Alþýðublaðið - 04.03.1920, Síða 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ýkomi
Olíukönnur, Smurningskoppar, Hamrar, Axir, Sagir,
Merkjastafir, Brýni, Trélim, Tin, Fiskihnífar, Asbest
þynnur og þræðir, Tólgarpakning, Herkulespakning.
Franskar niðursuðuvörur
svo sem: Sardínur, Sultutau, Blandaðir ávextir,
Postei, Kæfa, Flesk (steikt) og margt íl.
Heildsala. Smásala.
Klossar í miklu úrvali fyrir fullorðna og bðrn einnig klossatré o. fl.
E. Chouillou
Simi 191. Hafnarstræti 17.
FulltrUaráðsfundur
verður haldinn föstudaginn 5. marz kl. 71/* á venju-
legum stað.
Frnmlivæmdastjórnin.
Koli kotiangur.
Eftir Upton Sinclair.
Önnur bók:
Prœlar Iiola konungs.
(Frh.).
Hallur bað um hálft kfló af
sveskjum, til þess, að hafa ástæðu
til að vera kyr, og meðan sveskj-
urnar voru afhentar, settist hann
upp á búðarborðið og sagði: „Eg
hefi líka verið við verzlun".
„Einmitt það, hvar þá?“
„í American City hjá Petersen
Co“. Hallur var svo oft búinn að
segja þetta, að hann var sjálfur
farinn að trúa því.
„Er gott verð þar?"
„Já, ekki sem verst“. Um leið
datt honum í hug, að hann vissi
ekkert um það hvað var gott
verð, og flýtti sér því að segja:
„Eg hefi meitt mig hérna í úlf-
liðnum“.
„Svo já“, sagði hinn. Það var
varla hægt að segja, að hann væri
orðmargur, en Hallur hélt áfram.
Hann trúði því ekki, að nokkur
væri í sveitaverzlun, sem léti tæki
færið ónotað ganga úr greipum
sér, þegar um stjórnmál var að
ræða, jafnvel þó verkamaður ætti
i hlut.
„Segið mér eitt", sagði hann,
„hvað er eiginlega athugavert við
Mac Dougall?“
„Hvað að honum er?“ át dóm-
arinn eftir, „auðvitað það, að fé-
lagið er andstæðingur hans".
Hann leit hvast á Hall, en ungi
maðurinn var svo sakleysislegur á
svipinn og virtist sætta sig full-
komlega við svarið, svo dómarinn
fór að segja nákvæmar frá ókost-
um frambjóðandans. En þegar
uroræðurnar voru komnar af stað,
leið ekki á löngu, áður en hinir
sem voru í búðinni tóku líka þátt
í þeim — Bob Jónsson, sem var
bókhaldari og póstmeistari, og
Gyðingurinn frá Galisíu, Jak Pre-
dovitsch, sem var í skólanefndinni
og sem kunni höfuðgreinar verzl-
unarfræðinnar á fimtán tungumál-
um.
Hallur fékk lýsingu á löstum
og glæpum mótflokksins. Mac
Dougall, sem var frambjóðandi
þeirra, hafði komið til fylkisins
sem hórkarl, og nú ferðaðist hann
um og prédikaði í kirkjunum um
þjóðfélagslilfinningar. „Og þessi
náungi er frambjóðandi, sem á
þrjár fjölskyldur f Pedro!" hróp-
aði Silas Adams.
Árekstnr. Togarinn Rán sigldi
í gær á mótorbátinn Elliða og
laskaði hann svo að hann sökk,
áður en hann komst að landi.
Rán var að bjarga enskum togara
frá því að lenda á hafnargarðinum.
Voru settir belgir þar sem hann
sökk og er siglutréð einnig leiðar-
vísir, því það stendur að nokkru
upp úr sjónum. Bátnum verður
vafalaust náð upp strax og um-
hægist. Nú er hann á siglingaleið
beínt fram af steinbryggjunni
gömlu.
Stranð. Franskan togara rak
á land í fyrradag upp í Örfirisey,
innan hafnargarðsins. Getur hann
varla verið skemdur til muna,
því sandur er þarna í krykunum
og ekkert hafrót á höfninni. Geir
fór af stað í gærdag og ætlaði að
reyna að ná út togaranum, en
þegar hann dró upp atkeri sitt,
dró hann að sér atkeri Suðurlands,
svo það losnaði uþp og brotnaði í
því annað siglutréð og varð fyrir
meiri skemdum, auk þess sem það
braut Bkrúfuna á koksskipinu og
laskaði það eittvað meira. Varð
Geir nú að koma Suðurlandi til
hjálpar, svo ekkert varð úr því,
að hann tæki franska togarann
út í þetta sinn.
Prír menn hafa sótt um vara-
slökkviliðsstjórastöduna, en þ»ð
eru Kristófer Sigurðsson járnsmið'
ur, Kjartan Ölafsson, Bergstaða-
stræti 32, og Óskar Bjartmarz
Grnndarstíg 3. Brunamálanefnð
hefir lagt það til að hinum fyrst-
nefnda verði veitt staðan. Árslautt
eru 2000 kr. hækkandi annað
hvort ár upp í 3000 kr. Byrjun-
arlaunin eru ásamt dýrtíðarupp"
bótinni samtals 4400 kr.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Ólafnr Friðriksson.
Prentsmiðjan Gutenberg.