Alþýðublaðið - 30.06.1935, Page 4
SUNNUDAGINN 30. JÚNÍ 1935.
GAMLABÍÓ H
Eigmmaðnr
sðngkonnnnar.
Skemtilegur gamanleikur
með söngvum og hljóð-
færaslætti.
Aðalhlutverkin leika:
Elissa Landi
og Cary Grant.
Aukamyndir:
Talmyndafréttir
og
Bráðkaupið í Stokkhólmi.
Sýnd kl. 9.
Kl. 5 og 7:
GÖG og GOKKE
Á SKEMTIFKÐ.
Sprenghlæilegur gaman-
leikur. — Aðalhlutverkin
leika:
STAN LAUREL og
OLIVER IÍARDY.
Barnasýning kl. 5.
Alþýðusýning kl. 7.
LITLA-HRAUN.
Frh. af 1. siðu.
skeyta saman í heilsteypu það
skapgerðar brotasilfur, sem
þeir eru margir hverjir samsett-
ir úr, þá verður að fá þá með
góðu til að venja sig á að ná
tökum á sjálfum sér, — sigra
eigin galla.
Ég hygg að sú aðferð, sem
er. höfð við meðferð fanga á
Litla-Hrauni stefni í rétta átt.
Fangarnir fá meira frelsi en
venja er í fangelsum og þeim
er um leið sýnt traust að vissu
takmarki. Hlýtur það að vekja
fremur sjálfsvirðingu og sjálfs-
traust, en ef þeir væru svo
frelsi sviftir, að þeir fengju alls
ekki tækifæri til að sýna að
þeim væri trúandi.
Höfuðatriðið í þessu efni
verður það, að sá maður sýnir
meira siðferðisþrek, sem tekur
út refsingu af fúsum vilja en
hinn, sem er kúgaður til þess.
GORKI.
Frh. af 3. síðu.
spámann, sem upp var risinn á
meðal þjóðarinnar. Skáldið Leo-
nid Andrejeff heimsótti hann, og
söngvarinn Fjodor Schaljapin,
sem síðar varð heimsfrægur mað-
ur, endurnýjaði vináttuna við
hann. En þeir höfðu hizt um það
leyti, sem þeir veru sautján eða
átján ára og þá báðir sótt um
Up[Itöku í einn og sama kirkjukór.
Og það, sem okkur í dag mun
þykja kátlegast, er að Gorki fékk
uppftöku í kórinn, en Sc’naljapjln
var synjað um hana af þeirri
ástæðu, að hann hefði ekki nógu
góða rödd! En nú þegar þeir
hittust aftur í Nisjni Novgorod,
var Schaljapin orðinn jafnviður-
kenndur fyrir söng sinn og Gorki
fy'rir skáldskap, og þegar hann
söng heima hjá Gorki, safnaðist
stór hópur af fójki fyrir utan
gluggana.
Það var þó ekki að eins í ætt-
borginni, að Gorki var tilbeðinn.
Um allt Rússland voru haldnir.
fyrirlestrar um hann og verk
hans. Hinn frægi rússnesld málari
Repin málaði andlitsmynd af hon-
um, sem vakti gífurlega efiirtekt
á sýningu í Odessa árið 1900. Og
þegar Gorki kom til Moskva og
Pétursborgar, gat hann varla kom
ið út á götuna, án þess að fólkið
þekkti hann og þyrptist saman til
þess að glápa á hann. Lang mest
var þó um að vera eftir iað leik-
rit hans, „Næturskýli", sem síð-
an hefir farið sigurför um allian
hinn menntaða heim, var leikið
í Listamannaleikhúsinu í Moskvia
árið 1902. Þetta leikrit, sem sýn-
Fangahópnum verður að
stjórna með samúð og skilningi
á einstaklingunum, viðhafa full-
komið réttlæti og samræmi í
meðferð þeirra og nákvæmlega
það mikinn strangleika sem
nauðsynlegur er til þess að
starfið verði uppbyggingarstarf
en ekki þrælakúgun.
Fif fanginn finnur að verið er
að pína hann að nauðsynja-
lausu, þá hlýtur slíkt að vekja
í honum gremju" eða jafnvel
heiftúð, og slíkur maður verður
hvorki trúr verkamaður í
fangavistinni, né að líkindi séu
til að hann betrist. Það mun
einnig reynast erfitt að reka
vinnuhæli á þann hátt, að öllum
föngunum sé að óreyndu sýnt
takmarkalaust vantraust, enda
mun þá árangurinn fara eftir.
Það hefir verið gert nokkurt
veður út úr því að 3 piltar
struku frá Litla-Hrauni aðfara-
nótt 16. þ. m. Má það furðu
gegna, þegar þess er gætt, að
fangar hafa altaf strokið úr
hegningarhúsinu í Reykjavík og
hefir lítið um það verið fengist.
En þegar slíkt vill til á Litla-
Hrauni þá er látið eins og ein-
hver voði sé á ferðum.
Ég veit ekki af neinu fangelsi,
þar sem fangar vinna útivinnu,
að ekki hafi komið fyrir, að
föngum hafi tekist að strjúka
burtu og það þótt vopnaðir
verðir hafi gætt fanganna og
þeir unnið innan rammgerðra
girðinga.
Það gæti verið ýmislegs að
minnast um fangagæslu hér á
landi fyrir daga Litla-Hrauns,
og þeir menn, sem telja gæslu
fanganna þar mjög ábótavant,
ættu ekki að leggja dóm á þessi
mál fyr en þeir hafa kynst þeim.
Hælið hefir ekki sérstaka
klefa fyrir alla fangana og
verða sumir að búa í margbýlis-
stofum. Þess vegna hefir ekki
þótt rétt að loka stöku fanga
inni, nema eins og stundum
hefir komið fyrir, að þeir gefi
tilefni til með hegðun sinni. En
hælið er mannhelt fullkomlega,
ef járngrindurnar fyrir glugg-
unum eru heilar. Sérhverjum
ir þá ömurlegu æfi, sem húsnæð-
islausir og allslausir aumingjar
eiga á næturskýli ber vott um
það, hve nákvæm kynni Gorki
hefir haft af lífi, — ef svo mætti
að orði komast — lífsspeki flæk-
inganna. En jafnvel inn í þiessia
mygluðu og óvistlegu kjallara-
stofu brýzt vonargeisli, þegar
einn flækingurinn Luke, lýsir yf-
ir trú sinni á það sanna og góða
í mönnunum.
Það var þetta átakanlega lieik-
rit, sem gerði Gorki að heims-
frægu skáldi. Síðan hefir hann
skrifáð bæði skáldsögur og leik-
rit um Rússland fyrir og eftir
verkalýðs- og bænda-byltinguna,
þar á meðal skáldsöguna „Móð-
irin,“ sem lýsir á hugðnæman
hátt hinni vaknandi stéttarvitund
verkalýðsins á Rússlandi í byrjun
þessarar aldar og hiefir verið sýnd
á kvikmynd úti um allan heim
einnig hér á landi. En bækurnar,
sem hann hefir hlotið langmesta
frægð fyrir, eru smásögurnar og
æfisaga hans sjálfs, sem hér hefir
verið gefinn ofurlítill útdráttur
úr. Það eru þessar bækur, sem
hafa gert hann að þjóðskáldi
Rússa bæði fyrir og eftir bylting-
una. Því að í þeim lýsir hann
allri rússnesku þjóðinni, og það
á svo raunsæjan og um leið list-
rænan hátt, að ekkert annað, sem
hann hefir skrifað, jafnast á við
það. Gorki hefir skrifað þessar
endurminningar og frásagnir um
bernsku- og æsku-árin með hjarta
blóði sínu. Það er ekki hægt að
hugsa sér fegurra minnismerki en
þær um flækinginn, sem varð
heimsfrægt skáld. xxy.
klefa er einnig aflokað með
smekklás og hefir hver fangi
því vald á því að láta ekki aðra
fanga ganga um klefa sinn. Auk
þess hefir gæslumaður hússins,
sem er brytinn, smekkláslykla
að öllum klefunum svo og for-
stöðumaðurinn. Einn og stund-
um tveir menn frjálsir hafa
sofið á hælinu á næturnar og
þess er gætt á hverju kvöldi að
fangar gangi til hvílu. Hér eftir
verður vökumaður á næturnar
aðallega til þess að gæta um-
ferðar við hælið,( vegna þess að
oft kemur fyrir að*ókunnugt
fólk er að sveima umhverfis
hælið á næturnar og gera ónæði.
Með þessu fyrirkomulagi er
föngunum sýnt nokkurt traust
innan þeirra takmarka, að þeir
eiga ekki að geta komist út úr
húsinu fremur en þótt þeir væru
lokaðir í klefum. Það hefir einn-
ig þótt ólíklegt að fangar tækju
upp á því að strjúka frá Litla-
Hrauni, þar eð slíkur flótti
mundi næsta árangurslítill eins
og nú hefir orðið ljóst. Sumir
merkismenn, sem hafa skoðað
hælið hafa látið í ljós það álit
sitt, að þeir teldu járngrindurn-
ar fyrir gluggunum með öllu ó-
þarfar. Er slíkt auðvitað af ó-
kunnugleika talað;
Ef til vill virðist sumum
mönnum nauðsynlegt að herða
svo á fjötrum fangelsisins að
trygt verði að fangar geti ekki
strokið undir neinurn kringum-
stæðum. Við það er nú fyrst og
fremst að athuga, að það yrði
mjög dýrt, og í öðru lagi mundi,
eins og þegar er sagt, mjög mik-
il harðneskja við fangana gera
þá óviðráðanlegri og gæti þá svo
farið að strok yrðu tíðari en nú.
Dómar manna og skoðanir
um refsingar hér á landi eru
harla sundurleitar og á reiki.
Oft hafa menn sagt við mig,
þegar þeir hafa verið að gefa
ráð eftir sínu viti um þessa
hluti: — Það á að pína dónana
(f-angana) , það þarf að kúga
þrælana, það þarf að reka þessa
ræfla áfram með harðneskju.
Aðrir hafa sagt: Það þarf að
fara sem bezt með þá. — Það
þarf að ala sérstaka önn fyrir
þessum vesalingum. Sumir hafa
gengið svo langt að segja: Það
á alls ekki að refsa mönnum og
svifta þá frelsi, það er þýðing-
arlaust. Og það hefir stundum
vottað fyrir hreinu glæpa-
mannadekri hér, og sagt er mér
að all-stór hópur unglinga í
Reykjavík hafi verið á góðum
vegi með að líta á strokumenn-
ina sem einhverjar hetjur.
Þetta sýnir, að hér ríkir vand-
ræðaástand í þessum efnum,
heimskulegar öfgar til beggja
hliða, sem er full sönnurfþess,
að réttarmeðvitund fólks er sljó
og fávís. Er það ekki með öllu
ástæðulaust, þar eð við búum
við gömul og úrelt hegningar-
lög, sem erfitt er fyrir dómara
að fara eftir, ef samræma á
við viturlegar og sanngjarnar
kröfur nútímans. Er þetta
ástand að verða æ háskalegra
með hverju árinu.
Sundhöllin.
Á bæjarráðsfundi, sem hald-
inn var s.l. föstudagskvöld, voru
lögð fram tilboð, sem borist
höfðu um að fullgera sundhöll-
ina, sem lengi hefir staðið sem
talandi tákn um framkvæmda-
leysi og slóðaskap íhaldsmeiri-
hlutans í bæjarstjórn. Engin
ákvörðun var tekin á bæjarráðs-
fundi um hvaða tilboði skyldi
tekið, en það verður að líkind-
um gert á næsta bæjarráðs-
fundi.
Næturlæknir; er í nótt Jón Nor-
land, Skólavörðustíg 6 B, sími
4348.
Næturvörður er í [nött í Reykja-
víkur og Iðunnar-Apóteki.
MESSUR:
11,00 Messa í dómlrirkjunni, síra
Bjarni Jónsson.
2,00 Messa í frikirkjunni, síra
Arni Sigurðsson.
OTVARPIÐ:
10,40 Veðurfregnir.
14,00 Messa í fríkirkjunni (síra
Árni Sigurðsson).
15,00 Tónleikar (frá Hótel ísland)
18,45 Barnatími: Brunnklukkan
(Aðalsteinn Sigmundsson
kennari).
19.10 Veðurfregnir.
19,20 Tónleikar: Dohnany: Suite,
Op. 19 (hljómsveit; pllötur).
20,00 Fréttir.
20,30 Leikrit: „Hveitibrauðsdag-
ar,“ þýtt (Haraldur Björns-
sori, Soffía Guðlaugsdóttir).
21,00 Tónleikar: Listrænir danzar
(plötur).
Danzlög tid kl. 24.
Á MORGUN:
Alþýðublaðið kemur ekki út.
Næturlæknir er í nótt Guðm.
Karl Pétursson, Landsspítalanum,
sími 1774.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
og Iðunnar-Apóteki.
ÚTVARPIÐ:
10,00 Veðurfregnir.
12.10 Hádegisútvarp.
15,00 Veðurfregnir.
19.10 Veðurfregnir.
19,20 Tónleikar: Kvartett-söngvar
(Comedian Harmonists o. fl.
plötur.)
20,00 Fréttir.
20,30 Erindi: Sól og sumar. (Dr-
Gunnl. Claessen).
21,00 Tónleikar: a) Alþýðulög —
(Útvarpshljíómsveitin); b)
Einsöngur (Elísabet Einars-
idóttir); c) Miozart: Strengja
kvartett í jB-dúr (plötur).
En í samræmi við það er
vaxandi framleiðsla höfuðborg-
arinnar á glæpamönnum, og er
það orðið ábyggjuefni hugs-
andi mönnum. En orsakir þess
eru margar, og er það mál út
af fyrir sig ærið nóg efni í
langa ritgerð.
Af því að Litla-Hruun er að
mörgu leyti fyrirmyndar fang-
elsi, þótt í smáum stril sé, þá
virðist næst að halda, að það
sé óþægindakend við röskun
þess ófremdarástands, sem var
í þessum efnum áður en Litla-
Hraun var sett á stofn, sem
veldur því að sumir menn hafa
horn í síðu hælisins, — því að
kyrstöðumönnunum eí' illa við
alt, sem til framfara horfir.
28. júní 1935.
Sig. Heiðdal.
Briemsfjósið.
Á síðasta bæjarráðsfundi var
ákveðið að selja Lárusi Bjöms-
syni kýr og áhöld úr Brieme-
fjósi, sem bærinn hefir keypt
nýlega) og var söluverðið á-
kveðið 20 þúsundir króna. Jafn-
framt var ákveðið að leigja
Lárusi Briemsfjós og Vatns-
mýrarblett V og VIII til næstu
fardaga fyrir um 6 þúsundir kr.
Leiðrétting.
I upphafi neðanmálBgreinar-
innar um Maxim Gorkö í blað-
inu í gær hafði fallið niður
fyrsta línan: Fáar eru þær bæk-
ur, sem eru eins áhrifamiklar
o. s. frv.
Vorskóla
Isaks Jónssonar var slitið í
gær.
Tvistar, ljósir og dökkir í
Morgunkjóla og Svuntur frá
0,75 mtr. Sængurveratvistur á
5,50 í verið. Verzl. „Dyngja“.
NÝ.JA BIÖ
Litla Dorrit.
Þýzk tal- og tónmynd sam-
kvæmt heimsfrægri skáld-
sögu með sama nafni, eft-
ir enska stórskáldið
Kápufóður, silki frá 2,15 mtr.
Svört káputau frá 9,50 mtr.
Verzl. „Dyngja“.
\------------------------------
Strigaefni í kjóla, einlit og
munstruð frá 2,50 mtr., nýkom-
in. Sumarkjólaefni í úrvali frá
1,65 mtr. Verzl. „Dyngja“.
v------------------------------
Hosur, Hálfsokkar og Sport-
sokkar á börn.og dömur. Silki-
sokkar og bómullarsokkar frá
0,85 parið. Verzl. „Dyngja“.
V------------------------------
Silkinærföt sérlega falleg á
8,75 settið. Silkibolir frá 2,50.
Bómullarbolir frá 1,75. Silki-
náttföt frá 8,50. Silkináttkjól-
ar frá 8,75. Verzl. „Dyngja“.
' -----------------------------
Alpahúfur í flestum litum.
Nælur í húfur. Verzl. „Dyngja“.
Charles Dickens.
Aðalhlutverkin leika:
Anny Ondra, Gustav
Waldan og Matthias
Wiemann.
Sýnd í kvöld kl. 5, 7 og 9.
Barnasýnig kl. 5.
Lækkað verð kl. 7.
______________________
Hvítir hanskar frá 2,50 parið.
Verzl. „Dyngja".
H----------------------------
Upphlutsskyrtu- og svuntu-
efni í stóru úrvali frá 8,75 í
settið. Slifsi og slifsisborðar,
hvergi ódýrara. Verzl. „Dyngja“
I. O. G. T.
Fundur í stúkunni Framtíðin
nr. 173 fellur niður vegna for-
falla.
Hurðarpumpur,
Skrár, Húnar lamir
Smekklásar.
Lágt nerr.
Mikið úrval.
Á Einamsn & fonfe.
Frú Bocken-Lasson:
Fyrirlestur í Iðnó þriðjudaginn 2. júní kl. 8(4:
Austurlönd i brosi og tárum
með skuggamyndum og indverskri músik.
Aðgöngumiðar kosta 1 kr. og fást hjá Eymundsen,
Flljóðfærahúsinu og Atlabúð.
Opinber fundur
um dómana út af 7. júlí og 9. nóv. verður haldinn í
K. R.-húsinu þriðjudaginn 2. júlí kl. 8 e. h.
Meðal ræðumanna: Þórbergur Þórðarson, Kristinn
Andrésson, Einar Olgeirsson og fleiri.
Skorað á alla alþýðu og frjálslynda menn að mæta.
Menn eru beðnir að greiða 25 aura við innganginn
upp í kostnað. —
Halldór Kiljan Laxness. Aðalbjörg Sigurðardóttir.
Pálmi Hannesson. Sigurður Torlacius.
Þórbergur Þórðarson. Gunnar M. Magnúss.
Kristinn Andrésson.
Kalksaltpétir.
Víðáttan og yfirferðin er
ekki aðalatriðið.
Það er meira um vert að
fá fulla eftirtekju af því
sem ræktað er.
Notið
KALKSALTPÉTUR
milli slátta, og tryggið
ykkur góðan seinni slátt.