Alþýðublaðið - 15.05.1926, Síða 3

Alþýðublaðið - 15.05.1926, Síða 3
15. mai 1926. ALÞÝÐUBLAÐIP menn, er hingað koma, að þeir vinni ekki undir kauptaxta isl. verkamanna, en benti á dæmið frá Siglufirði, sem nýlega hefir verið sagt frá hér í blaðinu, um ágengni erlends atvinnurekanda við verkamenn þar, og sýndi fram á hættuna fyrir ísl. verkafólkið, ef erlent lausafólk væri flutt inn til að kúga niður kaup þess. M. G. kvaðst að vísu myndu verða yið áskoruninni, en bætti við af- sökun fyrir þá atvinnurekendur, sem reyna að þrýsta niður kaup- inu með slíkum innflutningi. Hann var svo sem ekki að hugsa um afkoiuu yerkamahnanna. J. Bakiv. andmælti þeim ummælum hans og sýndi fram á ósanngirni þeirra. Siðan var tillagan samþ. endan- lega með samhlj. atkv. Tillagan um símamannalauna- uppbótina var samþ. með 11 atkv. gegn 4 (J. A. J., J. Sig., P. Ott. og Þórarins, en J. Kj., Klemenz og Sveinn greiddu ekki atkv,). — Þessar till. voru afgreiddar í n. d. í gær, en þingsetubannstill. var feld í e. d. með 9 atkv. gegn 3 {Jónasar, Ingvars og Einars. Guðm. greiddi ekki atkv. og E. P. var fjarstaddur). Loks flutti Jón Baldv. þingsál.- till. í sameinuðu þingi þess efnis, að inanni væri bætt við í ráð- gjafanefnd íslendinga og Dana, og fengi hver þingflokka'nna mann í nefndina, svo að jafnrétti ti) áhrifa væri trygt eftir atvikum. Ætlaði og jafnaðarmannastjórnin danska og danska þingið að gera slíkt hið sama þar. — Auðvalds- flokkunum þótti þetta víst alt of mikil sanngirni og sáu þeir svo um, að tillagan kom ekki til at- kvæða, og var borið við tímaleysi. Önnur mál i neðri deild. Þar dagaði árásarfrx’. á land- helgissjóðinn uppi i gær eftir að það hafði sloppið til 2. umr. með eins atkv. mun. Talaði Jón Baldv. á móti því og P. Ott., en J. Magn. með. — J. A. J. fékk leiðréttingu á sögusögn, sem einhverjir tveir eða þrír menn vestra höfðu að frásögn hans tjáð honum, um skuldaruppgjöf, sem hann vissi áður ekki nema landsstjórnin kynni að hafa verið eitthvað við riðin. Var hann mjög hikandi, því að ekki var að 'vita, nema einhver kynni að minnast ó uppgjöfina miklu frá þeim tímum, sem hann var útibússtjóri Landsbankans á ísafirði. Eftir að Jón Þorl. hafði svarað honum nokkrum orðum, játaði J. A. J., að sér hefði verið skýrt rangt frá. Jón Baldv. kvaddi sér þá hljóðs, en P. Ott., sem þá Var í forsetasæti, bjargaði J. A. J. frá frekari hraluiingum með því að leika heyrnarleysingja, og lýsti umræðum lokið. — Tryggvi lét taka af dagskrá fyrirspurn sína um almenna atkvæðagr. í kaup- stöðunum gegn útsölu Spánarvína. Sama gerði Jörundur um þings- ályktunartillögu sína um landbún- aðarmálamilliþinganefnd, sem þá átfi að koma til 2. umr. Virðast slík svæfingarleyfi ekki benda á sterkan vilja til að knýja málin fram. Seðlaútgáfa og gengismál. Seðlafrv., sem sagt var frá hér i blaðinu í gær, fékk sömu afgr. i n. d. og áður i e. d., fór í gær gegn um þrjár umr. og var afgr. sem lög. Á ferðinni kom það við í fjárhn. Reyndi minni hluti hennar, Ásg. og H. Stef., við 2. umr. og síðar Tr. Þ. við 3. umr. að fella niður ákvæðið um fjárframlag til hindrunar gengissveiílum, en þar brást Ól. Th. þeim alveg, en gerði sig um leið beran að því, að vilja lækkun krónunnar. Jón Baldvinss. flutti br.till. um, að úr þvi seðla- réttur íslandsbanka væri fram- lengdur á annað borð, þá, næði framlengingin til 1928, þar eð reynslan frá þessu þingi benti á, að óvíst væri, að bankamálin yrðu fremur afgreidd á næsta þingi með næstum sömu þingmönnum, og væri því rétt að gefa þjóðinni kost á að greiða atkv. urn þau við næstu almennar kosningar. Einnig benti hann á, að varhugavert væri að grautá í gerðum samningum við íslandsbanka með því að veita honum óbeðið undanþágu frá inndrætti seðla þetta ár. Flutti hann aðra till. um brottfellingu Melis í 25 kg. kössum. Strausykur í 50 kg. sekkjum. Haframjiil. Hrisgrjón. Hveiti. Margar tegundir. Verðið ötrúlega lágt. Crunnar Jónsson, Simi 1580. Vöggur. I þess ákvæðis úr frv. Síðar tók Jör. Br. upp till. Ingvars, þá, er feld hafði verið í e. d. (sjá blað- ið í gær!). Engin þessara br.tilí. náði fram að ganga. Jón Þorl. kannaðist við, að frv. þetta væri frá sér, þó að íhaldshluti fjár- hagsnefndar e. d. bæri það fram. Efri deild. Þingsál.till. um fjárveitingar- heimild til veiðivatnarannsókna dr. Reinsch var endanlega samþ. þar í gær. Lagasetning. Auk seðlaútgáfulaganna var sú- síðust lagasetning þessa þings, að e. d. afgreiddi þessi fern: um stofnun happdrættis, vörutolls- lagabreyt., síldarsölufélagslög og hlunnindalög óstofnaða bankans. Endaði þetta þing þannig eins og við var að búast af því, svo sem það var samsett að mestum hluta. Happdrættið og síldarsölufrumv. • skriðu út úr deildinni með eins atkv. mun. Svo er sagt, að Ingi- björg hafi hringvent í síldarsölu- málinu og gengið út síðan áður en til úr^yta kom. Gegn happdrættis- frv. greiddu atkv.: Ágúst, Einar, Ingvar, Jónas, S. E. og 1. H. B., en að eins Einar, Ingvar, Jónas og Guðm. gegn bankafrv. J. M. var fjarstaddur i fyrra skíftjð, en I. H. B. hið síðara, Sameinað þing. Faðmlög íhalds og ,Framsóknar‘. Þar var i gær kosningafundur á milli deildarfundanna. Var fyrst samþ. hátíðarnefndartill. þeirra Ásgeirs og Jakobs, en feld br.till. Jóns Þorl. um að Þingvallanefnd- in, sem áður var (fornmenjavörð- ur, húsameista'ri ríkisins og vega- málaStj'órinn), starfi áfram að við bættum fjórurn mönnúm. Munaði þvi, að Þórarinn og E. P. voru fjarstaddir og Árni og, Ól. Th. sátu hjá. Þegar til kosninga ‘kom, neituðu „Framsóknar“-flokksmenn samvinnu við Jón Baldv., sem fór þó að eins fram á að tilnefna einn mann í nefndina, en tóku heldur 3 íhaldsmenn nauðuga aft- an á lista sinn. Lagði þá Jón Baldv. fram lista með Pétri G. mundssyni einum á, en sá listi fékk að eins atkv. hans sjálfs. Á „Framsóknar'-Iistanum voru: Ásg., Jónas, Sig. Egg., Jóhannes,

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.