Alþýðublaðið - 27.08.1926, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 27.08.1926, Qupperneq 3
Kaupmannahafnarbreí. I ágúst 1926. Sól og sumar. Sízt hefir þurft að kvarta undan kulda í sumar, brennandi hitar írá þvi í miðjum júnímánuði, þar til nú, að aftur virðist fara að kólna í veðri, enda er nú dag- urinn tekinn mjög að styttast, og sumarleyfin á þrotum þetta ár- ið. Nú lifa menn á ferðaminn- ingunum, — og margir hafa séð París í sumar, sem aldrei hafa séð „borg borganna" áður og myndu líklega aldrei hafa séð hana, hefðu frönsku þeningarnir ekki verið í svo lágu verði. Ó- víst er, að það tækifæri gefist aftur. Aðrir hafa orðið að sætta sig við „heimaiandið" og hafa þózt góðir að komast „úr bæn- um“. Baðstaðirnir hafa líka verið allvel sóttir, þótt fremur hafi þótt dýrt að liggja við á þeim. Þeir eru þó ávalt nokkrir, er hafa auraráð; aðrir hafa hálfsvelt vetr- armánuðina til þess að geta notið sumarsins við „sjó og sól“. I görðum verkamanna hefir verið gleði og glaumur, því að fæstir af eiggendum þeirra hafa þózt geta varið að fara vikutíma að heiman, en setið og notið sum- arsins í faðmi fjölskyldu sinnar í þessum trygga verustað heimil- jsföðurins. Þrumur og eldingar. Ein af plágum sumarsins hér í Iandi eru þrumuveðrin. Sjaldan valda þau þó tjóni hér í bæn- um, en úti um land baka þau oft tjón á mönnum og skepnum. Ég var eina slika nótt i sveit í sum- ar og verð að viðurkenna, að mig langar ekkert til þess aftur. Óveðrið skall á kl. 1 um nötttna og allir sváfu værum^svefni, þeg- ar húsbóndinn kom og vakti okk- ur og sagði, að við yrðum að fara í fötin og vera albúin þess að fara út, ef kvikna skyldi i húsinu. Yfir okkur og kring um okkur drundu þrumurnar, og eld- ingarnar lýstu upp í herbergj- unum, svo að á stundum var bjart eins og á degi, og vatn rann í lækjum eftir veginuni. Á þessu stóð heila klukkustund. Svo fóru menn aftur í rúmið, en kl. 6 um morguninn hófst önnur hríð- in, þó minni en hin fyrri. Ástæð- an til þess, að menn fara á fætur er sú, að víðast eru stráþök á húsum, og kemur þráfaldlega fyr- ir, að elding kveikir í þeim, og er þá húsið í björtu báli á mjög stuttum tíma, og oft verður litlu eða engu bjargað. Það kemur því ekki ósjaldan fyrir, að skepnur brenni inni. (Frh.) Þorf. Kr. Knattspyrnumótið. i gærkveldi fór svo, að Fram vann Víking með 2 :0. öm daglssM og vegfais. Næturlæknir er í nótt Konráð R. Konráðsson, Þingholtsstræti 21, sími 575. Togararnir „Draupnir" og „Karlsefni" fara út á ísfisksveiðar á morgun. Borgarstjóri fór utan með „Lyru“ í gær, og bjóst hann við að koma ekki aftur fyrr en um veturnætur. Gegnir Guð- mundur Ásbjarnarson bæjarfulltrúi störfum hans á meðan. Héraðslæknir Jón Hj. Sigurðsson var meðal far- þega á „Lyru“ í gær til Noregs. Læknisstörfum hans fyrir meðlimi Sjúkrasamlagsins og húslæknisstörf- um gegnir Friðrik Björnsson lækn- ir, Thorvaldssensstræti 4, sími 1786. 145 ár eru í dag frá fæðingu Finns Magnússonar prófessors. Slæmt hugarfar? Ot af bifreiðarslysinu í fyrra dag kemst „Mgbl.“ svo að orði um meiðsli drengsins: „Reyndust meiðslin vonum minni.“ Er hugar- farið svona? Eða er þetta að eins „Valtýsfjóla“? Unglingast. „Bíana“ fer skemtiferð í bílum á sunnu- daginn kemur kl. 10 f. h. upp í Djúpadal, ef veður leyfir. Farjð verður frá Good-Templarahúsinu. Farseðlar sækist frá kl. 4—7 e. h. i G.-T.-húsið og kosta fyrir böm kr. 1,25 og fyrir fullorðna kr. 2,25. * Einar ská)agIam:Húsið við Norðurá. „Þakka yður fyrir.“ „Annars var annar Maxwell í félaginu áð- ur, en hann féll í ófriðnum," bætti Merry- mann við. Johnson tök við miðanum, fékk sér ,cab‘ út í Bayswater, og var að vörmu spori kom- inn að húsinu, sem honum hafði verið vísað til. Hann spurðist fyrir um það, hvar í hús- inu Maxwell þjónn byggi, og lítill strákur, sem sagðist vera sonur hans, vísaði honum upp á þriðja loft. Hann barði að dyrum, og til dyra kom miðaldra kona. Johnson brá dálítið í brún, því að hann sá strax, að þetta var önnur en sú, sem á bjónamynd Maxwells var. Svo sagði hann til sín. „Eruð þér Mrs. Maxwell?“ bætti hann við. „Já,“ anzaði konan. „Er maðurinn yðar við?“ spurði hann frek- ar. „Nei; hann kemur fyrst heim á miðnætti. Hann vinnur í einni af veitingastofum Ly- ons,“ svaraði konan. „Vinnur hjá Lyon,“ hváði Goodmann Johnson, alveg steinhissa. Hvað gat þetta verið? Var þetta annar Maxwell? Það gat varla verið annað, og þá var hann strand- aður í bili aftur. „Má ég ekki fá að tala við yður betur, Mrs. Maxwell?" spurði Johnson, „Gerið þér svo vel,“ sagði konan og bauð Johnson inn í þokkalega stofu. Húsið vlð Norðurá kemur út sérprentuð i haust. Gerist áskrifend- ur strax á afgreiðslu blaðsins.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.