Alþýðublaðið - 04.06.1926, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 04.06.1926, Blaðsíða 3
ÁLBÝ8UELAÖID 8 sem þetta kemur fyrir? Því er fljótsvarab. Það er fyrir þá sök, að togararnir eru ekki reknir með hag heildarinnar fyrir augum, heldur eru það örfáir menn, sem geta ráöið því, hvenær togar- arnir eru látnir hætta veiðum, og þá alt af borið við, að rekstur þeirra beri sig ekki. Þarna kemur í ljós, hvílíkt fyr- irkomulag það er, sem við bú- um við, eða vill nokkur maður með óbrjálaða skynsemi halda því fram i alvöru, að það sé rétt, að þúsundir manna svelti fyrir að- gerðir örfárra manna? Ég held, að þeir verði fáir, sem fengjust til að halda því fram sem góðu og gildu. En þannig er því saint varið, og þannig verður það, á meðan þetta gamla og rotna þjóð- félag verður við líði. Því er það, að allir sannir jafnaðarmenn berj- ast fyrir gerbreyttu þjóðskipulagi, og þeir fara ekki með skoðun sína í neina launkofa. Þétta veit allur heimurinn, og þess vegna eru jafnaðarntenn ofsóttir og hat- nðir af auðvaldinu, þessum sam- eiginlega óvin alls verkalýðs heimsins. Ég ætla ekki að fara að deila með mörgum orðum á eigendur togaranna. Það kemur kann ske tírni síðar, þegar þeir veröa krafð- ir reikningsskapar ráðsmensku sjnnar. En ég vil beina orðum mxnum til ykkar, verkantenn, sjó- menn og verkakonur! Finst ykkur ekki tími til kominn að taka í taumana? Hafið þið gert ykkur það ljóst, hvað það er, sem bíð- ur ykkar í suntar? Það er ekkert annað en það, að þið fáið enga vinnu, hvorki til sjós né lands, og hverjar verða afleiðingarnar af því? Hungur fyrir sjálfa ykk- ur, konur og börn. Hungur — það er hryllilegt orö og stórt, en þetta kemur áður en ntann varir, ef við verðum svift atvinnu okkar, og ekkert verður aðhafst. En hvað á þá að gera? mun margur spyrja. Það á að þjóðnýta togaraflotann, eða meö öðrum oröum: Það verður að taka tog- arana eignarnámi og láta ríkið eða bæjarfélagið gera þá út. Ég býst við, að þetta fáist aldrei með góðu, en þá verðum við að gera það með valdi. Við veröum að selja líf og heilsu barna okkar og annara dýrara en það, að viö látum örfáa menn taka það af okkur til að geta svalað gróða- fíkn sinni. Burt með þetta rotna og ó- mögulega þjóðskipulag! Veltum því í rústir og byggjum upp ann- að nýtt, þar sem allir fá aÖ vinna, sem vilja og-geta unnið! Og að endingu: Hafið hugföst orð eins af okkar góðu skáldum: Láttu pér skiljast: Ef hötið þú hikar og hugsar ei nema um fötlengdar- málið, að harðstjörans morðvopn að höfði pér blikar og hendir þér ofan í logandi bálið. Atvinriulaus verkamctður. Um daginn og veglnn. Nœturlæknir er í nótt MagnúS Pétursson, G.rundarstíg 10, sími 1185. Hljómsveítin þýzka Á hljómleikum hennar á morgun verður leikin 7. simphonie Beet- hovens, sem svo mikið þótti til koma á hljómleikum sveitarinnar í Oslo og Björgvin. Auk þess verður leikinn forleikurinn að „Coriolan", sem sérstaklega þótti mikið til koina á 1. hljómleik sveitarinnar hér. Eru það tónar fullir ásökunar, ör- væntingar og sorgar í samræmi við sjónleikinn eftlr Collin. Guðspekifélagið. Fundur í kvöld kl. 8V2 stundvís- lega. Deildarforseti segir frá fund- arhöldum í Adyar (frh.). Engir gestir. Frá bæjarstjörnarfundi. Stefán Jóh. Stefánsson bar fram tillögu á bæjarstjórnarfundinum í gærkveldi þess efnis, að bæjar- stjórnin bjóði hljómsveitinni þýzku i skemtiför í bifreiðum. Því tóku allir vel nema Björn, sem var orð- inn heitur af kongsko.numóði. Hann kvað búið að gera nóg fyrir þá með því að veita þeirn styrkinn. St. J. St. minti á, að hljómsveitarmennirnir eru gestir bæjarins, og að gildi heimsóknar þeirra er alt annað en konungskomunnar. Var tillagan sið- an samþykt með 8 atkv. gegn 1 (Bjarnar). — Sarnþ. var að grensl ast eftir kaupverði á Landakots- túnum undir háskóla og stúdenta- garð. Munið eftir deildarstjórafundi „Dags- brúnar" annað kvöld. Hljöðfærahúsið biður þess getið, að þeir um- beðnir aðgöngumiðar að liljómleik Henry Eriehsens á laugardaginn, fi£7S — - Verzl. BjSrn Kristjánsson. Smáverur i fjölbreyttu úr\'ali. Vaxdilkar. Sjúkradukas*. Alþýðuflokksfólk! Athugið, að auglýsingar eru fréttir! Auglýsið þvi í Alþýðublaðinu. sem ekki eru sóttir fyrir ki. 12 á laugardag, verði þá seldir öðrum. Ólafur Þorsteinsson læknir fór ekki með Lyru í gær. Landhelgissektir. Tveir þýzku togararnir, sem „Þór“ tók síðast, hafa verið . sektaðir um 12 500 kr, hvor, auk afiá og veiðar- færa. Fru Jönina Jónatansdóttir, annar maður á landskjörslista Al- þýðuflokksins, er á ferðalagi norðan lands. Verður hún m. a. á landsfundi kvenna á Akureyri.. Veðrið. Hiti mestur 10 st„ minstur 4 st. Átt yfirleitt norðlæg og austlæg, fremur hæg. Loftvægislægð fyrir sunnan land. Útlit: Austanátt, all- hvöss við Suðausturland, úrkomu- laust á suðurhíuta Vesturlands, úr- koma víða annars staðar. 1 nóit á austan og norðaustan. Kristjáni Bergssyni er óþarft áð láta birta skröksög- ur í „Vísi“. Þá einu leiðréttingu, sem var í klausu hans, birti Alþbl. þegar. Hitt mun síður en svo auka álit hans meðal sjómanna, að hann hefir nú soramarkað sig auðvalds- stéttinni, en þá auglýsingu þótti Aiþbi. óþarfi að flytja. Til Valtýs. Ekki þarf Valtýr að vera grobbinn yfir þvi, að Alþbl. hafi tekið eftir „Mgbl.‘ fréttina um, að Ólafur læknir Þorsteinsson ætlaði utan i géer. Alþbl. er svo vel kunnugt um, hve lítið er að marka margar af fréttum „Mgbl.“, bæði innlendar og útlendar, að ,því þótti vissara að spyrja landlækninn um, hvort það segði satt í þetta skifti, og vissi hann þá ekki annað en svo væri. Hins vegar hefir Alþbl. staðið „Mgbl.“ að því að tína saman frétt- ir úr Alþbl., en það hefir ekki komið að sök, því að þær fréttir hafa jafn- an reynst réttar.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.