Alþýðublaðið - 26.07.1926, Blaðsíða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ALÞÝÐUBLAÐIÐ j
kemur út á hverjum virkum degi. !
Afgreiðsla í Alpýðuhúsinu við :
HverSisgötu 8 opin Srá kl. 9 árd. ;
til kl. 7 síðd.
Skrifstofa á sama stað opin kl. •
9Va—10Va &rd. og kl. 8-9 síðd.
Simar: 988 (afgreiðslan) og 1294 •
(skrifstofan).
Verðlag: Áskriftarverð kr. 1,00 á
mánuði. Auglýsingaverð kr. 0,15
hver mm. eindálka. ;
Prentsmiðja: Alpýðuprentsmiðjan í
(í sama húsi, sömu símar).
Reykjavík sementslaus.
Næstum hálfur mánuður er nú
libinn svo, að ekkert sement hefir
verið tii í sementsverzlununum
hér I Reykjavík. Hefir af pessum
sökum vinna víðast stöðvast alveg
við húsabyggingar í bænum,
nema þar sem að eins lítið eitt
hefir þurft af sementi til að Ijúka
við þær, og við Landsspítalann
og Klepp.
Hallgrímur Benediktsson se-
mentskaupmaður kvað hafa fengið
iítið eitt af sementi hingað og
þangað að, t. d. nú á föstudag-
inn a. m. k. 50 tunnur frá Korp-
úlfsstöðum, og hafi selt þær til
spítalabyggingarinnar á KJeppi.
Einnig hafi hann fengið 300 tn.
vestan af fsafirði> sem hann hafði
áður selt Jrangað á kr. 14,50 tunn-
una, en nú kosti hún um 20 kr.,
þegar hún er komin hingað aftur.
Einnig kvað hann hafa fengið eitt-
hvað af sementi ofan úr Borgar-
firði og jafnvel víðar að. Ekki
kvað verzlun ráðherrans hafa ver-
iö björgulegri. Verkin sýna merk-
in. Fjöldi manna, sem unnið hefir
aö húsabyggingum og hefði haft
vinnu enn um skeið, ef verzlunin
hefði verið í lagi, gengur nú at-
vinnulaus vegna sementsleysisins.
Pað á líklega að vera uppbót
handa þeim á togarastöðvunina(!).
Margir þeirra, sem nú eru að
korna sér upp húsum, hafa vonast
til, að þau yrðu tilbúin fyrir 1.
október. Sjálfsagt verða allmargir
í vandræðum staddir, ef út af [)ví
ber. En töf í viku til hálfan mán-
uð eöa meira getur gert þeim
erfitt og sumum þeirra ófram-
kvæmanlegt að hafa húsin full-
gerð á réttum tíma. Peir hafa
víst fæstir búist við þessum kaup-
mensku-dugnaði.
Svo er sagt, að von- sé á se-
mentsskipi einhvern tíma upp úr
[ressu; en sementssalarnir kváðu
líka hafa verið að vonast eftir
þvi alla síðast liðna viku, eða svo
er fólkinu „fortalið“.
I fyrra var sementslaust hér í
bænum í viku. Svona hafa „hinir
vísu feður“ lært af reynslunni.
Mikil er blessun frjálsu sam-
keppninnar(l).
Hvað ætli væri sagt unl ríkis-
einkasölu, sem væri svona birg
af þeim nauðsynjum, sem hún
hefði tekið að sér að sjá fólkinu
fyrir?
En — hvenær hefir landsverzlun
orðið sék um slíka „forsjálni" ?
Fyrirspurn.
Er það satt, að þeim 14 flöskum
af áfengi, er teknar voru af skip-
stjóranum á „Lagarfossi", hafi verið
skilað aftur?
Spurull.
Fyrirspurn þessi barst Alþbl. á
föstudaginn. Var þá þegar af
blaðsins hálfu spurst fyrir um það
í skrifstofu lögreglustjórans hér,
hvað hæft væri í þvi, er fyrirspurn-
in hljóðar um. Svarið var, að um
vínupptekt af skipstjóranum á
„Lagarfossi" fyndist ekkert í bók-
um skrifstofunnar, en þar eð Grím-
úlfur Ólafsson tollvörður væri þá
ekki í bænum, en kæmi næsta
dag, óskaði fulltrúi lögreglustjóra,
að dregið yrði að birta fyrirspurn-
ina, þar til hann hefði verið spurð-
ur um þetta mál. í fyrra kvöld átti
Alþbl. því tal viö Grímúlf, og
var svar hans á þessa leið: Ég
veít ekki til, að neinar flöskur
hafi verið teknar af skipstjóranum
á „Lagarfossi", og þess vegna
heldur ekki, að þeiin hafi verið
skilað aftur.
Það skal tekið fram, að fyrir-
spyrjandinn kvaðst hafa ætlast til,
að fyrirspurnin yrði birt áður en
„Lagarfoss" færi utan, en birtingin
frestaðist af ástæðum þeim, er
nefndar voru.
Álafosshlaupið
í gær fór svo, að Magnús Guð-
björnsson varð fyrstur og vann þar
með bikarinn til eignar.
Um daginn og veglnn.
Nnturlœknir
er i nótt Gunnlaugur Einarsson,
Stýrimannastíg 7, sími 1693.
.a
Bárujárnsekla.
Allmikill hörgull hefir verið á
bárujárni í verzlunum liér í þænum
undanfarna daga. — Mikill bjarg-
vætlur er frjálsa samkeppnin, þeg-
ar kaupendurnir geta reitt sig svona
örugt á hana(l).
Alheimsþing esperantista,
hið 18. í röðinni, verður haldið í
Edinborg f 31. þ. m. til 8. ágúst.
Héðan sækir þingið Öl. Þ. Krist-
jánsson, og fer hann með Gull-
fossi í kvöld. Enn fremur verður á
fUndinum Þórbergur Þórðarson rit-
höfundur. — Sagt verður frá þingi
þessu í Alþýðublaðinu.
Skipafréttir.
„Lagarfoss“ fór til útlanda á laug-
ardaginn. 1 gær fór togarinn
„Austri“ vestur til síldveiða, „Bot-
nía“ og „Tjaldur" komu frá útlönd-
um og „Skaftfellingur" að austan.
„Suðurland" fór i gærmorgun til
Borgarness og með því margt fólk
héðan á íþróttamótið við Hvitá, og
kom það aftur með skemtifarana í
nótt. — „Gullfoss" fer í kvöld til
útlanda. Með honum fer m. a.
Sveinn Björnsson, er orðinn er aftur
sendiherra i Kaupmannahöfn.
Ferðamannaskipið þýzka
kom í fyrri nótt, eins og ráð var
fyrir gert. Það heitír „Stuttgart"
og er að stærð á fjórtánda þúsund
smálestir allsendis. Farþegár eru
280—290. 1 gær fóru 160 þeirra til
Þingvalla og eitthvað á annað hund-
'rað í dag. I gær fengu þeir frem-
ur leiðinlegt veður. Á leiðinni hing-
að aftur komu þeir við í laugunum
og skoðuðu þær.
Frá Dýrafirði
er skrifað 18. þ. m.: Grasspretta
góð. Öþurkar miklir.
Kviknar í skipi.
1 gærmorgun kl. 41/2 kviknaði í
hásetaklefanum í togaranum
„Snorra goða“ hér á höfninni. Brann
klefinn dálítið innan. Var slökkvi-
liðið kallaö þangað, og tókst þvi að
slökkva eftir hálfrar stundar at-
rennu.
■I
*Skaftfellingur“
fer á inorgun til Víkur, Skaftár-
óss og Ingólfshöfða. Verður þetta
síðasta ferðin til Ingólfshöfða.
Áhætta verkalýðsins.
Á Iaugardaginn vildi það slys til
á Þormóðsstöðum (fiskverkunarstöð-
inni), að maður að nafni Lýður
Árnason, til heimilis á Týsgötu 6,
varð undir fiskflutningssporvagni og