Alþýðublaðið - 15.03.1935, Síða 1

Alþýðublaðið - 15.03.1935, Síða 1
AiþýðnflokEisfólk HÍ5 c ~listaim við bosningarnar fi útvarpsráð! Varist sprengilistann! RirSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN XVI. ÁRGANGUR. FÖSTUDAGINN 15. MARZ 1935. 73. TÖLUBLAÐ Frumvarp nm ðryggismil verkalýðsins flutt af Héðni Valdi* marssyni og Emil Jénssynl. HÉÐINN VALDIMARSSON og Emil Jónsson bera fram fiumvarp á alþingi um viðauka við iögin um eftirlit með verk- smiðjum og vélum. fjailar frumvarpið um að sett verði strangt eftirlit með skip- um, sem koma hingað, og at- vinnutækjum við höfnina, einnig að sett verði strangt eftirlit með vinnupöllum. Éins og kunnugt er, hafa mörg slys orðið við uppskipun hér við höfnina og eins við húsabygging- ar. Hafa verklýðsfélögin og þá fyrst og fremst verkamannafélag- ið Dagsbrún haft þetta mál til fcekilegrar meðferðar hvað eftir ánnað og sampykt meðal annars öryggisreglur, sem fara skyldi eftir við höfnina, en erfiðlega hef- ir gengið að fá þeim framfylgt. Er því engin vanþörf á lögum íða neglugerðum um þetta mál. í frumvarpinu segir m. a.: Atvinnumálaráðherra er heimilt að setja í reglugerð ákvæði um: Eftirlit með fermingu, afferm- ingu og annari afgreiðslu skipa hér við land, til verndar lífi og heilsu verkamanna, sem að því starfi vinna, og annara. Skal eftirlitið meðal annars ná til véla og annara tækja, sem notuð eru við vinnuna, hvort held- ur á landi' eða í skipi. I reglugerðinni má setja nánari fyrirmæli um starfsháttu, tilhög- un við vinnuna og aðbúnað verka- fólks á staðnum, einnig er honum heimilt að setja í reglugerð á- kvæði um gerð og frágang verk- palla við hvers konar vinnu og um eftirlit með þeim. Um eftirlitið fer eftir ákvæðum laga nr. 24 frá 1928, þar á með- al um gjöld fyrir eftirlitið, sem greiðist af eigendum skoðunar- skyldra tækja og vinnustaða, sem eftirlit er framkvæmt með, sam- kvæmt gjaldskrá, sem sett verður, svo og nm refsingu fyrir brot á þessum lögum og xeglugerðum, sem settar verða í samræmi við þau. Þar, sem hentugt þykir, get- ur ráðherra falið lögreglustjóra að sjá um eftirlit samkvæmt lög- um þessum. Ákvæði þessara laga og eftirlit samkvæmt þeim rýrir ekki á neinn hátt ábyrgð, sem eigendur skoðunarskyldra tækja og vinnu- staða eða aðrir bera á þeim slys- um, sem fyrir kunna að koma. 1 greinargerð fyrir frumvarpinu segir: Frumvarp þetta er flutt vegna þess, að 1. nr. 24 frá 7. maí 1928, um eftirlit með verksmiðjum og l vélum, ná ekki nema að nokkru leyti yfir eftirlit með vélum þeim og vinnustöðum, er hér um ræðir, en einmitt við þess konar vinnu eru slys einna tíðust og hættulegust. T. d. hafa nú frá nýjári orðið tvö stórslys í Reykja- vík vegna lélegs útbúnaðar við uppskipun. Þá eru og slýs á vinnupöllum alltíð. En úr þessari slysahættu yrði verulega bætt með nægilega ströngu eftirliti. Togarafélag Isfirðinga iýsir sig glaldjprota. Bæjarstjérn Isafjarðar óskar að fá togarann „Hávarð Isfirðing“ leigðan. TOGARAFÉLAG ISFIRÐINGA hf. á ísafirði lýsti yfir gjald- þroti sínu á laugardaginn, og fer rannsókn út af gjaldþrotinu fram þessa dagana á Isafirði. Gjaldþrot þetta er eitt hið stærsta, sem orðið hefir á Isa- ifirði í seinni tíð. Mun alt hlutafé togarafélagsins, urn 300—400 þús- und krónur vera tapað. Togarafélag Isfirðinga var stofnað árið 1926 og hefir frá byrjun verið undir stjórn íhalds- manna. Framkvæmdastjóri þess var fyrst Tryggvi Jóakimsson kaupmaður. En hann lét af starf- inu fyrir 2 árum og mun þá þegar hafa verið komin hin rnesta óreiða á fjárhag félagsins. Síðustu 2 árin hefir Matthías Ásgeirsson, fyrrum sýsluskrifari, verið framkvæmda- stjóri félagsins. Félagið hefir notið nokkurs stuðnings af bæjarstjórn Isafjarð- ar, eftirgjafa á vörugjöldum, út- svörum o. fl. Togari félagsins, „Hávarður Is- firðingur" er nýkominn frá Eng- landi, og mun bæjarstjórn ísa- fjarðar hafa hug á að fá hann leigðan eða keyptan til þess að forða sjómönnum og verkamönn- um frá yfirvofandi atvinnuleysi. Væntanlega sér ríkisstjórnin og bankarnir sér fært að styðja bæj- arstjórnina til þess, ef með þarf. Benedikt Jóhannesson hefir faisað 12 víxla. Benedikt Jóhannesson hefir við- urkent að hafa falsað alls 12 víxla, en tókst ekki að selja nema 11. Alls er Benedikt samþykkjandi að 17 víxlum; í bönkunum, en lík- legt er, að 6 af þeim séu ófals- aðir. Einn maður hefir verið tekinn fastur, grunaður um að hafa verið í vitorði með Benedikt, en ekkert mun hafa sannast á hann enn sem komið er. Færeyski kútteriim „Langanes“ kominn til Reykjavíkur. Færeyska seglskipið „Lillie" fann kútterinn „Langanes" í fyrri nótt um 20 sjómílur út af Sel- vogsbanka. Setti „Lillie" þegar 7 menn um borð í kútterinn. Bar þá „Hvid- björnen“ að, og dró hann skipið inn til Reykjavíkur í gærkveldi. Skipið er mikið brotið ofan þilja, báðar siglur brotnar, borð- stokkurinn brotinn á tveim stöð- um og rúður brotnar í stýrishúsi. Annars er stýrisumbúnaður í lagi og skipið ólekt. Sjö þjófar dæmdir i gær. IGÆR voru kveðnir upp dóm- ar yfir mönnunum, sem rændu töskunni af stúlkunni á Laufásveginum um daginn. Enn fremur var dómur kveðinn upp yfir félögum þeirra, sem höfðu tekið þátt í ýmsum þjófnuðum með þeim. ' ' Stefán Agnar Magnússon og Mons Olsen voru dæmdir í 8 mánaða betrunarhússvinnu hvor óskilorðsbundið. Ólafur Óskar Guðmundsson, Þorlákur Hannibal Guðmundsson og Alfred Antonsson voru dæmd- ijr í 6 imánaða fangelsi hver, skil- orðsbundið. Einnig voru tveir menn, sem framið höfðu þjófnaði með Al- fred, dæmdir í 30 daga fangelsi hvor, óskilorðsbundið. Kjósið lista Alpýðu- flokksins í útvarps- ráð: C-listann. Bart með fhalðið! á Grikklandi. Eignir uppreisnarmanna gerðar npp« tækar um alt landið. § VerOnr Georg Bretaprlns teklnn tll konungs T Trúiof&n Frióriks krónprins og Ingrld prinsessu oplnberuð. EINKASKEYTl TIL ALÞÝÐUBL. KAUPMANNAH ÖFN I moijgun. J MÖRGUM aðalblöðum Evrópu er nu opinberlega rætt um möguleika á pví, að konungsdæmið verði endurreist á Grikklandi og yngsti sonur Georgs Bretakonungs, Georg hertogi af Kent, sem í faaust kvæntist Marínu prinsessu af Grikklandi, verði tekin par til konungs. En þeir, sem bezt pekkja til, telja pó meiri líkur til þess, að stofnuð verði fazistísk einræðis- stjórn, eftir fordæmi Hitlers. Sérsfaklega berst Kondylis hershöfðingi fyrir pví, en hann er nú, eft- ir uppreisnina, talin mestu ráðandi maður í grísku stjórninni. Kondylis hafa í viðtali við blaðamenn farist orð á eftirfar- andi hátt, um hinar fazistisku fyr- irætlanir sínar: „Gríska þjóðin er í þann veg- inn að endurfæðast. Tiltrú manna og álit á ríkisvaldinu hefir nú verið rétt við. Eins og Hitler endurskipulagði þýzku þjóðina, eins imunum við gera tilraun til þess að blása nýju lífi í hina grísku þjóð og gefa henni nýjar hugsjónir. Við ætlum að gera enda á allri óeiningu og innbyrðis ófriði á meðal þjóðarinnar. Stefnuskrá okkar í innanlands- málum verður í öllum verulegum atriðum sú sama og stefnuskrá Hitlers.“ FRIÐRIK KRÓNPRINZ. EINKASKEYTI TIL ALÞÝÐUBLAÐSINS KAUPMANNAHÖFN í mioriguin. OPINBER TILKYNNING frá konungi og drotningu var gefin út i morgun og var svo- hljóðandi: „Konungur og drotning hafa þá miklu ánægju að tilkynna, að Friðrik krónprinz hefir op- inberað trúlofun sína og Ingrid prinzessu af Svípjöð.14 STAMPEN. Um mánaðamótin janúar og fe- brúar bárust hingað fregnir frá fréttaritara Alþýðublaðsins í Kaupmannahöfn um að trúlofun Friðriks krónprinz og Ingrid prinzessu væri í vændurn. Fór Friðrik krónprinz til Stokk- hólms, og var látið í veðri vaka, að hann færi þangað til að vera viðstaddur hljómleika kennara síns í tónlist, Georgs Hoebergs, en hinn raunverulegi tilgangur fararinnar var þó talin vera opin- berun trúlofunarinnar, en af því varð þó ekki fyr en nú. Friðrik krónprinz var árið 1922 trúlofaður Olgu prinzessu af Grikklandi, sem nú er gift Páli ríkisstjóra í Júgóslavíu. .Krón- Skip, hlaðið uppreisn- armönnum, afvopnað og tekið f ast við eynaLesbos.. Frá Aþenu er símað, að skip GEORG, hertogi af Kent, og MARIANA prinzessa. hlaðið uppreisnarmönnum, hafi komið frá Kretu til eyjarinnar Les- bos á fimtudaginn án þess að hafa nokkra hugmynd um það, að uppreisnin var þar á enda og eyj- an var aftur gengin stjórninni í Aþenu á hönd. Uppreisnarmennirnir voru af» vopnaðir og teknir fastir undir eins og þeir voru komnir í land. Venizelos ætlar að end- urgreiða peningana, sem uppreisnarmenn tóku á Kretu. Venizelos hefir símað til stjórn- arinnar í Aþenu, aÖ hann ætli að endurgreiða alla þá peninga, sem hann hafi tekið úr útibúi ríkissjóðsins á Kretu á meðan á uppreisninni stóð. Hann lýsir því yfir í símskeytinu, að hann sé sjálfur ábyrgur fyrir þeirri upp- (Frh. á 4. síðu.) INGRID PRINZESSA 1 SVIÞJÓÐ. prinzinn er fæddur 11. marz 1899 og er því 36 ára gamall. Ingrid prinzessa er einkadóttir Gústafs Adolf ríkiserfingja í Sví- þjóð. Hún er fædd 28. marz 1910 og er því 25 ára gömul.. Fellar norska stjórnlnídag? 011 norsk blöö búast við vantransti á rikisstjórnina vidatkvæðag *e ðsiuna om f járlögin. OSLO í gærkveldi. FB. P JÁRLAGAUMR ÆÐURNAR byrjuðu í Stórþinginu ár- degis í idag. Síaoning boðar_Dý]ar kosnfngar. í þeim kosningum verður barist um afnám Landsþingsins. KALUNDBORG í gærkveldi. 1 danska þjóðþinginu fara í dag fram umræður um breytingar þær á grundvallarlögunum, sem fyrir hafa legið undanfarið. Megindeilurnar standa um það, hvort afnema eigi Landsþingið eða ekki. Talsmenn stjórnarflokk- anna mæltu með því í dag, en á móti því töluðu Holstein greifi og íhaldsmaðurinn Ole Björn Kraft. Hann taldi að vísu æskilegar nokkrar breytingar á stjórnskipu- lögunum, en ekki í þá átt, sem tillögur stjórnarflokkanna gerðu ráð fyrir. Holstein sagðist vænta þess, að Landsþingið skæri til- lögurnar niður afdráttarlaust. Stauning forsætisráðherra talaði í kvöld og-mælti með br.eytíngar- tillögu stjórnarflokkanna. Hann sagði, að við væntan- legar kosningar myndi stjórnin Ieggja mikla áherzlu á pessi mál, og virtist svo, sem al- menningur væri nú fremur fylgj- andi pvi en áður, að Lands- þingið yrði afnumið. Hann sagði, að stjórnin myndi leggja alt kapp á pað í kosningunum að að halda meiri hluta sínum i Þjóðpinginu og að fá meiri hluta i Landspinginu. (FÚ.) Leikkvöld Mentaskólans. Sjónleikurinn „Henrik og Per- nilla“ eftir Holberg verður sýnd- úr í kvöld. Mowinckel forsáetisráðherra bað þegar um orðið og flutti alílanga og ítarlega ræðu. Hann kömst svo áð orði, að bezti grundvöllur allrar kreppu- hjálpar væri heilbrigt, traust fjár- hagslíf og'örugg fjármálástjórn. Hann kvað ríkisstjórninni þykja nauðsýn bera til að krefjast þess, að tekin yrði örugg, ákveðin stefná, og bæri hann því franý tillögu þess efnis, að Stórþingið lýsíi sig mótfallið því, að útgjöld- in á fjárlagafrumvarpinu væri hækkuð með því móti, að taka yrði lán eÖa auka skatta. Jahn fjármálaráðherra gaf yfir- lit yfir fjárhagsástandið. Talið er, að í Stórþinginu sé meiri hluti, sem samþykkur sé útgjaldaaukn- ingu, er nemi 17 milljónum króna, sé gengið út frá því, að Alþýðu- flokkurinn greiði atkvæði með tillögum Bændaflokksins. Jahn ráðherra aðvaraði eindregið gegn útgjaidaaukningu. „Við vitum ekki hvort vinnufriðurinn helzt,“ sagði hann, „og vér höfum enga vissu fyrir, að tekjurnar verði eins (Frh. á 4. síðu.)

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.