Alþýðublaðið - 28.04.1935, Blaðsíða 4
SUNNUDAGINN 28. APRÍL' 1935.
MtGamlái Bíé
i
» Ný mynd kl. 9.
Hefnd letkkonnnnar.
Revytalmynd í 10 páttum.
i Aðalhlutv. Carl Brisson.
Gieopatra,
Alþýðusýning kl. 7, í siðasta
sinn.
KynddflQr rikisstióri.
Qamanleikur í 8 páttum.
Gbs oo fiokke.
Gamanmynd í 2 þátturn.
Sýndar kl. 5.
$Mmm Gamla Bíó.
II. hljómleikar
píanósnillingsins
looaz Friedmaii
eru á mánudaginn 29. p. m
kl.~7,l5.
Ath. Fallnir stakir miðar á
3,35 og 4,00„kr. Stúkur 5,00
í Hljóðfærahúsinu, sími|3656.
J[_jj t kvöldlkl.f8.
Variö yöur
á málningunni!
Gamanleikur í 3 páttum.
Næst síðasta sinn!
Lækkað verð.
Aðgöngumiðar seldir kl. 4—7
daginn fyrir, og eftir kl. 1 teik-
daginn. Simi 3191.
Inntökupróf
til 1. bekkjar kvennaskólans í
Reykjavík hefst þann 9. maí kl.
1. e. h. Allir umsækjendur um
1. bekk mæti þá í skótanum.
BvoðiDð Al&ýJahúss-
íbs verðoi hoðin ðt
næstu dap.
Teikningar af Alþýðuhúsinu
nýja voru sendar Bygginganefnd
til sampyktar fyrir nokkrum
dögum.
Teikningarnar voru til umræðu
í Bygginganefnd í dag og voru
sampyktar athugasemdalaust af
nefndinni.
Verður bygging hússins því
boðin út opinberlega næstu daga
og byrjað á verkinu svo fljótt
sem því verður við komið.
Hlutabréf h. f. Alþýðuhúss
Reykjavíkur hafa nú verið prent-
uð, og verða þau afhent hluthöf-
um um leið og þeir greiða hluta-
fé sitt.
Alþýðublaðið vill enn skora -á
alla, sem hafa lofað hlutafé, að
greiða framlög sín hið allra
fyrsta og benda öllum, sem viija
sína það í verki, að þeir vilja
stiðja verkalýðssamtökin og Al-
þýðuflokkinn, á það, að þeir geta
það ekki á neinn annan hátt bet-
ur, en með því að styðja að bygg-
ingu Alþýðuhússins og gerast
hluthafar í því.
Þeir, sem hafa lofað hlutafé,
en eiga það enn ógreitt, ættu að
snúa sér hið allra fyrsta til ein-
hvers þeirra Sigurðar Ólafssonar,
gjaldkera Sjómannafélagsins, Sig-
urbjörns Björnssonar verkamanns
eða Óskars Guðnasonar prentara,
sejm kosnir voru á aðalfundi fé-
lagsins til þess að annast inn-
köllun hlutafjár og flýta fyrir
henni.
ALÞÝÐDBLA
K. R.
fer sína fyrstu gönguferð á
sumrinu á morgun. Farið verður
frá K.-R.-húsinu kl. 1 e .h. —
Hafið sundföt með, því komið
verður við að Álafossi á heim-
leið.
Kapólskar messur.
I Landakotskirkju: Hámessa
kl. 10 og kvöldguðsþjónusta með
predikun kl. 6. — í Spítalakirkj-
unni í Hafnarfirði: Hámessa kl.
8 og kvöldguðsþjónusta með pre-
dikun kl. 3.
1. maí.
1. mai.
Skemtanir
í Iðnó og K. R.-húsinu um
kvöldið kl. 9. Gömlu og nýju
danzamir í K. R., nýju danz-
arnir í Iðnó. Aðgöngumiðar
verða seldir á mánudag og
þriðjudagí Alþýðubrauðgerð-
inni, verzlun Alþýðubrauð-
gerðarinnar og á skrifstofum
verkalýðsfélaganna og kosta
í Iðnó krí 2,50, en í K. R.-
húsinu kr. 2,00.
Nðnara prógramm verðnr auglýst siðar.
Alþýðumenn og konur!
Sækið ykkar eigin skemtanir!
Theööór Frlðrlksson
rithðfandur sextngnr.
I DM
í dag er hinn vinsæli alþýðurit-
höfundur Theódór Friðriksson
sextugur.
Um langan aidur hefir hann
verið víðlesinn af alþýðu, enda
ritar eins og hún hugsar. Islenzka
þjóðin hefir gert minna fyrir
Theódór Friðriksson en hann hefir
gert fyrir hana. Hann hefir alt
af unnið með alþýðufólki, bæði
á sjó og í landi og skrifað í
tómstundum sínum, þegar hann
hefir komið heim á kvöldin að
afloknu dagsverki.
Nú stundar Theódór aðgerðir á
ivertíðinni í Vestmannaeyjum, eins
og hann hefir gert í mörg ár.
Alþýðublaðið óskar Theódór
Friðrikssyni til hamingju á sex-
tugsafmæli hans.
BANDARÍKIN Frh. af 1. síðu.
er á enda. Hann ætlar að stofna
sinn eigin flokk, sem á að heita
„Auðskiftingarflokkurinn“, - og nú
þegar fyllist hvert einasta áheyr-
endapláss í öldungdeild Banda-
ríkjaþingsins í Washington, þeg-
ar hann ætlar að tala. Annars
sést þar ekki ein einasta hræða.
Það er undir þessum kringum-
stæðum erfitt að sjá, hvað úr
viðreisnarstarfi Roosevelts á sviði
atvinnulífsins verður. En það er
augljóst, að jafnvel í bezta til-
felli verður batinn mjög hægur,
og að flokkariðlið í Bandaríkj-
unum er meira nú en nokkru
sinni áður síðan Roosevelt tók
við stjórn. Það var lengi hans
sterkasta hlið, að hann hafði svo
alment pólitískt fylgi, að hann
þurfti ekki um neitt annað að
hugsa en viðneisn atvinnulífsins.
Nú eru stjórnmálin að verða
engu óalvarlegra viðfangsefni fyr-
ir hann. Það er þegar mjög al-
varleg hætta á því, að pólitískir
skýjaglópar og skottulæknar reki
hann í fangið á Wall Street —
bankavaldinu, sem hann ætlaði að
bjarga Ameríkumönnum undan.
POUL GRAAE.
FRÆKILEG BJÖRGUN
Frh. áf 1. síðu.
Ragnar synti í þriðja sinn til
bátsins, og komst að raun um,
að fangalína hans var föst undir
steini, og kafaði Ragnar og los-
aði hana. Batt hann svo streng
við fangalínuna og synti með
hana í land. Drógu svo b'ræð-
urnir bátinn að landi.
Hyldýpi er þarna við skerið, og
talið víst, að allir bræðurnir hefðu
farist ,ef Ragnar hefði ekki verið
syndur.
Þeir bræður komust heim hjálp-
arlaust á bát sínum. Veður var
gott ,enda þótt talsverður storm-
ur væri af suðri, og alda mikil
við skerið, og gerði það Ragnari
erfiðara fyrir með björgunina.
Þeir bræður voru allir furðu
hressir eftir hrakninginn, og fóru
aftur í tró'ðú'r í morgun. Er þetta
talið þrekvirki af svo ungum
pilti, og dást menn að þreki hans
og dugnaði.
r
Næturlæknir í nótt er Guðmi-
Karl Pétursson, sími 2781.
Næturvörður er í Laugavegs-
og Ingólfsapóteki.
Veðrið í gærkveldi: Hiti 8 st.
Veðurútlit fyrir daginn í dag:
Suðvestan gola úrkomulítið.
ÚTVARPIÐ:
9,50 Enskukensla.
10,15 Dönskukensla.
10,40 Veðurfregnir.
11,00 Messa í Dómkirkjunni —
Ferming (séra Fr. Hallgr.)
15,00 Tónleikar (frá Hótel ísland).
18.20 Þýzkukensla.
18,45 Barnatími: Saga (Steingrím-
ur Arason, kennari).
19,10 Veðurfregnir.
19.20 Upplestur (frú Ásthildur
Thorsteinsson). •
20,00 Fréttir.
20,30 Erindi: Spíritismi og guð-
speki (Grjetar ó. Fells).
21,00 Tónleikar: Ættjarðarlög
(plötur).
Danzíög til kl. 24.
Bifreiðarslys.
í dag var bifreiðin RE 944 á
ferðinni urn mót Spítalastígs og
Óðinsgötu. Rikst bifreiðin þá á
fullorðna konu og meiddist hún
dálítið Ekki þurfti að flytja konuna
í sjikrahús og líður henni eftir
vonum.
Karlakór Alpýðu.
Æfing i dag (sunnud.) á vnnju-
legum stað kl. 3'/s. Áríðandi að
mæta vel og stundvislega.
Laksmiswar Sinha.
í dag kl. 2 e. h. flytur Indverj-
inn Laksmiswar Sinha fyrirlestur
í Nýja Bíó. Talar hann i erindi
sínu um furðueyjuna Ceylon, lýsir
hinum einkennilegu staðháttum
og náttúrulífi eyjarinnar og hinni
fjarrænu menningu eyjarskeggja
Þegar herra Sinha hefir lokið fyr-
irlestri sínum, gefur hann mönn-
um kost á að hlusta á indversk
þjóðlög.
Trúlofun.
Nýlega hafa birt trúlofun sína
ungfrú Unnur Pálsdóttir og Sig-
tryggur Klemensson stúd. jnr.
Athygli
skal vakin á auglýsingu frá Iðn-
sambandi sem byggingarmanna,
birtist hér í blaðinu i gær.
í Aðventkirkjunni
verður guðsþjónusta i kvöld kl.
8. Ræðuefni: Skírnin eða „sátt-
máli góðrar samvizku við guð“.
Allir hjartanlega velkomnir.
O. Frenning.
Trúlofun.
Á fyrsta sumardag opinheruðu
trúlofun sína ungfrú Magnea Ól-
afsdóttir frá Önundarfirði og
Ingólfur ísólfsson verzlunarmað-
ur.
Skipafréttir.
Gullfoss og Dettifoss eru í
Reykjavík, Brúarfoss er á leíð frá
Leith til Hull, Lagarfoss er, á
Austfjörðum, Selfoss er á leið til
Antwerpen, ísland er á leið til út-
landa, Dr. Alexandrine fer í dag
frá Kaupmannahöfn áleiðis til
Reykjavikur.
Trúlofun.
1 dag verða gefin saman í
hjónaband af síra Árna Sigurðs-
syni ungfrú Asta Halldórsdóttir
frá Bolungavík og Björn J. Þor-
láksson, Njálsgötu 1. Heimiii
þeirra verður á Holtsgötu 37.
Nýlega hafa birt trúlofun sína
ungfrú Unnur Pálsdóttir og Sig-
tryggur Klemensson stud. jur.
Á sumardaginn fyrsta opinber-
uðu trúlofun sína ungfrú Ásta
Guðlaugsdóttir og Björgvin Kr.
Gunnarsson, Þórsgötu 14.
Bókasafn „Anglia“
í brezka konsúlatinu er opið
í dag kl. 6—7 e. h.
71. félaglð
gengisg* í AlþýðS"
sambendfð.
Bifreiðastjórafélag Akureyrar
fékk í gær upptöku í Alþýðu-
samband Islands.
Er það 71. félagið í Alþýðu-
sambandinu.
1 félaginu, sem var stofnað í
vetur, eru 50 bifreiðastjórar á Ak-
ureyri.
20 býr drepast af lélep
fððri f Skagafirðl.
Biá
Kl. 9.
Kl, 9
Talsvert hefir borið á sjúkdóm-
jtm í kúm í Skagafirði, og telur
fréttaritari útvarpsins á Hellu-
Jandi í bréfi, er hann ritar á
þriðja í páskum, að þá muni um
20 kýr vera dauðar í héraðinu.
Dýraiæknir telur, að þetta muni
stafa mest af lélegu og lífefna-
snauðu fóðri.
Þá segir hann, að lungnaorma'
veiki í sauðfé sé tilfinnanleg á
sumum bæjum, svo að veikst
hafi frá 50 og upp í 150 kindur
á bæ, — en siegið hefir á veikina
við ítrekaða inngjöf af klór-
mixtúru.
Telur dýralæknir þessa dýra-
sjúkdóma nrunu stafa að nokkru
leyti af kalkvöntun og lífefna-
snauðu fóðri. (FU.)
Hans hátifln er ást-
ifanglnn.
Amerisk tal- og söngvaskemti-
mynd frá FOX.
Aðalpersónur:
Rupert konungur
JOHN BOLES.
Lili danzmær
LILIAN HARVEY.
Stigmat bílstjóri
EL. BRENDEL.
Aukamynd
TALMYNDAFRÉTTIR.
Á barnasýningu kl. 5 og kl. 7
(lækkað verð) verða sýndar
hinar bráðskemtilegu myndir
Undrabarnið
og teiknimyndin
Rottaveiðarlnnfrá Hameln
Sigfús Sveinsson
frá Norðfirði hefir á morgun
sýningu í Hafnarfirði á macntafli
pví, er hann hefir smíðað og sýnt
undanfarið í Reykjavík. Sjningin
er á skrifstofu Valdimars Long.
Þjófnaður.
í dag koin Lárus Maríusson,
Smirilss íg 29 inn í veiziun O.
Ellingsen og keypti þar akkeri.
Skildi hann a' kerið eftir á götunni
meðan hann hrá sér inn í búðina
til að greiða það, en þegar hann
koni aftur var það horfið. Lögregl-
unni hefir enn ekki tekist að hafa
upp á þjófnum.
# Betri vernd
# Meiri ending
# Minni sótnn
# Anðveldari gang-
setning
# Lengra á milli
olíaskifta
# Fæst alls staðar
GARGQYLE MuBILOILer alt af ný og akst-
ur yðar verður viss, öruggur og ódýr, ef þ tr notið
Gargoyle Mobilolíuá vélina yðar. Gargoyle
taflan sýnir rétta merkið af Gargoyle Mobiloil
fyrir yðar vagntegund, hvort sem hún er gömul
eða nýjasta straumlínugerð.
Jafn-gömul fyrstu bifreiðinni —
jafn-ný síðustu gerðinni.
Gargoyle
Mobiloll
VACUUM OIL COMPANYA S
Aðalsalar á íslandi:
V
Olfnverzlnn Islands h.S.