Alþýðublaðið - 08.06.1935, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 08.06.1935, Blaðsíða 4
LAUGARDAGINN 8. JÚNI 1935. MÞtBPBUBlB I ÐAGl rGAMLA BÍÓ H§ ENGIN SÝNING fyr en á annan í Hvítasunnu. „Brúarfoss“ fer væntanlega á þriðjudags- kvöld (11. júní) til ísafjarðar, Húsavíkur, Akureyrar, Siglu- f jarðar og Sauðárkróks, þaðan aftur til Eeykjavíkur. Skipið kemur EKKI á Vest- firði eða Breiðaf jörð, en Selfoss fer á allar þær hafnir. „SeIfoss“ fer til Vestfjarða og Breiða- fjarðar 12.—13. júní á þær hafnir, ;:em Brúarfoss átti að 1 koma við á samkv. áætlun, þó eklii ísafjörð. Sumiudagsbiað Alþýðubiaðsins er borið út með blaðinu í dag. KOMMÚNISTINN í bæjarstjórn. (Frh. af 1. síðu.) 4700 tonnum fyrir 28 krónur tonnið." Eftir að Björn Bjarnason hiafði samþykt þessa ályktun með því að greiða ekki atkvæði gegn henni og verið var að taka málið út af dagskrá, var sú fyrirspurn gerð tii hans, hvort hann væri ekki með tillögu um að skipuð yrði rannsóknarnefnd á bæjarstjórn út af Sogsdeilunni, en Verklýðs- blaðið hafði á miðvikudaginn lýst því yfir með ógurlegum belg- ingi, að hann myndi á þessum fundi bæjarstjórnar bera fram slíka tillögu. Bjöm kvaðst ekkert vita um siíka tillögu, og er Óiafur Frið- riksson sagði, að hann gæti þó ckki gert blaðið algerlega ómerkt á þennan hátt, þá svaraði Björn: „Ja; ég hefi enga tillögu; semdu tíllögu.“ Björn bæjarfulltrúi mun því í næsta Verklýðsblaði fá nöfnin „landráðama'ur" og „svikari" eins og Loftur. Hermann Jónasson forætisráðherra og frú komu með Brúarfossi í gærkvöldi. Með sama skipi kom Jónas Jónsson alþingismaður. Öronning Alexandrine fer héðan annað kvöld áleiðis til Kaupmannahafnar. Fisktökuskipið Columbus kom hingað í gær. Esja kom að austan úr hringferð í gærmorgun. Skaftfeliingur fer til Hornafjarðar í dag. Katla kom í gær. Hafði hún komið með sementsfarm frá útlöndum og var búið að losa mestan hluta farmsins á höfnum umhverfis land. SÝNING GUÐM. EINARSSONAR JFrh. af 1. síðu.) Aftenposten segir: „Flestar myndir Guðmundar hafa orðið til langt inni á öræf- um Islands, milli jökla og gíga. Pað er liið stórfenglega, sem hríf- ur hann, og gagnrýningin mun tæplega neita honum um það, að hann hafi sérkennilega hæfi- leika til að leiða þaðí í ljós í list sinni.“ (FÚ.) LAWRENCE. (Frh. af 3. síðu.) leiðar, að Feisal var gerður að konungi í Irak. En síðan dró Lawrence sig til baka og fékk stöðu sem flug- vélaverkfræðingur. Hærri stöðu vildi hann ekki. Vélar, sagði hann, að væri það eina, sem hann hefði áhuga á. Enda þótt hann hefði nú tekið sér nafnið Shaw, var hann þó svo frægur, að hann fékk hvergi að vera í næði. Þar til fyrir skömmu síð- an var hann vélaverkfræðingur og smíðaði Speed-vélar í Sout- hampton. Frægð hans var hon- um til byrði. 1 Þýzkalandi, Frakklandi og mörgum öðrum löndum fékk hann ekki lands- vistarleyfi, sakir orðróms þess að hann væri slyngasti njósn- ari Englendinga. Hans eigin frásögn um uppreisnina í eyði- mörkinni er kominn út á ótelj- andi tungumálum og saga hans eftir Lowell Thomas er uppseld. Lawrence reit fyrstu bók sína árið 1919 og var hún full bitur- leika vegna þeirra vonbrigða, sem hann hafði orðið að þola. Einnig svifti hann ofan af ýms- um deilumálum innan herstjórn- arinnar í Egiftalandi, en ferða- tösku með handriti og ýmsum skjölum var stolið frá honum. Orðrómur barst út um það, að stjómin hefði staðið á bak við stuldinn, en sennilegra er, að þar hafi aðeins verið um venju- legan þjófnað að ræða. Eftir minni skrifaði Lawrence bókina aftur. Nú hafði þessi vísindamaður, sem kringumstæðumar gerðu að hermanni, dregið sig til baka og bjó í litlu húsi í Suffolk. Engir titlar eða heiðursmerki eru tengd nafni hans. Austur- landapólitík hans var hmnin til grunna; þetta mál, sem hann hafði fórnað eldlegum gáfum sínum, f jölhæfni og starfskröft- um, færði honum aðeins von- brigði. En minningin um frægð- arverk hans mun lifa og gera hann að æfintýralegri persónu. Skýringin á slysinu: að hann ætlaði að komast hjá því að aka yfir lítinn drenghnokka, sem hljóp í veg fyrir hann, og allur sá huliðshjúpur, sem virt- ist hvíla yfir atburðinum, er hann slasaðist, hefir til hinns síðasta haldið skírum þeim æfintýraljóma, sem allt af hefir hvílt yfir þessum manni. Einar Bachmann rafvirki og kona hans Ásta, Nönnugötu 5, urðu fyrir þeirri sorg í morgun að missa yngsta barn sitt, 6 ára telpu, Ásthildi, úr lungnabólgu, er hún fékk upp úr kíghósta. Ásthildur litla var prýðilega efnilegt barn og hvers manns hugljúfi. Næturlæknir er í nótt Daníel Fjeldsted, Aðalstræti 9, sími 3272. Næturvörður er í nótt í Reykja- víkur- og Iðunnar-apótekí. Veðrið: Hiti íiReykjavík 6 stig. Yfirlit: Alldjúp lægðarmiðja aust- an við Færeyjar á hreyfingu norð- austur eftir. Háþrýstisvæði um Norður-Grænland. Útlit: Norðan- og norðaustan-kaldi. Skúrir aust- an til. ÚTVARPIÐ: 15,00 Veðurfregnir. 19,10 Veðurfregnir. 19,20 Tónleikar: Lög fyrir ýms strengjahljóðfæri (plötur). 20,00 Fréttir. 20,30 Leikrit: „Pétur og Páll.“ Eftir Edv. Brandes (Har-ald- tur Björnsson, Viðar Péturs- spn, Þóra Borg). 21,00 Tónleikar: a) Einleikur á cello (Þórhallur Árnason). b) Sígild skemtilög. c) Kirkjulög (plötur). Á MORGUN; Næturlæknir er Halldór Stef- ánsson, Lækjargötu 4, sími 2234. Næturvörður er í tnútt í Lauga- vegs- og Ingólfs-apóteki. MESSUR: Kl. 11 Messa í dómk., B. J. — 5 Messa í dómk., Fr. H. — 2 Messa í ,£*ík., Á. S. — 2 Messa í frík. Hafnarfj„ J. A. — 11 Messa í Hafnarfj.k., G. Þ. — 2 Messa í Kálfatj.k., G. Þ. ÚTVARIÐ: 10,40 Veðurfregnir. 14,00 Messa í fríkirkjunni (séra Arni Sigurðsson). 19,10 Veðurfregnir. 19,20 Tónleikar: Fiðlulög og pí- anólög (plötur). ^0,00 Erindi: Hvítasunnuhátíðin fyr og síðar (Magnús Jóns- son próf.). 20,30 Tónleikar: Otto Reger:són- ata í f-moll (Hans Stepan- eK og dr. Franz Mixa). 21,00 Tónleikar: Beethoven: Sym- phonia nr. 9 (plötur). Á ANNAN: Næturlæknir er Halldór Stef- ánsson, Lækjarg. 4, sími 2234. Næturvörður er í Laugavegs- og Ingólfs-apóteki. MESSUR: Kl. 11 Messa í dómk., Fr. H. — 5 Messa í frík., Á. S. — 2 Messa í Hafnarfj.kirkju, Garðar Svavarsson, Djúpö- vogi. — 1 Messa í Bessast.k., G. Þ. ÚTVARPIÐ: 10,00 Veðurfregnir. 14,00 Messa í þjóðkirkjunni í Hafnarfirði, séra Garðar Svavarsson(. 15,00 Tónleikar: Erlend þjóðlög (plötur). 18,45 Barnatími: Saga (frú Ingi- björg Steinsdóttir). 19,10 Veðurfregnir. 19,20 Tónleikar: Lög úr óperett- um (plötur). 20,00 Fréttir. 20,30 Erindi: Rannsóknir á Vatna- jökli (Jóhannes Áskelsson jarðfræðingur). 21,00 Tónleikar: a) Alþýðulög (Útvarpshljómsveitin). b) Einsöngur (Sveinn Þorkels- son). Danzlög til kl. 24. Mngvellir. í dag. Kl. 2 e. h., 5 síðd., 8 síðd. og Syz síðd. Einnig allan daginn báða hvítasunnudagana. Skattskyldar eignir. Samkvæmt nýsaminni skýrslu Hagstofunnar nema skattskyld- ar eignir einstaklinga 110,4 milj. kr. 1 ársbyrjun 1933 voru skattskyldar eignir einstaklinga 107,5.milj. kr. og félaga 9,9 milj. kr. Sonur okkar Carl Peder Hugo, .5aooÉBsc3K:aa«a«f - ......— -^. dó í morgun. Reykjavík 7. júní 1935. Estrid og Friðrik Ásmundsson Brekkan. --... „------- —Ml Elskaða litla Ásthildur okkar var í morgun hafin til hins eilífa friðar. 8. júní 1935. Ásta og Einar Bachmann og börn Nönnugötu 5. Kærar þakkir til þeirra, er sýndu okkur og minningu Guðrúnar Gunnarsdóttur vinarhug, við andlát hennar og jarðarför. Ingibjörg Þorkelsdóttir. Sigurður Þorsteinsson. Elsku litli drengurinn minn E i n a r andaðist 7. þ. m. Jarðarförin ákveðin síðar. Kirkjuveg 31 Hafnarfirði. Guðrún Sigurbergsdóttir. Þórarinn Sigurðsson. ÖLL REYKJAVÍK HLÆR! Bjarni Bjomsson i í síðasta sinn á annan í hvítasunnu kl. 4 í Iðnó. Aðgöngumiðar seldir í Iðnó á annan frá kl. 10 f. h. Sími 3191. Málverkasýningu opnar Magnús Á. Árnason í Iðnskólanum kl. 1 e. h. á morgun (Hvítas.). Sýningin verður daglega opin kl. 1—10 e. h. Aðal* safn að arfnndur dómkirkjusafnaðarins verður 2. hvítasunndag kl. 5 síðd. 1 dóm- kirkjunni. i i DAGSKRÁ: 1. Reikningsskil. — 2. Kirkjunefnd kvenna gefur skýrslu. — 3. Kosningar í sóknarnefnd og til kirkjufundar. — 4. Kirkjumál Reykjavíkur. Málshefjandi: prófessor Sigurður P. Sivertsen. — 5. Önnur mál. SÓKNARNEFNDIN. Auglýsið í Alpýðnblaðinn. Happnrætti Háskóla Islands. Slðustu forvðð í dag að ná fi miða fyrlr 4. fl.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.