Alþýðublaðið - 08.03.1920, Qupperneq 3
Jakob Möller að kenna, að 5.
þingmaðurinn fékkst ekki.
Annars segja sumir að Jakob
hafi „sett sig svo prýðilega inn <“
hlutverk „Kotstrandarkvikindisins",
er hann lék það a( sniid í „Lén-
harði fógeta", að hann leiki það
æ síðan. Sé þetta svo, sem varia
verður í vafa dregið af ýmsum
athöfnum hans, þá er honum vork-
unn þó ýmislegt fari honum hálf
illa úr höndura.
*/.. i.
Jolsivikastjérnm
og keimsbyitingu
Khöfn, 28. febr.
í’réttaritari ameríska blaðsins
New-York World símar frá Moskva,
að Sovjet stjórnin (Leninstjórnin)
sé hætt við að reyna að koma á
heimsbyltingu. Það hlutverk hafi
verið falið „þriðja alþjóðaverka-
mannasambandinu“ (3. Internation-
ale) sem var myndað í marzmán-
uði 1919, sem ekki heíir neitt
opinberlega viðurkent, samband við
bolsivíkastjórnina i Moskva, „hinni
helgu borg“ heimsbyitingarmanna.
Ennfremur að bolsivikaíoringinn
Zinovieff segi að alþjóðavm.sam-
bandið (Internationale) sé það verk-
færi sem gera eigi með heims-
byltinguna, og að unnið verði af
kappi að henni hvað sem tauti,
bæði á löglegan og ólöglegan hátt.
Sovjet-stjórnin geti lofað að starfa
ekki að því að koma á heimsbilt-
ingu, en alþjóðaverkamannasam-
bandið hvorki viiji né geti gefið
slikt loforð.
friðartitboð bolsivíka.
Khöfn 27. febr.
Bolsivikinn Litvínoff hefir frá
Moskva sent Reuters fréttastofu
skeyti um að bolsivíkastjórnin
tússneska hafi sent Japan og Rúm-
eniu friðartilboð. Ennfremur að
ílkraine [sem er á valdi bolsivíka]
hafi boðið Pólverjum frið, og að
í'andamenn geti ekki komist hjá
bví að semja formlegan og algerð-
aú frið við bolsivíkastjórnina.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Um daginn og veginn.
Kaupfélag stofnað. Nýtt kaup-
félag hefir verið stofnað hér í
Reykjavík og heitir „Kaupfélag
Reykjavíkur*. Hefir það þegar
fengið 300 meðlimi. Formaður er
Héðinn Valdimarsson skrifstofu-
stjóri.
Samkomnbann var sett á í gær
jafnskjótt og fréttist um infiúenz-
una. Var stöðvuð skemtun sem
Lestrarfélag kvenna hafði ætiað
að halda, og stór samkoma í K
F. U. M. Auk þess bannaðar
messur og barnaspurningar.
Skrifstofn setur infiúenzunefnd-
in á stofn í dag í Barnaskólanum,
til undirbúnings undir það ef sótt-
in fer um allan bæinn. Verður
settur upp f skólanum 100 rúma
spítaii, og eru 20 rúmstæðin full-
smíðuð, en 40 verða tilbúin í dag.
Auk rúmstæðanna er komið ( skói-
ann 100 madressur og 100 púðar,
200 lök og 100 fiðurkoddar, sem
nefndin hefir látið búa til síðan
um daginn að hún var kosin.
Kntter „Háfsteinn“ kom inn
um heigina með lítinn afla. Hrepti
hann versta veður, brotsjór kom
á skipið, svo brotnaði skipsbátur
og fiskikassi. Eftir það var skipið
varið brotsjóum, með þvi að fleygja
út lifur er til var innanborðs. 3
skip eru ókomin inn ennþá eftir
mestu veðrin.
„Hilmir“ heitir nýkeyptur tog-
ari sem kom fyrir helgina. Skipið
er að sögn 7 ára gamalt, mjög
laglegt að sjá. Skipstjóri er Jón
Arnason frá Heimaskaga. Fram-
kvæmdastj. er Guðm. Kr. Guð-
mundsson skipamiðlari.
Yerkfall hafa skipstjórar, vél-
stjórar og hásetar gert á öllum
togurum, sem ganga frá Fleetwood
á Engiandi. Hvaða kröfur þeir
gera er ekki ábyggileg vissa fyrir.
Þegar síðustu skip fóru þaðan var
ekki sainkomulag orðið.
3
Jjolsivikar og Rðœenar.
Khöfn 1. marz.
Bolsivíkar draga ssman ógrynni
liðs á landamærum Rúmeníu.
Araeríkumenn ojf
1> olsivíkar.
Khöfn 29. febr.
Prá Washington er símað, að
unanríkisráðuneytíð ætli ekki að
ansa friðartilboði bolsivíkanna
rússnesku.
Sólin og klukkan.
(Aðsent)
Nýlega stóð í „Vísi“ stutt, en
einkennileg grein um hina svo-
nefndu búmannsklukku. Nefnir höf.
sig Búmann. Fagurt er nafnið,
víst er um það. En að maður
þessi beri nafnið með rentu, er eg
fremur í efa um. En því skai
slept. En það er annað. Eg er
ósköp hræddur um, að þessi
klukkufærsla snúi ekki alveg rétt
í höfðinu á manninum, Eg hefi
altaf hugsað að klukkan væri sett
eftir sólinni. Og ef það reyndist
svo, að klukkan væri ekki rétt
nema henni bæri saman við sólina,
þá þyrfti að flýta sólinni líka, ef
klukkunni er flýtt. Sennilega treystir
„Búmaður“ sér til þess, að bregða
sér upp á við og ita sólinni dálítið
áfram. Þvi ef hann er sannur bú-
maður, vill hann líklega hafa sam-
ræmi milli hlutanna. Og ef hann
á einhvern hátt ekki yrði einfær
um að koma á réttu samræmi
milli sólar og klukku, væri Jónas
Klementsson vís til að fylgja hon-
um að málum. En færi nú svo,
að þeir, einhverra hluta vegna,
ekki gætu komið þessu í fram-
kvæmd, yrði sólin að vera óhreyfð.
Og þá held eg að réttast væri að
klukkan yrði látin vísa samkvæmt
sólinni, eins og verið hefir ,frá
upphafi.
Steingrímur.