Alþýðublaðið - 15.05.1926, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 15.05.1926, Blaðsíða 4
4 ALÞÝÐU2LA1IÐ Magn. dósent og Ól. Th. Kom hann öllum aö á 18 atkv. (sínum og fyrrv. ,,Sjálfstæðis“), en á 19. seðlinum var eitthvert krot, sem Jóhannes gafst upp við að lesa. Seðlar íhaldsmannanna 19 voru auðir. Jóhannes vildi fyrst ekki hlíta því, að vera kosinn á þenna hátt og skoraðist undan kosningu. Ásgeir hóf þá bónorð til hans fyrix hönd „Framsóknar“, að hann yrði kyrr í nefndinni, og lét Jó- hannes það þá eftir honum. — Jóhannes, Jónas og Bjarni frá Vogi voru kosnir í dánsk-ís- lenzku ráðgjafanefndina til næstu 8 ára, Klemenz og Guðm. iand- iæknir í fálkaorðunefnd til næstu 6 ára og Jörundur, Magn. dósent og Árni frá Múla endurskoðendur landsreikninganna — allir án at- kvæðagreiðslu. ihaldsflokkarnir mátust ekki um sætin þá stundina. Þingmálin. • Fyrir þingið komu 87 frv., en 51 lög voru afgr., 16 frv. feld og visað frá, 2 vísað til stjórnarinnar, en 18 döguðu uppi. Fyrir þingið komu einnig 36 þingsál.till. Þar af voru 15 samþ. og 8 vígað til stjórnarinnar. Alls hafði þingið 127 mál tii meðferðar, en minstur hluti þeirra, sem framgangi náðu, kemur alþýðu að nokkru verulegu gagni. Þingslit. Þegar Ben. Sv. sleit síðast fundi i n. d., kvað hann þingið hafa verið með spakara móti „héma megin veggjarins", en í e. d. sag'ði H. Steinss., að þeirri deild væri ekki um að kenna, þó að þingið hefði dregist nokkuð á Ianginn. „Hverjum þykir sinn fugl fagur.“ E. d. menn stóðu upp i móti H. Steinss. að skilnaði, nema Jónas sat sem fastast og var það vonlegt, því að þar hefir mest í odda slegr ið þar í sveit. — Þingi var slitið í dag, og munu afnám húsaleigu^ laganna og „Kára“-gjöfin vera helztu minnismerki þess. „Ný dagsbrún“ heitir nýtt jafnaðarmannablað vél- ritaö, Ábyrgðarmaöur er Markús Jönsson, Bergþörugöíu 10. Þar fæst 1. tbl. á 25 aura. Pétur G. Guðmunds- son hefir véritað blaðið og er það mjög greinilegt aflestrar. í þvi eru ýmsar útlendar og innlendar fréttir og greinar, sern allir ættu að lesa. Kolanámuverkfallið i Engiandi. Algert verkbann. Thomas sagði í þingræðu, að í rauninni væri um algert verkbann að ræða í landinu. Fjórar milljón- ir manna eru nú atvinnulausar í iandinu, og fjöldi manna sveltur. Afleiðing ófyrirsjáanleg. Baldwin skorar á atvinnurekendur að nota ekki ástandið í eiginhagsmuna- skyni. Stjórnin veiti enga aðstoð til kúgunartiirauna gegn verka- mönnnm. Blöðin og skynsemin. Blöðijn í morgun voru vélritaðar smáútgáfur og stendur í þeim, að svo virðist sem öll heilbrigð skyn- semi manna sé hverfandi. Flett ofan a£ afturhalds-bylt- ingartilraun. Lögreglan hefir uppgötvað und- irbúning undir stjórnarbyltingu af hálíu keisarasinna með aðstoð svo kallaðra íþróttafélaga. Erhardt kapteinn var aðalforingi þeirra. Neumann borgarstjóri í Líibeck átti að verða einveldismaður, er Hindenburg hefði verið steypt og stjórnarskráin feld úr giidi. Hús- rannsóknix hafa farið fram mjög Khöfn, FB., 14. maí. Ný árás á verkalýðinn. Verkfallið byrjar aftur. Frá Lundúnum er símað, að útlitið hafi versnað, sumpart vegna þess að verkamenn hafa gert mótspyrnu gegn afturköllun verkfallsins, en sumpart vegna þess, að atvinnurekendur hafa gert tilraun til launalækkunar. Mörg verkalýösfélög hafa opinber- lega tilkynt verkfall. Miklar æsingar eru við höfn- ina í Lundúnum og á Doncaster- kolanámusvæðinu. I fyrra dag komst upp um til- raun til þess að sprengja í loft upp hluta af járnbrautarteinun- um á milli Edinborgar og Glas- gow. Khöfn, FB., 15. maí. Alt á ringulreið. Frá Lundúnum er símað: Vinnu- ástand er á meiri ringulreið en var á seinustu dögum allsherjarverk- fallsins. Verkamenn hafa sums staðar gert aðsúg að foringjum sínum og heimtað áframhald alls- herjarverkfa 11sins. í Poplar (í East End í Lundúnum) leituðu foringj- arnir aðstoðar lögreglunnar, og voru 40 ófriðarseggjanna hneptir í fangelsi. Arás á samtök verkalýðsins. Margir atvinnurekendur, þar á meðal járnbrautarfélög, neita að talrn verkamenn aftiu', nema þeir segi sig úr verkamannafélögunum, en aðrir heimta launalækkun. Mið- stjórn verkainanna telur þetta drápstilraun við samheldni verka- manna. Erlend simskeyti. Um heimskautsflugið bárust FB. þessi skeyti 12. mai: Frá Osló er símað, að margir óttist, að Byrd geri tilraun til að fljúga til Alaska á undan Amund- sen. Frá Kingsbay er símað, aÖ menn trúi því alment, að Byrd hafi flogið yfir heimskautið. Hann sá ekki land og að eins fáar og smáar sprungur í ísnum. Síðarl fregnir sama dag: Loft- skipið hefir fengið nokkurn mót- vind. Um miðnætti var það á 80. stigi norðlægrar breiddar. Létt þoka. Enn síðar um daginn: Amund- sen fór yfir norðurheimskautið klukkan eitt í nótt. Khöfn, FB., 13. maí. Þegar loftskipið „Norge“ fór yf- ir heimskautið, var norska, ítalska og ameríska flagginu varpað fyrir borð. Engar fregnir hafa komið frá loftskipinu síðasta dægur. Sennilega er það á leiðinni til Ala- ska. Samkv. símskeyti til FB. frá Kaupmannahöfn, dagsettu í gær/ þ. 13., kl. 19,34, hafði verið símað til Hafnar frá New York, að sést hefði til loftskipsins frá Point Barrow. Þýzka stjörnin fallin. Frá Berlín er símað, að stjórn- in sé fallin. Vantraustsyfirlýsing var samþ. með 176 atkv. gegn 145.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.