipulag og. framkvæmdir á
þessu sviði gætu orðið ávöxtur af
starfi þessu- en galli verður það
að teljast, ef framkvæmdamaður
í björgunarmálunum tekur sér þá
stefnu að koma fram sem ákveð-
inn stéttarhagsmunamaður. Slíkur
maður má ekki halda úti málgagni
og gerast talsmaður ákveðinna
stétta og deila á Tiinar, sem hon-
um kynni að vera minna geð-
feldar. Slíkt er ógreiði við björg-
unarmálið. Það er ekki mál sér-
stakrar þjóðfélagsstéttar. Það er
alþjóðarmál. Framkvæmdarstjóri
björgunarmálanna verður því að
standa utan við dægurþras stjórn-
málanna og utan við deilur stétt-
anna. Svo bezt getur hann unnið
þessu máli verulegt gagn.
S. Á. Ó.