Alþýðublaðið - 27.05.1935, Page 4
MÁNLPDAGINN 27. MAÍ 1935.
M GAMLA BIO
Kviksettur.
Afar fjörug taimynd í 8
þáttum eftir samnefndri
skáldsögu Arnold Benn-
etts, sem hefir verið þýdd
á íslenzku.
Aðalhlutverkin leika:
LILIAN GISH og
ROLANI) YONG.
Síðasta sinn.
Hðtoth]oi
til sölu, ódýrt. Uppl. Lokastíg
24 A, kl. 12—2 næstu daga.
Sköfatoaður.
Brúnir leðurskór með hrá-
gúmmísólum og hælum.
Stærðir: 36 til 41 kr. 5,75
do. 42 — 45 — 6,50
Strigaskór með gúmmíbotn-
um.
Stærðlr: 22—28 Verð 1,90
do. 29—35 — 2,50
do. 36—42 — 3,00
Karlmannaskór úr leðri 9,00
Skð?. B. Stefáussonnr
Laugaveg 22 A. — Sími 3628.
Plöntasalan
á Suðurgötu 12
hefst fyrir alvöru
í dag.
Lesið auglýsingu í auglýs-
ingadagbókinni í dag.
„Gullfoss“
fer annað kvöld (28. maí) í
hraðferð vestur og norður.
Farseðlar óskast sóttir fyrir há-
degi sama dag.
„Dettifoss"
fer á miðvikudagskvöld (29.
maí) um Vestmannaeyjar til
Hull og Hamborgar.
Farseðlar óskast sóttir fyrir há-
degi sama dag.
F. IJ. J.
F. U. J.
AlÞfBUBUB
Danzlelk
heldur félag ungra jafnaðarmanna miðvikudaginn 29.
maí I Iðnó kl. 10 e. h.
Aðgöngumiðar verða seldir frá kl. 4 á miðviku-
dag í Iðnó.
Hljómsveit Aage Lorange
leikur undir danzinum. — Munið! Allir í Iðnó mið-
vikudagskvöld.
Skemtinefndin.
AhqIísídq nm síldarkanp.
Hefi verið beðinn að útvega ferska síld til söltunar á
Siglufirði n. k. síldarvertíð, af 1—2 skipum. Þeir, sem vildu
sinna þessu, geri svo vel að hringja( í síma 9210 eftri kl. 8 að
kvöldi og verða þá gefna allar frekari upplýsingar.
Hafnarfirði 27. maí 1935.
Öskar Jónsson.
Frh. af 1. síðu.
SOGSDEILAN
flutningana, eins og Berdal hafði
gei't ráð fyrij í útreikningum sín-
um.
Með hinni opinberu upptöku
danska firmans Höjgaard &
Schultz í Atvinnurekendafélag
Islands, undir forystu Eggerts
Claessens, er það sýnt, hvaðian
firmanu hefir komið stuðningur
í deilunni við iðnaðarmenn, verka-
menn og bifreiðastjóra, og hvað-
an sá stuðningur muni koma í
framtíðinni.
Hin ósvífna framkoma þessa
danska auðfélags og framkvæmd-
arstjóra þess, meðan hann dvaldi
hér á landi, gegn reykvískum
verkalýð, er auösjáanlega sprottin
af því, að versta íhaldsklíkan hér
í Reykjavík, sem er um leið í
framkvæmdanefnd atvinnurek-
endafélagsins, miðstjórn Sjálf-
stæðisflokksins og útgáfufélagi
Morgunblaðsins, hefir hvatt hann
og róið undir.
MAGNOS TORFASON
Frh. a± l.^síðu.
að löngum manni, slánalegum,
krúnurökuðum með lágt enni og
máttlaust andlit, sem sagður var
hálfbróðir Svavars Guðmundsson-
ar,*) en heitir þó Axel Þórðar-
son, og greip til hans. Svifti
hann honum fram á gólfið og
þeytti honum á mannþyrpinguna.
Lenti nú alt i þyrpingu kringum
slánann og sýslumanninn, og
heyrðist í því dimm og draugaleg
en þekt rödd: „Ég fyrirbýð yð-
ur að láta þennan mann út!"
En þessu var þegar svarað með
því að margir kölluðu:
„Þegi þú, Jón!“ Héldu nú risk-
ingarnar áfram, og virtist sýslu-
manni um stund ganga illa að
koma slánanum út, því að íhalds-
menn vöfðust fyrir sýslumanni.
En þá var snögglega kallað:
„Hvar erum við, Magnúsarmenn ?“
Komust þá margar hendur á loft
í einu, og flaug sláninn út tlm
dyrnar, eins og hann hefði alt í
einu fengið vængi.
Ölafur Thors, móðurskip-
ið og Magnás!
Sýslumaður gekk nú aftur að
borðinu og hélt nú áfram ræðu
sinni:
„Hvers vegna tilkynningu
mihni var tekið svona, veit ég
ekki, en það er nú komið fram
♦ $
♦ í
— i
Franska
kiæðið. |
X\ Silkiklæði,
og Prjónasilki í
Karlakóf Beykjaviltg*
Söngskemtun
í Gamla Bíó þriðjudaginn 28. þ. m. kl. 7,15 síðd.
. Söngstjóri Sigurður Þórðarson.
Einsöngvari Stefán Guðmundsson.
Píanisti Anna Péturss.
Aðgöngumiðar verða seldir í hljóðfæraverzlun
Katrínar Viðar og í Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds-
sonar. ! * „ „ .....
Aths. Pantaðir aðgöngumiðar verða að sækjast
fyrir kl. 1 daginn sem sungið er.
Peysuföt.
i Nýkomið.
% G. GHoniaayssoii t Co. |
Austurstræti 1.
Vanti yður menn
hvort heldur er í lengri eða skemri vinnu þá snúið
yður til
ViannmiðlDnarsbrifstofnnnar 1 Rejfkjavík,
Hafnarssræti 5 (mjólkurfélagshúsinu). Sími 294Í
því hun hefir ávalt menn til allskonar starfa, bæði til
sjávar og sveita.
I DA6
Næturlæknir er í nótt Valtýr
Albertsson, Túngötu 3, sími 3251.
Næturvörður e.r í nóft í Lauga-
vegs- og Ingólfs-apóteki.
OTVARPIÐ:
15,00 Veðurfregnir.
19,00 Tónleikar.
19,10 Veðurfregnir.
19,20 Erindi Búnaðarfélagsins:
Garðyrkjan, I (Ragniar Ás-
geirsson ráðunautur).
20,00 Fréttir.
20,30 Ferðasaga: Söngför Karla-
kórs Reykjavíkur (Magnús
Jónsson prófessor).
21,00 Tónleikar: a) Alþýðulög (Út-
varpshljómsveitin); b) Ein-
söngur (Einar Sigurðsson);
c) Paganini-tónleikar (plöt-
ur).
S. F. R.I.
Sálarrannskónafélag Islands
heldur fund í Varðarhúsinu
miðvikudagskvöld 29. maí kl.
8!/2, með hinni nýju tilhögun.
Einar Loftsson kennari flyt-
ur erindi. Menn eru beðnir að
taka með sér sálmabókina.
Stjómin.
*) Það mun þó rangt vera.
STEIN 1ÖRSPRENT H.F.
að menn vildu mig úr flokkn-
um.“
Síðan lýsti sýslumaður því
hve þráfaldlega hann var beð-
inn að vera í framboði fyrir
flokkinn og hve illa það gekk að
fá hann til þess. Hann kvaðst
hafa sagt Bændaflokksmönnum
frá því, hvernig hann áliti að
Bændaflokkurinn ætti að starfa
og loks, er hann fann að menn
féllust á skoðanir hans gaf hann
kost á sér. Svo ræddi hann um
kosningarnar og úrslit þeirra og
sagði m. a.:
„Ólafur Thors gat móður-
skipið. Móðurskipið gat mig og
ég gat Þorstein Briem. Hefði ég
ekki verið í kjöri í Árnessýslu
hefði Bændaflokkurinn ekki
fengið nema 1 uppbótarsæti.
Hefði ég ekki verið í kjöri hér
þá hefðu stjórnarflokkarnir
fengið 26 þingsæti og ég og Ás-
geir verið í skammarkróknum
og stjórnarliðið orðið einrátt
bæði á sjó og landi. . . . Eg er
ekki hégómagjarn, en ég veit
ekki til þess að nokkur Islend-
ingur sé eins útbíaður af hé-
góma og formaður Bænda-
flokksins (Tr. Þ.). . . . Smátt
og smátt trénaðist ég upp á að
vinna með Bændaflokknum.
Mér virtist stefnuskránni hafa
verið breytt þegar á þing kom
og nú er hún svona: Vertu með
íhaldinu! Vertu með íhaldinu!
Vertu með íhaldinu! — Og þar
sem ég hefi aldrei verið með
íhaldinu, þá gat ég ekki nú, á
gamals aldri, snúist á þá sveif-
ina.“
Síðan lýsti hann fundahöld-
um Bændaflokksmanna á bak
við sig og sagðist ekki hafa þol-
að það. „Ég er ekki sekur. Ef
nokkur er sekur í Bændaflokkn-
um, þá eru það þeir Þorsteinn
Briem og Hannes. Þeir hafa
brotið stefnuskrá Bændaflokks-
ins. Og hver hefir nú réttar
fyrir sér hann Jón þarna í Dal
eða hann Magnús Torfason, eða
hann Svavar þarna. (Svavar
veður um gólf og f jórir hund-
ar fylgja honum, sem allir
skoða hann í krók og kring).
Svavar er allgreindur maður, en
hann er pólitískt roðhænsni."
(Svavar steytir hnefann og
hrópar eitthvað titrandi röddu).
En Magnús lýkur ræðu sinni
með þessum orðum:
„Hann Moggi minn blessaður
verður að þreyja og þrauka
nokkur ár enn, þangað til hann
fær tækifæri til að segja: Góða
nótt, Mangi minn.“
Jón í Dal talaði næstur og
var stanslaus hlátur meðan
hann talaði. Kvaðst hann oft
hafa vakað nótt eftir nótt með
i Magnúsi við að smíða brandara.
Sigurður Kristjánsson fékk
ekki hljóð og ekkert klapp.
Hann kvað sér standa alveg á
sama hvort fleiri eða færri vildu
hlusta á sig. —
Svavar fékk orðið og talaði
hann ógurlega æstur, og var oft
stjakað óþyrmilega við honum.
Eysteinn Jónsson talaði um
handjárnin og Bændaflokkinn
og var óspart klappað fyrir
ræðunni, en Gunar Benedikts-
son og Þorvaldur í Arnarbæli
töluðu um mjólkurmálið.
Jón Guðlaugsson bifreiðar-
stjóri talaði fyrir Alþýðuflokk-
inn og var gerður góður rómur
að ræðu hans.
Síðari hluti fundarins varð
viðburðalítill, menn fluttu ræð-
ur sínar aftur og aftur og lauk
fundinum um klukkan 9.
Var Svavar Guðmundsson
hrópaður niður er hann reyndi
að tala undir fundarlokin.
Magnús virtist eiga mikinn
meiri hluta fundarins en Sjálf-
stæðisflokkurinn minst allra
flokka.
Ekki munu hatursmenn
Magnúsar Torfasonar hafa tal-
ið sig fara neina sigurför á
hendur honum, á þessum fundi.
Opinber stjórnmálafundur
verður haldinn á Eyrarbakka
næstkomandi sunnudag.
I. O. G. T.
VÍKINGSFUNDUR í’kvöld.
ST. IÞAKA nr. 194. Fundur á
morgun. Tekin endanleg á-
kvörðun í húsmálinu. Kosinn
fulltrúi á Stórstúkuþingið o. fl.
ríðandi mál. Nauðsynlegt að
allir mæti.
KAPPREIÐARNAR
Frh. af 1. síðu.
„Fróði", eig. Hjörtur Sigmunds-
son, Deildartungu. Hraði 24,8 sek.
Annar varð „Krummi“ eig. Einar
G. E. Sæmundsen, hraði 26 sek.
Og fengu þessir hestar 1. og 2.
flokks verðlaun.
M NÝJA BÍÓ Hffl
Nana.
Stórfengleg amerísk tal-
og tónmynd, samkvæmt
heimsfrægri sögu með
sama nafni eftir franska
stórskáldið Emil Zola.
Aðalhlutverkin leika:
Anna Sten, Lionel Atwill
og Philip Holmes.
Börn fá ekki aðgang.
í úrslitaspretti náði enginn
hestur tilskyldum hraða, 24 sek.
til 1. verðlauna kr. 75, en „Gjósta"
varð fyrst að marki á 24,6 sek.
og hlaut því 2. verðlaun kr. 50.
Stökkhestar: (350 metrar). í
þessum flokki keptu 11 hestar i
tveim flókkum. 1 fyrra flokki
náði enginn áskyldum hraða til
verðlauna. I öðrum flokki fékk
1. verðlaun kr. 50 „Fálki“, sem
áður er getið. Hljóp hann völlinn
á 28,2 sek. I þessum flokki varð
annar að marki „Reykur", eig.
Ölafur Þórarinsson, Hafniarfirði.
Hraði hans var 28,2 sek. og hlaut
hann önnur verðlaun, kr. 30.
1 úrslitaspretti fékk 1. verðlaun
kr. 150 „Reykur". Hlaupatími
1 hans var 27,8 sek. Önnur verðlaun
kr. 75 fékk „Háleggur', eig. Ól-
afur Þórarinsson, Hafnarfirði. —
Hraði hans var 27,8 sek.
Kappreiðarnar voru filmaðar og
var þeim 1-okið kl. 7 e. h.
Vallarstjóri var Daníel Daníels-
son, formaður „Fáks“. Dómarar
voru: Hákon Bjarnason skög-
ræktarstjóri, Ludvig C. Magnús-
son endurskoðandi og Eyjólfur
Gíslason innheimtumaður. Ræsir
var Sigurður Gíslason lögieglu-
þjónn.
Kappreiðarnar fóru hið prýði-
asta fram.
Hér með tilkynnist, að móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ekkjan
Kristín Kristjánsdóttir
Grettisgötu 81, andaðist að morgni 26. maí.
Sigrún Benediktsdóttir. Sigurður Jóliannsson.
Arthúr Jónatansson.
Innilegt þakklæti vottum við öllum sem sýndu samúð og hlut-
tekningu við jarðarför
Kristínar Ólafsdóttur.
Sigurjón Jónsson.
Viggó Sigurjónssoh. Guðrún Benediktsdóttir.
Ólafía Jóhannsdóttir. Hafsteinn Guðmundsson.
Barnabörn og systkini.
Umsóknir
um sumardvöl fyrir „fátæk og veikluð börn“ í barnaheimili Odd-
Pellowa að Silungapolli í sumar, sendist Jóni Pálssyni fyrv. banka-
féhirði fyrir 5. júní næstk. — Umsóknir séu skriflegar; nöfn barn-
anna, aldur (5—12 ára) og heimilisfang sé greinilega tiltekið.
Bláa-fankismatarstellin
og kaffistellin eru komin aftur, sama lága verðið.
Einnig ýmsar fleiri tegundir af nýtísku stellum,
nýkomnar.
K. Einarsson & BJGrnsson,
Bankastræti 11.
Nétorlstar
innan Sjómannafélags Reykjavíkur eru boðaðir á fund á skirf-
stofu félagsins í Mjólkurfélagshúsinu, þriðjudaginn 28. þ. m. kl.
8!/2 e. h.
Mótoristar er kunna að vera utan félagsins eru líka vel-
komnir á fundinn.
Stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur.