Alþýðublaðið - 03.11.1926, Side 3
3
A L PidudLAíID
SOLUNNI
seljum við meðal annars: Þykk og góð kápuefni frá 6 kr. pr. mtr. — Góð morgunkjólaefni á
4 kr. í kjólinn. — Hvít léreft frá 0,60 mtr. — Hvit flónel frá 0,68 m. — Tvisttau frá 0,76 m. —
Fiðurhelt léreft frá 1,35 mtr. og fleira eftir pví. — Vegna mjög mikillar aðsóknar viljum við biðja þá
heiðraða viðskiftamenn okkar, sem það geta, að korna fyrri hluta dagsins til þess að fá greiðari afgreiðslu..
MARTEINN EINARSSON & CO.
\
föstudaginn kemur í Iðnó. Sjá augl.
i blaðinu á morgnn!
Skipafréttir.
„Suðurland" kom í nótt úr Breiða-
fjarðarför. 1 morgun kom fisktöku-
skip til Ólafs Gíslasonar & Co. Það
heitir „Sollund'*.
íþökufundur
er í kvöld.
ísfisksala.
Togarinn Ólafur seldi afla sinn í
fyrra dag í Englandi fyrir 1190
sterlingspund.
Verkamannafélagið „Dagsbrún41
hefir opnað skrifstofu i * Ung-
mennafélagshúsinu við Laufásveg.
Veðrið.
Hiti mestur 2 stig, minstur 13
stiga'frost (á Akureyri). Átt víðast
austlæg. Hvassviðri í Vestmanna-
eyjum. Annars staðar lygnara. Purt
veður, nema lítil snjókoma á Rauf-
arhöfn. Djúp loftvægislægð fyrir
suðvestan lahd. Otlit: Austanátt í
dag, hvöss á Suðvesturlandi, víða
vaxandi. Regn á Suðvesturlandi í
dag og við Faxaflóa og Breiðafjörð
í nótt. Sennilega verður dálítil snjó-
koma í nótt á Vestfjörðum og úr-
koma á Suðausturlandi. Á Suður-
landi verður áttin i nótt sennilega
suðvestlæg og suðlæg.
Svo mikil aðsókn
hefir verið að útsölu Marteins
Einarssonar, að loka varð búðinni
öðru hvoru í igær óg fj'rra dag.
Gjöf til námamannanna ensku.
Kaffihúsið „Grænland“ tilkynnir:
Helmingur alls, sem kenmr inn á
morgun fyrir selt kaffi, öl, sítrón
og vindlinga, gengur til samskota
ensku námamannanna.
Togararnir.
„Þórólfur" kom frá Englandi i
gær og fór á veiðar i nótt.
Sveinn Ólafsson
alþingismaður í Firði hefir skrif-
að grein, sem birtist í síðasta tölu-
blaði „Tímans" og kallast „Skradd-
araþankar Jafnaðarmannsins'". Er
Rjarta~ás
smjerlikið
er bezt.
Ásgarður.
hún svar við átölum, er ritstjóri
,Jafnaðarmannsins“ veitti Sveini fyr-
ir svigurmæli um jafnaðarstefnuna
og jafnaðarmenn í ræðu á sam-
komu. Grein Sveins er venjulegt
burgeisaþvaður, að eins dálitið bet-
ur orðað, en gerist hjá Ihaldsblaða-
mönnum. „Morgunblaðið“ Ihaldsins
fagnaði lika greininni mjög á sunnu-
daginn. Neyðarlegri viðurkenningu
gat „Framsóknar“-maðurinn Sveinn
ekki fengið.
Gengi erlendra mynta í dag:
Sterlingspund.... . kr. 22,15
100 kr. danskar . . . . — 121,57
100 kr. sænskar . . . . - 122,24
100 kr. norskar . . . . — 114,88
Dollar . — 4,573/
100 frankar franskir. . . - 14,71
100 gyllini hollenzk . . - 183,21
100 gullmörk þýzk . . . — 108.87
Frá fisksölunum.
1 auglýsingu hér í blaðinu í gær
frá Jóni & Steingrími vantaði sölu-
stað þeirra, sem er „Fiskplaniö",
sími 1240. Eggert Brandsson hefir
sinn sölustað á Bergstaðastræti 2.
Áheit á Strandarkirkju.
Fró Ó. Ó. kr. 2,00.
t _______________________ '
Ödýrar máininpr-vörur.
Til að rýma fyrir öðrum vörum
vil ég selja allar máJningar-vör-
urnar fyrir afar-lágt verð.
Máíarar og húsasmiðir!
Notið þetta sjalagæfa tækifæri og
birgið yður upp. Yður býðst ekki
annað eins verð á málningu í bráð.,
Sigurður Kjartansson,
Laugavegi 20 B.
Simi 830. Simi 830.
„Morgunblaðið4*,
hi,ð óþjóðlega burgeisablað, held-
ur áfram rógi sínum um kolanemana
ensku, og mun það fremur efla.
sarntök íslenzks verkafólks til styrkt-
ar þeim, heldur en að hið auvirði-
lega auðvaldsblað nái öðrum á-
rangri. Nú þykist útgerðarmanna-
blaðið vera að tala máli atvinnu-
laúsa fólksins liér, sem ódugnaður,
ef ekki illgirni, útgerðarmanna hef-
ir svift atvinnunni. Blaði þeirra tekst.
ekki að rægja verkamenn saman,
allra sízt á meðan eigendpr þess;
eru með slóðaskap sínum að gera.
tilraun til að svelta þá, sem safn-
,að hafa auði þeirra. Þeim Flekk
er ekki til neins að gelta oftar íi
þeim tilgangi.