Alþýðublaðið - 01.06.1935, Qupperneq 1
RlfSTJÖRI: F. R. VALDEMARSSON
ÖTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XVI. ARGANGUR
LAUGARDAGINN 1. JONÍ 1935.
145. TÖLUBLAÐ
Afgreiðsla ogauglýs-
ingaskrifstofa
Alþýðublaðsins
er flutt í Hafnar-
stræti 16.
Símar 4900 og 4906.
Málgagn erlendra hagsmuna
og fjaudmaPur Reykjavíkur mlmer 1
taka enn hilndum saman gegn Reykvikingum.
sér allan rétt til þéss að kref ja
A.s. Höjgaard & Schultz um
bætur fyrir alt tjón sem bæjar- j
félagið hefir beðið og bíður
vegna verkfallsdeilunnar og af
lausn hennar.
Það er jafnframt skilyrði fyrir
framangreindu tilboði til verk-
taka, að samkomulag náist við
Vörubílastöðina „Þróttur'* hér í
bæ, um flutninga á framangreind-
um 4700 tonnum fyrir 28 krónur
tonnið.
I tilefni af væntanlegum samn-
inga milli A.s. Höjgaard &
Schultz og verkalýðsfélaganna
geiir .bæjarráðið ennfremur svo-
hljóðandi ályktun:
„Þar sem bæjarráð telur að
það sé samkv. kunnum taxta
verkalýðsfélaganna að verktaki
greiði kaup matreiðslukvenna
og kostnað af nauðsynlegum
ferðiun verkamanna, telur það
óhjákvæmilegt að verktaki
gangi að héraðlútandi kröfum
verkalýðsfélaganna, en tekur
fram, að það neitar algerlega að
endurgreiða verktaka hér af
leiðandi útgjöld.
Ennfremur samþykti bæjarráðið
eftirfarandi ályktun, sem ekki hef-
ir verið birt áður.
„Vegna áður umgetinnar úr-
lausnar vinnudeilunnar við Höj-
gaard & Schultz vill bæjarráðið
taka fram: að fjárframlag til
lausnar deilunnar er samþykt af
því vegna þeirra margföldu út-
gjalda, er langvarandi stöðvun á
virkjun Sogsins gæti haft í för
með sér fyrir bæjarfélagið.“
Á ályktun bæjarráðs sést það,
að enginn ágreiningur hefir verið
um það, að gera Höjgaard &
Schultz að fullu ábyrgan fyrir því
tjóni, sem orðið hefir af vinnu-
stöðvuninni og þeim fjárútlátum,
sem bær qg ríki kunna að verða
fyrir vernia hennar.
Hinsvegar skal það tekið
fram, að ef til fjárútláta kem-
ur fyrir bæjarsjóð, þá er það
eingöngu vegna þess, að samn-
ingur sá er gerður var um virkj-
unina s. 1. ár. við Höjgaard &
Schultz hefir ekki verið svo
hagkvæmur sem skyldi, en
Morgunblaðinu skal það eftir-
látið, að leiða það í ljós af
hverju það stafar eða hverjum
sé um það að kenna.
Enginn ágreiningur hefir verið
um það í bæjarráði Reykjavíkur,
að vernda hagsmuni bæjarfélags-
ins gegn yfirgangi Höjgaard &
Schultz og fulltrúa hans, fram-
kvæmdarstjóra atvinnurekendafé-
lags Islands, fjandmc/tmi Reykja-
vlkur númer 1, Eggert Claessen.
Morgunblaðið hefir haft alt
aðra afstöðu í þessari deilu en
yfirgnæfandi meirihluti Reykvík-
inga af öllum stéttum, og í stað
þess að standa á verði um hag
bæjarfélagsins og verkalýðsins i
bænum gegn hinum erlenda auð-
manni ,þá hefir það fullkomlega
bæði leynt og ljóst stutt Höjgaard
Frh. á 4. siðu.
Italía leyfir 10 þús. tíonna
innllutning á salttiski
Krá Islandi á ftessu ári.
IUPPHAFI Sogsdeil-
unnar tók Morgun-
blaðið ákveðna afstöðu að
öllu ieyti með Höjgaard &
Schultz og gegn verka-
mönnum, iðnaðarmönnum
og Mfreiðastjórum.
Á lævíslegan hátt reyndi biaðið
að koma því inn hjá almenningi,
að einungis væri deilt um flutn-
ingana austur að Sogi, en síðustu
daga deilunnar mátti segja, að
eingöngu stæði á því, að iðnaðar-
mönnum væri með samningun-
um trygður sami réttur og al-
mennum verkamönnum.
I dag heldur blaðið áfram þess-
ari iðju sinni og’ getur það ekki í
því stuðst við upplýsingar frá
bæjarráðsmönnum Sjálfstæðis-
flokksins, heldur er það að eins
uppspjunnið á skrifstofu þess, eins
og annað, sem það heldur fram
í sambandi við þessa deilu.
I sambandi við þetta mál er
rétt að birta ályktun þá, sem
bæjarráðið gerði á miðvikudags-
kvöld.
I framhaldi af umræðum þeim,
sem faiið hafa fmm undanfarið,
m. a. á milli bæjarráðsins og at-
vinnumálaráðherra, skýrði borgar-
stjóri frá því, að fyrir lægi yfir-
lýsing frá atvinnumálaráðherra, f.
h. ríkisstjórnarinnar um að stjórn-
in myndi greiða úr ríkissjóði? með
ívilnunum á tollum af vörum til
Sogsvirkjunarinnar, helming
þeirra fjárútláta, sem Reykjavík-
urbær verður að inna af hendi
til þess að leysa verkfallsdeiluna,
þó að því tilskildu, að samið
verði við Vörubílastöðina „Þrótt-
ur“ um flutning á efni og vél-
um fyrir A.s. Höjgaard & Schultz
héðan úr Reykjavík austur að
Sogi.
Hafði ráðherra tilkynt að boð
þetta yrði staðfest skriflega.
Bæjarráðið gerði síðan svofelda
ályktxm:
Bæjarráðið samþykkir að gera
samning við Höjgaard & Schultz
A.s. um flutning á efni og vélum
til Sogsvirkjunarinnar héðan úr
bænum austur að virkjunarstaðn-
um, 4700 tonnum, fyrir 75 þúsund
krónur, að því tilskildu, að bæjar-
1 ráð fái til umráða og afnota vöru-
flutningabifreiðar firmans hér á-
samt dráttarvögnum, ef þess yrði
óskað, með rétti til þess að fram-
selja öðrum flutningana, enda nái
firmað samkomulagi við verka-
lýðsfélögin um önnur deiluatriði
og byrjað verði á virkjuninni taf-
arlaust.
Hinsvegar áskilur bæjarráðið
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Sunnudagsblaðið á morgun
EFNI Sunnudagsblaðsins á
morgun er: Bær á Spáni,
fiorsíðumynd eftir Eggert Laxdal,
Irland — „Eyjan græna“, mjög
fróðleg grein um írland, Eyvind-
ur úr Kvörn, saga eftir Árna
Guðlaugsson, Þegar þjófarnir léku
á Englandsbanka, sannar furðu-
sögur frá ýmsum löndum. Auk
þess fjöldi smágreina og inynda,
krossgáta o. fl.
RIkisstjörninni
barst í gærkvöldi
skeyti frá samninganefnd-
inni, sem fór til ítalíu fyr-
ir nokkrum vikum, þess
efnis að hún hafði kom-
ist að bráðabirgðasam-
komulagi við ítölsku
stjórnina um innflutning
á fiski til Italíu á þessu
ári.
Er það samkomulag á þá leið,
að ítalska stjórnin leyfir að
saltfisksinnflutningur til Italí.u
verði alt að 10 þúsund tonnum
árið 1935.
Árið 1934 var innflutningur-
inn á íslenzkum saltfiski til
Italíu samkvæmt skýrslu Fiski-
félagsins 16,700 tonn, en eftir
ítölskum skýrslum nokkru
meiri. Árið 1933 var innflutn-
ingurinn um 20 þús. tonn eftir
íslenzkum skýrslum og árið
1932 yfir 20 þúsund tonn.
Þegar fyrst fréttist um yfir-
vofandi innflutningshömlur á
Italíu í vetur þá var búist við
því, að ekki fengist leyfi til
meiri innflutnings en sem næmi
helmingi af innflutningi ársins
1934.
Þótt sú lækkun á innflutn-
ingnum, sem nú verður eftir
þessu bráðabirgðasamkomulagi
sé mjög tilfinnanleg, nemur hún
þó ekki nálægt því helmingi inn-
flutningsins síðastliðið ár, og er
því töluverðu minni en á horfð-
ist í fyrstu.
Samninganefndarmennirnir,
þeir Héðinn Valdimarson, Jón
Árnason og Richard Thors eru
lagðir af stað heimleiðis frá
Italíu.
Braggari tekinn fasí-
nr i Hafaarfirði.
1 gær var Jón Sumarliðason í
Hafnarfirði tekinn til yfirheyrslu
af lögreglunni, grunaður um
bruggun áfiengis. Gekkst Jón
undireins við, og vísaði á brugg-
unartæki uppi á lofti í íbúðar-
húsi sínu. Fann lögreglan þar,
auk bruggunartækjanna, 500 lítra
af áfengi í gerjun og 27 lítra af
fullbrugguðu áfengi á flöskum og
brúsa. Málið er til frekari rann-
sóknar. (FO.)
Verkaman; abustaðir
ð Siglnfirði.
I fyrra kvöld var byrjað á bygg-
ingu verkamannabústaða við
Norðurgötu á Siglufirði.
Húsin eru samstæðuhús, sam-
tals 36 sinnum 8 metra, tvílyft,
með 8 íbúðum alls. Áætlað verð
er um 70 þúsundir króna. I smíð-
I um eru nú á Siglufirði um 30
j hús, mörg stór og vönduð.
14 ðra piltur
fi*emar innbrot
i Vestmannaeyjuiai.
Á fimtudagskvöldið seint til-
kynti gamall maður, sem býr
fyrir ofan hraun í Vestmannaieyj-
um, lögreglustjóra, að þá um
kvöldið, þegar heimilisfólk var
fjarverandi, hefði verið brotist inn
í hús hans og stolið um 100 kr.
Þessi gamli maður heitir Frið-
jón Magnússon og býr í Gvend-
arhúsum.
Jón Hallvarðsson bæjarfógeta-
fulltrúi tók þegar að sér rann-
sókn málsins og tókst að hafa
uppi á innbrotsþjófnum.
Var það piltur, 14 ára gamall
og játaði þegar á sig innbrotiðog
fleiri smáþjófnaði og óknytti, svo
semi rúðubrot í húsum og til-
raunir til innbrota.
Nýjar hersveitir og
o$ herskip til Afriko.
LONDON, 31. maí.
ítalska stjórnin hefir enn boðið
út liði til þess að senda það til
Afriku, sem sé einni deild hins
neglulega hers og tveimur svart-
stakka deildum. Mussolini færir
það fram til réttlætingar þessaíi
ráðstöfun, að Abessiniumenn
halda áfram að draga saman lið,
og að enn þá séu send þangað
vopn og skotfæii frá Evrópu.
ítalski flotinn í Rauðahafinu er
einnig orðinn allöflugur, og hefir
Baroni hershöfðingi verið settur
yfir hann.
I fregn frá Róm er sagt frá
tveimur nýjum deiluatriðum í
Eritreu milli ítala og Abessiníu-
manna. Telja Italir, að tveir ítalsk-
ir póstmenn hafi verið teknir
ranglega fastir í Abessiníu. (FO.)
Borgaruleg samsteypustjóra
mynduð á Frakklandi i morgun.
Jafoaðarmenn neita að taka nokkurn þátt
i stjórn, setn íhaldsflokkamir eiga sæti i.
EINKASKEYTI TIL ALÞÝÐUBL.
KAUPMANNAHÖFN í moijgun.
OUISSON tókst að
mynda nýja stjórn í
morgun og eiga flest allir
borgaralegu flokkarnir á
þingi fulltrúa í lienni.
Jafnaðarmenn neituðu að
eiga nokkurn þátt í hinni
nýju stjórn, þar eð fulltrú-
ar frá íhaldsflokknum
hefðu verið teknir upp í
hana.
Stjórnin er þannig skipuð:
Bouisson forsætisráðherra, La-
val utanríkismálaráðherra eins
og áður, Herriot innanríkis-
málaráðherra, Palmade fjár-
málaráðherra, Maurin hermála-
ráðherra eins og áður, Pietri
flotamálaráðherra, Denain flug-
málaráðherra og LaurentEynac
verzlunarmálaráðherra. Petain
marskálkur og Caillaux eiga
einnig sæti í stjórninni án sér-
stakrar stjórnardeildar.
Verður frankinn feldur?
Stjórnin ætlar að leggja
stefnuskrá sína fyrir fulltrúa-
deild þingsins næstkomandi
þriðjudag. Általað er, að hún
ætli að láta það vera sitt fyrsta
verk, að heimta af þinginu skil-
yrðislaust umboð til þess að
gera hverjar þær ráðstafanir,
sem henni sýnist á sviði f jár-
málanna, og að flokkur Her-
riots, sem neitaði að veita
Flandin slíkt einræði, hafi nú
lofað að greiða því atkvæði sitt
á þingi.. Þetta þykir benda á
það, að stjórnin hafi í hyggju,
að fella gengi frankans fyrr eða
seinna, og mun hún hafa til
PETAIN marskálkur.
þess stuðning útflytjendanna
yfirleitt, en eins og kunnugt er,
vildi Flandin og með honum
bankarnir, halda fast við nú-
verandi gengi hans.
1 París hafa enn engar óeirð-
ir orðið, og gera menn sér von-
ir um það, að þeim muni nú með
stjórnarmynduninni hafa verið
afstýrt að sinni.
STAMPEN.
Gullstraumurinn út úr
landinu heldur áfram.
BERLlN, 31. maí.
Gullstraumurinn frá Frakk-
landi til útlanda heldur enn á-
fram, og eykst stöðugt. Gull-
straumurinn til Englands hefir
þrefaldast.
Yfirvöldin í París hafa grip-
ið til ákveðinna ráðstafana
gegn stórkaupmönnum. Einum
banka í París hefir verið lokað
og hann innsiglaður, en 10 lög-
reglufulltrúar hafa fram-
kvæmt húsrannsóknir hjá ýms-
um peningastofnunum borgar-
innar. (FO.).
Byggiag Rannsóknacstoln-
unar í þágu atvinnuveg*
anna hefst fi haust.
Roosevelt krefst brejt-
Inga ð stjðrnarskrð
Bandarikjanna.
HASKÓLARÁÐIÐ hefir
nýlega ákveðið, að
láta nú þegar hef ja undir-
búning til þess að reisa
rannsóknarstofnun í þágu
atvinnuveganna og verja
til þess 200 þúsund krón-
um af fé happdrættisins.
Undirbúningur undir verkið
er þegar hafinn, og mun verða
byrjað á byggingunni, sem á að
standa á lóð háskólans.
Á síðasta þingi var eins og
kunnugt er samþykt frumvarp
um Rannsóknarstofnun í þágu
atvinnuveganna sem Skipulags-
nefnd atvinnumála hafði samið.
En ágreiningur var um fyrir-
komulag hennar í Háskólaráði
og höfðu nokkrir menn í ráðinu,
en einkum stúdentar við há-
skólann, beitt sér gegn því að
rannsóknarstofnun yrði stofnuð
á þeim grundvelli, sem lögin
gerðu ráð fyrir.
Undanfarið hafa staðið yfir
samningar milli atvinnumála-
ráðherra og rektors Háskólans
um framkvæmd þessa máls, og
á fimtudagskvöld náðiát sam-
komulag um málið. Voru nær
allir kennarar samþykkir hinum
nýja samkomulagsgrundvelli,
en tveir greiddu atkvæði á móti
honum.
Hefir kenslumálaráðherra
lofað, að Rannsóknarstofa Há-
skólans, sem starfað hefir und-
anfarið verði sérstök stofnun í
hinni nýju Rannsóknarstofnun.
Einnig hefir kenslumálaráð-
herra ákveðið að fé verði veitt
til kenslu í eðlisfræði og
stærðfræði til þess að undirbún-
ingskensla í verklegum fræðum
geti hafist þegar það verður á-
kveðið.
!--------------!!
Islandsglíman
verður háð á Iþróttavellinum
mánudaginn 1. júli n. k. Kept
verður um Glímubelti 1. S. I.,
hándhafi Sigurður Thorarensen
úr Glímufélaginu Ármann, enn-
fremur verður kept um Stefnu-
hornið, handhafi þess er Ágúst
Kristjánsson, einnig úr Ár-
mann. Öllum félögum innan 1.
S. I. er heimil þáttaka. Kepp-
endur gefi sig fram við stjórn
Glímufélagsins Ármann fyrir
20. júní.
LONDON, 31. maí.
I fyrstu ræðunni, sem Roosevelt
fiorseti hefir haldið síðan dómsúr-
skurður hæstaréttar um viðreisn-
arlöggjöfina var feldur fyrir viku
síðan, sagði hann, að augljóst
væri, að fyr eða síðar þyrfti að
breyta stjórnarskrá Bandaríkjann,
til þess að stjörninni yrði kleift á
löglegan hátt að hafa afskifti af
iðnaði, fjármálum og félagslegum
málum þjóðarinnar.
Engin stjórn í heimi hefði eins
bundnar hendur og stjórn Banda-
rikjanna, sagði híann, og hvergi
þektist það annars staðar í víðri
veröld, að stjörnarskráin heimil-
aði ekki sambandsstjórninni að
láta til sín taka um þau mál,
sem varðaði hag allrar þjóðrinn-
ar. (FÚ.)
F. U. J.
fer skemtiferð austur á Eyr- .
arbakka á morgun. Lagt verður
af stað frá Mjólkurfélagshúsinu
kl. 11 f. h. Farið kostar aðeins
kr. 3,50. Farmiðar fást hjá
Pétri Péturssyni og Guðjóni
Baldvinssyni. Mætið sem flest
og öll í bláum skyrtum.
4»