Alþýðublaðið - 05.05.1935, Blaðsíða 4
Það kostar fé
að auglýsa, pó er pað beinn
gróðavegur, pví að
Það kernur aftur *
i auknum viðskiftum.
Bfóf
sýnir kl, 9:
Hiðdegisverður ki. 8.
Lœrdómsrík og spennandi
talmynd um samkvœmislíf
Myndin er leiki 1 af 14
beztu leikurum Metro-Gold-
win-félagsins, p."’á. m.
Jean Haríow,
Barrymore-bræðurnir,
Wallace Beery,
Marie Dressler o. fl.
Kl. 4,30 og kl. 7 (alpýðu-
sýning).
Köbenhavn
Kalundborg
með frægustu listamönnum
heimsins.
Frumsýning í kvöld
klukkan 8.
Alt
Er pá þrent er.
eftir Arnold Ridley
Fjörugur, hlægilegur og spenn-
andi gamanleikur í 3 páttum.
Aðgöngumiðar seidir kl. 4—-7
daginn fyrir, og eftir kl. 1 leik-
daginn. Sími 3191.
Æfingar félagsins í sumar
verða sem hér segir:
Frjálsar ípróttir
á nýja ípróttavellinum:
Sunnud. kl. 10—12 árd.
Mánud. — 8—10 síðd.
Miðvikud. — ' 8—10 —
Föstud. — 8—10 —
Kvennaípróttir
á nýja ípróttavellinum:
Síðd. ,
Sunnud. kl. 3—4
Þriðjud. kl. 8‘/s—10
Fimtud. kl 8!/s—10
Sundæfingar.
Þeir félagsmenn og konur,
sem ætla að æfa sund, gefi
sig fram við Þórarin Magn-
ússon, Frakkastíg 13.
Róðraræfingar.
Þeir féiagsmenn, sem ætla
að æfa róður, gefi sig fram
við Loft Helgason c/o
Danske Lloyd, simi 3123.
Kennarar í frjálsum ipróft-
um verða peir Jón Kaldal
og Óiafur Sveinsson.
Stjórn Ármanns.
i
HERSKIPASMÍÐI ÞJÓÐVERJA.
(Frh. af 1. síðu.)
orðið aftur úr vegna flotasanm-
inganna við Japan og Bandaríkin.
Hvað beitiskip snertir, getur
England ekki verið búið að fylla
upp skörðin fyrir pau gömlu og
úreltu og byrjað á að bæta við
sig nýjum fyrr en árið 1943.
DIPLOMATUS.
Smyglun i Vestmannaeyjum.
Kútterinn Capella frá Færeyj-
um kom til Vestmannaeyja ígær
til pess að taka saltfisk. Tollt-
pjónninn Sigurjón Sigurbjörnsson
gerði upptækar 6 flöskur af
vvhisky, er skipstjórinn hafði ekki
sagt til við tollskoðun. Málið er
í dómi.
FISKVEIÐAR VIÐ LOFOTEN.
(Frh. af 3. síðu.)
aði, unz viðkomandi trúmaður
varð J)ess um kominn að eignast
vélbát sjálfur. Þá gufaði hún
upp smátt og smátt, og meira að
segja furðu fljótt.
Nii hafa allir vélar í bátum
sinum. Og trúin á p>að, að véla-
skröltið geri porskinn hjartveik-
an, er með öllu horfin. Aftur
kann einstaka ábyrgðarmaður
fyrir vélunum að fá einhverja
óró fyrir hjartað við og við, þeg-
ar illa gengur. En almennt eða
alvarlegt getur Jiað J)ó varla ver-
ið. Örvggið um lif sjómanna er
meira nú en áður, og þrældóm-
urinn og volkið er ekkert sam-
bærilegt. — En arðurinn er aftur
ekki þar eftir meiri en áður var.
Það sama vill brenna við þar
eins og hér, að sæmilegt verð er
aðeins gefið fyrir fiskinn þegar
lítið fiskast, en sáralítið þegar
vel aflast. Svona vísdómsiega er
þelta innréttað — og þannig ber
sjómaðurinn nokkurn veginn
jafn lítið úr bítum fyrir erfiði
sitt, hvort sem vel eða illa árar.
Sérstök undantekning frá þessu
voru þó nokkur ár á stríðstim-
anmn, því þá kom fyrir að sjó-
.menn kæmust í nokkur efni,
vegna verðhækkunar á sjávaraf-
urðum. Undir venjulegum kring-
umstæðum er sannarlega ekki
feitan gölt að flá fyrir sjómenn-
ina við Lofoten. Tekjurnar eru
Jjetta frá 0 — nokkur hundruð
krónur fyrir vetrarlangt volk
og strit. Bezta fiskiárið við Lo-
foten nú um nokkurn tíma var
1929. Þá fiskuðust þar 43,5 mil-
jónir þorska fyrir 17,5 miljónir
króna. Meðalhlutur það ár náði
J)ó ekki nema 640 kr.
Eins og menn sjá af þessu, eru
það áreiðanlega ekki peninga-
uppgripin, sem draga norska sjó-
menn til Lofoten á hverjum
vetri. En samt eykst aðsóknin
þangað með hverju ári, sem líð-
ur. Tala fiskimanna við Lofoten
1929 var rúm 27000, en sl. ár
voru þar 34000 sjómenn. Skýr-
ingin liggur sjálfsagt að nokkru
leyti í atvinnuleysinu. Þeir, sem
áður snéru sér að námagreftri
og iðnaði, snúa sér nú að sjón-
um, og unga fólkið fær þarna
lika spennandi og fjörugt félags-
líf, þegar annarstaðar er dauft
yfir og hvergi vinnu að fá. Norð-
menn halda siem sé í hundraða
og þúsundahópum til Lofoten,
l)egar allar aðrar bjargir eru
bannaðar.
Nú í markaðsvandræðumim
fylgjumst við íslendingar með í
J>ví af lifandi áhuga eiginhags-
munanna, hvernig veiðarnar
ganga við I.ofoten. Og brúnin
hækkar á fiskikaupmönnum
vorum í hvert skifti sem skeytin
herma lélegan afla og lítið fiski-
magn hjá Norðmönnum. Er slflit
ástand: illt og óheilbrigt. — En
hvað skal segja? — Mörmnm
finnst nær vera skinnið en skyrt-
an, og þetta er það einasta, sem
eykur vonirnar um, að. við neyð-
umst ekki til að kasta miklum
hluta fyrra árs fiskbirgða í sjóinn.
435/ atvinmi-
leysingjar
skrásettip á þrena
dðfinm.
Skráning atvinnuláusra verka-
manna, sjómanna, verkakvenna
o g iðnaðarmanna hefir farið
fram undanfarna : þrjá daga.
435 menn létu skrá sig, þar af
ein köna.
ALÞÝÐUBLAÐI
SUNNUDAGINN 5. MAl 1935.
SOGSVIRKJUNARDEILAN.
(Frh. af 1. síðu.)
og Iðnsamband byggingamanna,
og nýtur það að sjálfsögðu fulls
stuðnings af hálfu Alþýðusam-
bandsins, enda er það meðlimur
í því.
Þá hefir Verkfræðingafélag ís-
lands skrifað Bæjarráði og farið
fram á, að íslenzkir verkfræð-
ingar sætu fyrir vinnu við Sogs-
virkjunina.
Guðmundur Ásbjörnsson, sett-
ur borgarstjóri, liafði í gær tal
af Schröder-Pedersen verkfræð-
ingi og fulltrúa Alþýðusambands-
ins, Jóni Axel Péturssyni. Fulltrúi
Alþýðusambandsins lýsti því J>eg-
þr í stað yfir við borgarstjórann,
að Alþýðusambandið myndi því
aðeins ræða um samninga, að
fulltrúar frá Félagi járniðnaðar-
manna og Iðnsambandi bygginga-
manna væru með, og að ekki
kæmi til mála að Alþýðusam-
bandið gerði nokkra samninga
nema að samningiar tækjust um
leið við Félag járniðnaðarmanna
og Iðnsambandið.
Bifreiðastjórar halda fast
við kröfur sínar.
Kl. 8V2; i gærkveldi héldu bíl-
stjórar Vörubílastöðvarinnar
„Þróttur" með sér fund umSogs-
virkjunardeiluna, og samþyktu
allir fundarmenn að halda fast
við sínar fyrri kröfur um að stöð-
in flytji alt efni og áhöld tilheyr-r
andi Sogsvirkjuninni.- Lýstu þeir
því yfir, að þeir skyldu ábyrgj-
ast, að þeir gætu flutt alt það,
sem vegirnir þyldu, 0 g væru
reiðubúnir að setja tryggingu fyr-
ir, ef með þyrfti. Enn fremur
fólu þeir stjórn vörubílastöðvar-
innar að vinna lað framgangi kraf-
þnna í samráði við stjóm Dags-
brúnar og fulltrúa AJþýðusam-
bandsins.
Eins og sjá má á því, sem hér
fer á undan, ná þau samtök, sem
skapast hafa í þessari deilu, nú
þegar til allra verkamanna og
iðnaðarmanna, sem hagsmuna
hafa að gæta í sambandi við
framkvæmd Sogsvirkjunarinnar.
Og hagsmunir þessara manna eru
svo nátengdir hagsmunum allra
annara vinnandi manna í bæn-
um, að óhætt er að segja að hér
sé um að ræða hagsmuni bæjar-
búa Lbeild sinni. Þar við bætist
að Sogsvirkjunardeiian stendur
fyrst og fremst um það, hvort
erlendu firma skuli haldast uppi
að ganga á snið við samtök og
viðurkend réttindi verkamanna
og iðnaðarmanna hér á landi í
gróðaskyni. Það er augljóst, að
hið erlenda firma gerir það í
trausti þess, að samtök vinnandi
manna séu þeim mun veikari hér
á landi en annars staðar, að þau
hafi ekki bolmagn til þess að
hrinda af sér slíkri árás. En
verkamenn iog iðnaðarmenn i
Reykjavík munu sýna hinu danska
firma það innan skamms, að því
skjátlast i þessu efni.
Nýtt vltamin fundið.
KALUNDBORG 4/5.
Tveir danskir vísindamenn, dr.
Phil Henrik Dam og læknirinn
Fritz Schönhyder hafa fundiðnýtt
bætiefni (vitamin), sem hlotið
hefir nafnið K.-bætiefni.
Er uppgötvun þeirra þegar við-
urkend af vísindamönnum, og
þykir þetta allmikill viðburður.
(Fú.)
I DA6
Næturlæknir er í nótt Jóhann
Sæmundsson, Hringbraut 134,
sími 3486.
Næturvörður er í nótt í Reykja-
víkur- og Iðunnar-apóteki.
MÉSSUR:
Kl.ll Messa í dómkirkjunni, séra
B. J. (ferming).
— 2 Messa í dómkirkjunni, séra
Fr. H. (ferming).
—12 Messa í fríkirkjunni, séra
Á. S. (ferming).
— 2 Miessa í Hafnarfjarðarkirkju
séra G. Þ.
— 8 Messa í Aðventkirkjunni,
O. Frenning.
—10 Hámessa í Landakots-
kirkju.
— 6 KvöldguðsJ)jónusta með
predikun.
— 9 Hámessa í Spítalakirkju
Hafnarfjarðar.
— 6 Kvöldguðsþjónusta með
predikun.
ÚTVARPIÐ:
9,50 Enskukensla.
10,50 Þýzkukensla.
10,40 Veðurfregnir.
12,00 Messa í fríkirkjunni, ferm-
ing (séra Árni Sigurðsson).
15,00 Tónleikar frá Hótel ísland.
18.20 Þýzkukensla.
18,45 Barnatími: Æfintýr (Hallgr.
Jónsson kennari).
19,10 Veðurfregnir.
19.20 Tónleikar: Sönglög úr ít-
ölskum óperum (plötur).
20,00 Fréttir.
20.30 Upplestur (Árni Pálsson
prófessor).
21,00 Kórsöngur: Karlakór iðnað-
armanna (söngstjóri: Páll
Halldórsson).
21.30 Lög úr ópenettum (plötur).
Danzlög til kl. 24.
80 ára afmæli
á í dag Guðný Einarsdóttir frá
Nýlendu á Miðnesi, nú til heim-
ilis á Bakkastig 1 hér í bænum.
f Aðventkirkjunni
verður guðsþjónusta í kvöld kl.
8. Ræðuefni: „Hvert er tákn komu
þinnar og enda veraldar?“ Allir
hjartanlega velkomnir. O .Fren-
ning.
Staðarfellsskólanum
var slitið um mánaðamótin. —
Skólinn starfaði frá októbermán-
aðarbyrjun til .aprílmánaðarloka.
Fæði kostaði 1,04 kr. á dag. Heil-
brigði var mjög góð. Sýning var
haldin við skólaslit á handavinnu
námsmeyja. Voru að meðaltali 36
stykki frá hverri námsmey. Sýn-
ingin var vel sótt, og þótti mikið
til hennar koma. Að skólanum
loknum hófst framhaldsnámsskeið
í garðyrkju. Tíð er góð í Dölum
og búið að sleppa sauðfé. (FÚ.)
Það kostar mefr
að auglýsa ekki, þvi að
pað er
að borga fyrir aðra,
sem auglýsa og draga að
sér viðskiftin.
Góðnr afli fi Vest-
mannsseylnm á pess-
ari vertíð.
VESTMANNAEYJUM, 4/5. (FO.)
I Vestmannaeyjum hefir afli
verið tregari þessa viku. Þó hafa
nokkrir bátar aflað ágætlega í
net, alt að 3 þúsundum á dag.
Frá 15. apríl til 1. maí aflaðist
í Vestmannaeyjum 1724 smálest-
ir miðað við fullverkaðan fisk,
i en alls hafa aflast til 1. maí
fjórar milljónir 644 þúsund af
Jrorski, auk J>ess, sem selt fief-
ir verið nýtt i togara til útflutn-
ings, eða sent ísað í kössum.
Aflahæsti bátur er mótorbátur-
inn Frigg, eign kaupfélagsins
Fram, skipstjóri Sigurður Bjarna-
son frá Hlaðbæ, hefir hann aflað
124 þúsund af Jrorski.
Síld veður uppi við
Eyjainar.
Mikill stórfiskavaður hefirver-
ið upp undir landi í Vestmanna-
eyjum undanfarna dága, ogsegja
sjómenn að síld vaði mikið á
grunninu. Lagt hefir verið fyrir
síld undanfarna daga í víkinni;
og með urðunum, en ekki orðið
síldar vart þar að heitið geti.
Alt af í huga mér
heitir myndin, sem Nýja Bíó
sýnir um þessar mundir. Er það
amerísk tal- og tón-mynd. Að-
alhlutverkin leika: Barbara Stan-
wysh, Otto Kruger og Ralp Bil-
lamy. Aukamyndir eru: Gleðskap-
ur í gamla daga, teiknimynd í
einum þætti, 0g Ferðalög um
fagrar bygðir, fræðimynd í ein-
um þætti.
Tilkynning.
Nú er byggingarnefnd búin að
samþykkja að byggja handa mér
skúr við Laugarnesveginn á
Kleppsholtinu. Og það verður
byrjað á að byggja hann á þriðju-
daginn. Það var Magnús V., sem
sótti um þetta fyrir mig og jafn-
aðarmenn, sem samþyktu I>að.
Skúrinn á að heita Oddastaður.
Oddur Sigurgeirsson af Skagan-
um.
Þorsteinn frá Hrafnatóftum
endurtekur fyrirlestur sinn um
andleg mál í K.-R.-húsinu í dag
kl. 4 síðdegis. „Hann mun segja
frá mörgum merkilegum atriðum
handan að.“ Þeir, sem síðast
hlustuðu á Þorstein, voru mjög
ánægðir og hafa margir skorað
á hann að flytja fyrirlesturinn
aftur.
^
Hér með tilkynnist vinum og vandamönnum að' faðir okkar og
tengdafaðir, Guðmundur Jónsson, Bárugötu 5, verður jarðsungin þriðju-
daginn 7. þ. m. kl. 1. e. h. frá dómkirkjunni.
Hermann Guðmundsson. Guðlaug Klemensdóttir.
Skarphéðinn Guðmundsson.
Innilegt þakklæti færum við öllum þeim fiændum og vinum, er
sýndu okkiír velvild og vinarhug við fráfall og jarðarför minnar elsk-
uðu eiginkonu, móður, systur og dóttur okkar, Gíslínu Guðrúnu Krist-
insdóttur, á F amnesvegi 14 og heiðruðu útför hennar með návist
sinni og á annan hátt.
Aðstándendur.
______liýja Míó
I Alt af i huga mér.
Ever in my Heart.
Amerísk tal- og tón-kvik-
mynd. -- Aðalhlutverkin
leika:
Barbara Stanwyck,
Otto Kriiger og
Ralp Bellamy.
Aukamynd:
Gleðskapur í gamla daga.
Teiknimynd í 1 þætti.
Sýnd kl. 7 (lækkað verð) og
kl. '9.
Barnasýning kl. 5:
í krakkaleit.
Amerísk tal- og
tönskopmynd.
og Galdra-
Mickey Mouse
karlinn.
Teiknimynd í 1
Þar að auki
frœðimyndir.
þœtti.
gullfalleger
I. O. G. T.
STÚKAN Framtíðin nr. 173 held-
ur fund mánudaginn 6. maí kl.
8V2. Kosning og innsetning
embættismanna.
litel Borfl.
Kl. 3l/2—5.
Tónleikar.
Nýjung. Nýjung.
Hörpusóló.
Miss Peress.
Tvær jarðir.
Sveinatunga i Norðurárdals-
hreppi og Saurbær í Ölfushreppi
eru til sölu og ábúðar í fardög-
um. Upplýsingar hjá Fasteigna-
sölunni, Aðalstræti 8.
Heigi Sveinsson.
Minnisnlað 5 maí 1935:
Hús og aðrar fasteignir jafnan
til söiu. T. d.: 1. Litið járnvarið
timburhús, ein íbúð, útborgun kr.
3000. 2. Hálf húseign í Vestur-
bænum, sólrík, væg útborgun. 3.
Steinsteypuhús, tvær hæðir, öll
þægindi nema bað. 4. Timburhús
járnvarið ásamt úthýsi. Tvær í-
búðir. 5. Vandað, sólríkt nýtízku
steinsteypuhús, er stendur í stein-
girtri. velhirtri lóð. Tvær íbúðir,
stærri og minni. 6. Tvílyft stein-
steypuhis á Sólvöllum. 7. Hús í
miðbænum á stórri eignarlóð. Öll
þægindi. 8. Nýlegt timburhús j
Skildinganesi, ágætar íbúðir. 9.
íhúðarhús úr steinsteypu og
verkstæðishús með trésmíðavélum,
Lágt verð. 10. Nýtízkuhús, stein-
steypuhús, þrjár íbúðir. 11. Spá-
nýtt steinhús, fjórar íbúðír, öll
þægindi. 12. Nýtt steinsteypuhús,
sólríkt, tvær íbúðir o. m. m. fl.
Spyrjist strax fyrir hjá Fasteigna-
sölunni, Aðalstræti 8. Hús tekin
i umboðssölu. Annast eigna-
skifti. Viðtalstími 11—12 og 5—7,
Símar 4180 og 3518 (heima).
Helgi Sveinsson.