Alþýðublaðið - 24.11.1926, Síða 2
2
ÁLPÝÐUBLAÐIÐ
ÍAJLHÝB.U.B:M9Eft |
3 kemur út k hverjuin virkum degi. I
* Afgreiðsla í Alpýðuhúsinu við í
| Hveríisgötu 8 opin frú ki. 9 árd, f
3 til kl. 7 síðd. [
J Sbiifstofa á sama stað opin kl. ►
í OVa—10Va árd. og kl. 8—9 síðd. £
< Simar: 988 (afgreiðslan) og 1294 ►
} (skrifstofan). t
j Verðlag: Áskriftarverð kr. 1,00 á *
3 mánuöi. Auglýsingaverð kr. 0,15 i
} hver mm. eindálka, t
3 Prentsmíðja: Alþýðuprentsmiöjan t
(f sama húsi, sömu simar).
Bannábugi „Mogga“.
Pað er skamt að minnast síð-
ustu kosninga. Þá var Ihaldið að
hæla sér aí því, að það væri með
bannmann á landslista og að í-
haldsflokkurinn hefði gefið út
yfirlýsingu um það, að hann væri
hlyntur bindindi(l). Þetta þótti
ýmsum lítilsigldum íhalds-bann-
mönnum ágætt, og voru þeir
hreyknir af að tilheyra slíkum
flokki, þótt hann hefði í kjöri
tvo fyllirúta, sem áttu vísa kosn-
ingu. Allir vissu það, að íhaldið
meinti ekkert með þessu annað
en að gefa íhalds-templurunum
sálarfriðandi ,,Volta-kross“, sem
þeir gætu veifað framan í félags-
bræður sína við kosningarnar. Nú
hefir „Moggi“ sýnt innræti sitt
að nýju. Um leið og fyrstu
fregnir koma um atkvæðagreiðsl-
una í Noregi, þ. e. að bannmenn
hafi tapað, þá hlakkar brennivíns-
görn íhaldsins, og „Mogga“-skrif-
ararnir eru látnir taka upp fagn-
aðarýlíur norsku brennivínsblað-
anna og ekkert um það hirt,
þótt frásagnirnar séu einhliða og
rangar. Tilgangurinn er auðvitað
sá sami og áður að reyna að
skaða bannhugsjónina, — reyna
að láta sigur norsku andbanning-
anna hafa þau áhrif hér, að
bannið verði afnumið, og að bjór
og brennivín fái óhindrað að fara
yfir landið. Að því hefir „Moggi“
unnið eftir megni, og áfram mun
hann halda á þeirri braut. En
hvað segja Templararnir, vinir
„Mogga“ og flökksmenn íhalds-
ins? Ætla þeir að vinna með í-
haldinu að þessu takmarki ? Er
það til þess, sem þeir vilja fá
stjórn reglunnar í sínar hendur?
Bannmadur.
Gin- óg klanfe-sýMn.
Verður henni hleypt inn i*
iandið?
Ekkert hefir enn heyrst um það,
hvort stjórnin hér ætlar að banna
innflutning á heyi frá Noregi og
öðrum sams konar vörum og
bannaður er innflutningur á frá
Svíþjóð og Danmörku. Hvað lengi
það á að dragast, veit enginn eöa
fáir. I grein í „Morgunblaðinu"
um gin- og klaufa-veikina er birt-
ist 18. þ. m., segir meðal ann-
ars, að ekki sé ástæÖa til að þjóta
upp til handa og fóta og banna
innflutning á heyi frá Noregi, þar
sem lítil smitunarhætta stafi af
heyi. I greininni virðist felast
játning um það, að á bak við sé
verið að hinkra við og sjá til,
með hvaða vörutegund eða með
hverju helzt að veikin muni geta
borist hingað til landsins, og ætti
þá að hlaupa upp tii handa og
fóta, þegar búið væri að sanna
vísindaléga, með hverju hún hefði
komið. En væri það ekki orðið
um seinan, þegar fara þyrfti að
grafa gripi, brenna hús og ein-
angra heil héruð o. s. frv. upp á
landssjóðs-kostnað ? Hversu rnikið
þolir landssjóður af því tagi?
Hér er um alvarlegra mál að
ræða en að það þoli, að skelt sé
við því skolleyrunum. Þeir fáu
valdsmenn, sem þar um hafa úr-
skurðarvald, mega ekki stofna
þjóð sinni í voða visvitandi án
þess að hreyfa hönd eða fót.
Mætti í sambandi við þetta minn-'
ast á spönsku veikina árið 1918,
sem vísvitandi var hleypt inn í
landið án þess, að nokkuð væri
gert til varnar, en orsakaði þó,
eins og kunnugt er, mörg hund-
ruð manna dauða á örstuttum
tíma, og hefði orðið meira, hefðu
ekki verið varin einstök héruð
landsins af héraðsbúum sjálfum,
eftir að veikin var farin að geisa.
Ættum við nú að þola álíka van-
rækslu og skey'tingarleysi að nýju
af þeim, sem með völdin fara?
Enska stjórnin bannaði þegar
í stað innflutning á norsku heyi,
þá er veikin kom upp í Noregi,
og það þó lítið eða ekkert hey
sé flutt þaðan til Englands. En
hingað er flutt inn hey í stór-
um stil með hverri skipsferð frá
Noregi þjóð vorri tO skaða og
skammar. En það fara að verða
smámunir, þö hey sé flutt inn
og: iandbúnaði hnekt og atvinna
fólks eyðilögð, móts við það að
flytja gin- og klaufa-sýkina inn
í landið og eyðileggja allan land-
búnaðinn með því.
Reykjavík, 22. nóv. 1926.
0. J. Hvanndal.
Usss dagksi og veginn.
Næturlækúir
'íj í nótt Matthías Einarsson,
Kirkjustræti 10, sími 139, heimasími
i Höfða 1339.
Atvinnubæturnar.
Orðsending frá borgarstjóranum.
— Bæjarstjórn Reykjavíkur efnir til
nokkurrar \dnnu fyrir atHnnulausa
menn, sem hafa þung heimili og
eiga framfærslusveit í Reykjavík.
Fátækrafulltrúamir Jón Jóhannsson,
Sigurjón Á. Ölafsson og Samúel Öl-
afsson hafa verið skipaðir í nefnd
til að velja þá menn, sem mest
þarfnast þeirrar hjálpar, sem hér
verður látin í té, en sem er af
skornum skamti. — Nefndin hefir
skrifstofu í Suðurgötu 15, og geta
atvinnulausir menn gefið sig þar
fram kl. 1—4 á virkum dögum fyrst
um sinn.
Sjómannafélag Reykjavíkur
heldur fund í kvöld kl. 8Vs i
Báruhúsinu uppi. Þar leggur nefnd
fram tillögur sínar um tilnefningu
í stjórn. Rætt verður um atvinnu-
leysið og Haraldur Guðmundsson
flyíur erindi uin koladeiluna ensku.
Félagarnir eru beðnir að fjölmenna
og mæta stundvislega.
Skráning atvinnulausra manna,
þeirra, er ekki eiga framfærslu-
sveit í Reykjavík, fer fram næstu
daga í Alþýðuhúsinu að tilhlutun
framkvæmdastjórnar fulltrúaráðs
verkiýðsfélaganna og byrjar kl. 10
í fyrra rnálið. Skráning þessi er gerð
sökunr þess, að meiri hluti bæjar-
stjórnarinnar hefir ekki fengist til
að láta fara fram skráningu á þeim,
en nauðsynlegt er, að vitað sé um
ástand þessa fjölmenna hóps. Skor-
að er á atvinnulausa menn, sem
ekki eiga hér framfærslusveit, að
koma og láta skrá sig, ef vera:
kynni, að skráningin yrði til þess,
að ýta undir, að atvinnubótavinna
fengist handa þeim.
Skipafrcttir.
„Nordland'* kom i morgun með
kol til kolakaupmanna hér.
Frðnsk söngkona,
Germaine le Senne, frá söngleika-
húsinu í París, er komin hingað, og
heldur hún söngskemtun í Nýja Bíó
á morgun kl. 7Va e. h.