Alþýðublaðið - 10.09.1926, Blaðsíða 3
eða ándann, eigin gróða eða ’al-
þjóðaheill. Þeir hljóta allir að við-
urkenna gildi og þýðingu Esper-
antos, því að þess gætir á öllum
sviðum. Og þeim sjálfum er það
fyrir beztu að fylkja sér sem fyrst
undir græna stjörnufá'nann, merki
vonarinnar, tákn Esperanto-hreyf-
ingarinnar. Það þarf ekki að ótt-
ast, að efnishyggjumenn fái þar
of míkil ráð, svo að málið verði
viðskiftatunga að eins; — nei,
friðarhugsjónin ei; orðin svo sam-
gróin málinu, að hún verður ekki
frá því skilin fremur en hjartað
verður rifið úr lifandi manni án
þess, að hann bíði bana af. Sigur
Esperantos er því sigur hins góða
og göfuga.
Vestur-íslenzkar fréttir.
FB., 8.—9. sept.
íslendingadagurinnn
var haldinn í Winnipeg 2. ágúst
að venju. Fyrri hluta dagsins fór
fram 'alls konar keppni í íþróttum
og varð allsherjar-sigurvegari dags-
ins Rögnvaldur F. Pétursson. Vann
hann sjö fyrstu verðlaun og tvenn
önnur verðlaun. „Fjallkonan" (Ida
A. Swainson) flutti' ávarp. Stephan
G. Stephansson skáld var heiðurs-
gestur dagsins og flutti hann þar
ræðu. Prestarnir Albert Kristjáns-
son, Rögnvaldur Pétursson og Jónas
Á. Sigurðsson fluttu og ræður. Að
ræðunum loknum fóru frarn glímur,
og vann piltur, Kristinn Oliver að
nafni, fyrstu verðlaun, en Benedikt
Ölafsson önnur og verðlaun fyrir
fegurðarglímu. — „Fjallkonan" af-
henti sigurvegurunum verðlaunin. —
„Heimskringla" kveður áhuga yngri
manna fyrir glímunni heldur að
dafna.
Vestur-íslendinga-bök
eða selskinna, sem á að geyma nöfn
sem flestra Vestur-íslendinga um
aldur og æfi, lá frarnmi í tjaldi einu
á skemtisvæðinu, sem Winnipeg-fs-
lendingar héldu þjóðhátiðina á. Sel-
skinna þessi mun eiga að geymast
hér heima með hinni, þegar fólki
í öllum Islendingabyggðum vestra
hefir' verið gefinn kostur á að skrifa
nöfn sín í hana.
Skrifari Winnipegborgar
var Magnús Peterson nýlega kos-
inn. Hann er fæddur í Winnipeg
1883. Faðir Magnúsar var Pétur
Magnússon frá isafirði. Ellefu ára
misti Magnús föður sinn, en móðir
hans var dáin áður. Var hann áð
eins á tólfta ári, er hann var tekinn
til vika í bæjarritaraskrifstofu
AtÞÝÐUBLAÐIÐ
Winnipegborgar. Þá veitti þeirri
skrifstofu forstöðu ágætismaður að
nafni Charles Brown og sá hann
'fljótt, hvað í Magnúsi bjó, og reynd-
ist honum hið bezta. Mátti svo heita,
að hann gengi honum í föður stað.
Árið 1906 var Magnús gerður að
aðstoðarmanni Mr. Brown. Og árið
1907 varð hann ritari hinnar svo
nefndu ráðgjafastjórnar, er þá var
mynduð í Winnipeg. Er Magnús
því manna kunnugastur öllum bæj-
armálum Winnipegborgar.
J. T. Thorson prófessor
hefir verið kjörinn þingmannsefni
frjálslynda flokksins fyrir Suður- og
Mið-Winnipeg við kosningar þar til
sambandsþingsins kanadiska, er i
hönd fara. Nú síðustu árin hefir
hann haft á hendi forstöðu lagaskóla
Manitobafjdkis. —_ Joseph Thorson
er fæddur í Winnipeg 1889. For-
eldrar hans eru þau Stephen Thor-
son, ættaður úr Biskupstungum, o’g
kona hans, Sigríðúr Þórarinsdóttir.
Um daginn og veginn.
Næturlæknir
er í nótt Matthías Einarsson,
Kirkjustræti 10, sími 139 (heima-
sími i Höfða 1339).
p» ■ *
Mullersskóli
Jóns Þorsteinssonar, íþróttakenn-
ara, er nú aftur tekinn til starfa,
svo sem áður hefir frá verið skýrt
hér í' blaðinu. Vill Alþýðublaðið
benda lesendunr sínuili á, að þár
eru kendar hinar velþektu og gagn-
legu Míillers-æfingar, sem allir ættu
sjálfra sín vegna að kunna og iðka
daglega.
Mannlaus bifreið
rann síðdegis í gær aftur á bak
í Bankastræti, lenti upp á gang-
stétt og á húsinu nr. 8. Braut hún
þar stóra búðarrúðu í verzlun Jóns
Björnssonar & Co. Ef ljún hefði
runnið áfram niður Bankastræti, var
mikil hætta á, að slys hefði af
orðið.
V
Togararnir.
„Draupnir" aflaði í 700 kassa. f
morgun kom i „Karlsefni" með 900
kassa.
Þenna dag
árið 1908 kváðu íslendingar niður
„uppkastið" sæla við almennar al-
þingiskosningar.
Samkomur Benwells ofursta.
(Frá Hjálpræðishernum.) Samkom-
ur þær og fj'rirlestrar, sem Ben-
well ofursti heldur i Nýja Bió á
mánudaginn og miðvikudaginn byrja
kl. 71/2 e. h., en ekki kl. 8V2 eins
og stendur á áðgöngumiðunum. Aft-
3
Borðdúkar hv. og
misl. Legubekkja*
ábreiður. Borð-|
dúkadregill.
Verzlunin
ur á móti verður fyrirlesturinn í
dómkirkjunni á þriðjudaginn kl. 8V2
s, d. Sömúleiðis verður móttöku-
samkoman í samkomusal Hjálpræð-
ishersins á. sunnudaginn kl. 8V?- —
Sagt er að austan, að mjög mikil
aðsókn hafi verið að samkomum
Benwells á Austfjörðum.
200 lítra spíritustunnu
kvað hafa rekið í Grindavík ný-
lega, og hafi hún, svo sem vera
bar, verið afhent hreppsstjóranum
þar.
Bakkavitinn
á Norðfirði verður ekki kveikt-
ur framvegis.
TiPfróðleiks fyrir „Morgunblaðið“
má geta þess, sem a. m. k. allir
aðrir Islendingar vita, að alþýðan
treystir ekki og mun aldrei treysta
„Lággengis“-ritaranum Jóni Þorláks-
syni til að fara með mál hennar,
hvorki gjaldeyrismálið né önnur.
Veðrið.
Hiti 5—0 stig. Átt víðast norðlæg.
Snarpur vindur í Vestmannaeyjum.
Annars staðar lygnara. Loftvægis-
lægð fyrir suðaustan land og önnur
fyrir suðvestan land og er hún á
leið til suðausturs. Útlit: Víðast
norðan- eða norðvestan-strekkingur.
Sennilega þurt á suður hluta lands-
ins, en éljaveður víða nyrðra og
hríðarél i nótt, en birtir sennilega
upp á morgun.
Aðaláhugamál „Morgunblaðsins“
fyrir kosningarnar er lega togar-
anna áfram, þaulseta íhaldsstjórn-
arinnar og almentt aðgerðaleysi.
Gengi erlendra mynta í dag:
Sterlingspund...........kr. 22,15
100 kr. danskar .... — 121,24
100 kr. sænskar .... — 122,15
100 kr. norskar ... . . — 100,14
Dollar — 4,57
100 frankar franskir. . . — 13,46
100 gyllini hollenzk . . — 183,43
100 gullmörk þýzk... — 108,75