Alþýðublaðið - 10.01.1927, Page 1
1927.
Mánudaginn 10. janúar.
7. tölublað.
Jarðarför mannsins n&ins Magnúsar Þorsteinssonar
fer fram I>riðndaginn 11. þ. m. frú heimili okkar
liindargötn 32 kl. 1 e. h.
Guðbjörg M. Syvindsdóttir.
Björgúlfur 1 Olafsson
læknir
fekiiF á méti s|sMdingtmi á Laiagavegl 10
Ciappi) fel. 11 — 12 og3-4.
Sénfii 1221. HeimasÍBfiai 1127.
Jafnaðannannafél. íslands.
Fundur annað kvöld priðjud. 11 jan.'kl. 8Vs í Kauppingissalnum.
1, Ásgeir Ásgeirsson flytur fyrirlestur. 2. Lotteríið. Önnur mál.
Fundurinn er að eins fyrir félagana. Fjölnrennið. Lyftan í gangi.
Stjórnin.
Sdttvarnir
vegna „infMenzu“
(„spænskrar veiki").
Út af skeyti um útbreiðslu „in-
flúenzu“ („spænskrar veiki“) í Ev-
rópu hefir heilbrigðistjórnin sent
sendihierra Islands í Kaupmanna-
höfn fyrirspurnir um veikina til
pess að geta gert nauðsynlegar
rá'ðstafanjr um sóttvarnir, ef purfa
pætti. Svarskeyti sendiherrans
fara hér á eftir:
Khöfn, 8. jan.
„Inflúenza" breiðist nú út um
alla Evrópu. Á Spáni, Suður-
Frakklandi og Sviss er hún skæð,
annars staðar ekki. Væg „inflú-
enza“ hér, útbreidd á Jótlandi, en
enn pá ekki útbreidd í Kaup-
mannahöfn, einnig væg í Noregi,
pó sögð skæð í Kristianssand. Bú-
ist er við frekari farsótt hér og
ger'ður viðbúnaður, en hvergi í
Danmörku bannaðar samkomur
enn. Samkomubann í Sviss, en
ekki frétt um slík bönn annars
staðar. Skólar hér og annars stað-
ar sýna varú'ð, halda börnum frá
smituðum heimilum.
Khöfn, 9. jan.
„Skæður“ pýðir manndauða,
„vægur“: enginn manndauði og
söttin yfirleitt mjög létt. Ómögu-
legt að segja um manndauða
„procentvis“. Sem dæmi um pað
skæðasta er bærinn Montpelíier
á Suður-Frakklandi með níutíu
púsund íbúa. Þar dóu hundrað á
prem dögum. Aðalástæða til
manndauða er lungnabólga. „In-
flúenzan“ hefir útbreiðst á
skömmum tínra á Norðurlöndum
og yfirleitt í Evrópu. Hefir hún
einkenni spænskrar veiki í Suð-
ur-Evrópu, par sem hún er skæð,
en alls ekki annars staðar. í
Kaupmannahöfn er bún ekki tai-
in „epidemisk“ (skæð) enn.
Sakir pessara fregna hefir nú
heilbrigðisstjórnin sent út svo-
hijóðandi
Fyrirskipanir heilbrigðistjórn-
arinnar vegna „inflúenzu“:
Illkynjuð „inflúenza" á Spáni,
Suður-Frakklandi, Sviss og Krist-
danssand í Noregi. Bráðabirgðaráð-
stöfun: Einangrið öll aðkomuskip,
par til liðnir eru sex sólarhringar
frá pví, að pau létu út úr er-
lendri höfn. Ef pá eru aliir frísk-
ir, má leyfa óhindruð mök við
land. Meðan skip er í sóttkví,
má ferma og afferma, ef gerlegt
pykir án þess, að skipsmenn eigi
nein smithættuleg mök við lands-
menn.
I samræmi við petta er slept
viðkomu „Lyru“ í Vestmannaeyj-
um, en viðskiftum við skipið verð-
ur hagað pannig, að skipsmenn
láta vörur %inir á land, en menn
úr landi mega ekki fara út í skilp-
ið. Ef menn purfa óhjákvæmilega
að fara út í útlent skip, verða
peir sóttkvíaðir í 6 daga á eftir.
Erl©ifi<i siiisskeyti.
Khöfn, FB., 8. jan.
Kina- málin.
Frá Hankow í Kina er símað,
að svo virðist sem undanhald
Englendinga hafi sefað æsingarn-
ar, en pó er búist við, að pað sé
að eins í bili. Ástandið er enn af-
ar-ískyggilegt og . ógerningur að
spá um, hvað gerast kunni.
Khöfn, FB. 9. jan.
Kinverjar og Bretar.
Frá Shanghai er símað, að
samningur hafi verið gerður á
ismanns Breta í Hanlíow pess efn-
is, að Kínaher fari af uinráða-
svæði Breta og peir fái par aftur
yfirráðin.
Bretar flýja Kiukíang.
Frá Kiukiang er símað, að Bret-
ar flýi bæinn.
Járnbrautarslys á Rússlandi.
Frá Moskva er símað, að hrað-
lestarslys hafi orðið á milli Mos-
kva og Irkutsk. 16 rnenn fórust,
en 26 hlutu meiðsli af.
Brezk blöð liggja Chamberlain
á hálsi fyrir aðgerðarleysi i
Kínamálinu.
Frá Lundúnum er símað, að
ihaldsblöðin brezku ásaki Cham-
berlain um aðgerðaleysi í Kína-
málum, og telja þau undirróður
Rússa orsök óróans.
Plsageya*!.
Viðtal við formann verklýðs-
félags Þingeyrar.
1 haust var stofnað verka-
mannafélag á Þingeyri, er pá peg-
ar gekk í Alpýðusamband Islands.
Formaður félagsins, Sigurður
Fr. Einarsson, er nú á ferð hér í
bænurn, og hefir Alþýðúblaðið átt
viðtal við hann.
— Hvernig eru atvinnuhorfur
vestur par? spyrjum vér.
— Atvinnuhorfur éru mjög
slæmar á Þingeyri, segir Sigurður,
miklu erfiðara ástand og verra
útlit en áður hefir verið, vegna
stöðvunar á verzlunar- og at-
vinnu-rekstri Proppé-bræðra, en
peir hafa verið aðalatvinnurekend-
ur þar undanfarið.
— Alpýðubiaðið hefir fengið
fregnir að vestan um pað, að tals-
vert kveði að verklýðsfélaginu.
— Já, segir Sigurður. Það er
talsvert fjör í félagsskapnum, og
menn eru vel samtaka um það að
koma öllum vinnandi mönnum í
félagið, og sú sampvkt hefir verið
Séra Jakob Kristinsson
endurtekur erindi sitt um
komu mannkynsfræðara,
priðjudag 11. jan.
kl. 7>;Ve. m.
Tölusettir aðgöngumiðar á cína
krónu í Bókaverzlun Sigf. Eymunds-
sonar og við inngangin, ef eitt-
hvað verður eftir.
gerð að vinna eigi með utanfé-
lagsmönnum.
— Eru þá margir verkamenn
utan félagsins? spyrjum vér.
— Ekki nú orðið. Þeir eru ekki,
pað ég veit', nerna prír, verka-
menh á Þingeyri, sem eru utan fé-
lagsins, en félagsmannatalan í
verkamannafélaginu er nú kom-
in á annað hundrað.
Annars langar mig til pess að
segja yður frá því, að verka-
mannafélagið hefir orðið fyrir
höppum. Hafa pví hlotnast óvænt
tvær peningagjafir. Önnur gjöfin
var sjóður gamla verkamannafé-
lagsins, en hin var frá bindindis-
félagi, er starfaði einu sinni á
Þingeyri, en hafði ákveðið, að
sjóður pess skyldi ganga til
verkamannafélags eða bindindis-
félags, hvort sem fyrr yrði stofn-
að.
Vér pökkum Sigurði fyrir frá-
sögnina og óskum Verklýðsfélagi
Þingeyrar allrar hamingju i störf-
um sínum á nýbyrjuðu ári og í
allri framtíð.
Stökufi*.
Inni flestir una nú
eða kuldann flýja.
Hryssingslega heiisar pú
höldum, árið nýja!
Oft þ'ú, Norðri! ygiir brá,
og ýfir kuldi harma. —•
Sendu oss, drottinn! suðri frá
sólskin, ijós og varma.
3. jan.
ísfjörd.
Fyrirlestur Sigurðar búnaðar-
málastjóra
í gær um Grænland var sæmi-
lega sóttur. Lýsti Sigurður lands-
háttum par og sýndi myndir af.
Var fyrirlesturinn einkarfróðlegur.
Hjónaband.
Á föstudaginn var voru gefin
saman í hjónaband Ingveldur
Árnadóttir frá Reykjahvoli og
Vígmundur Pálsson bifreiðar-
stjóri, Laugavegi 73. Séra Hálfdan
Helgason á Mosfelli gaf pau sam-
an.