Bjarki - 22.01.1898, Blaðsíða 2
10
Hann er beinn afkomandi hinna
undralyfjanna, lofar að lækna flest-
alla sjúkdóma eins og þau, gera
menn duglegri til getnaðar, leingja
lífið og fleira þess háttar. Honum
fylgir grúi af lækna vottorðum og
þakkarávörpum og vottorðum frá
mönnum og kor.um sem hann hef-
ur gefið heilsuna aftur, og alt að
tarna, öldúngis eins og öll hin
höfðu. A öllu þessu gat hver
skynsamur maður, sem nokkuð
þekti til þessa lvfjaprángs, sjeð í
hcndi sinni, að hjer var komin
sama gamla samviskuleysis svika-
gildran til þess að plokka iienínga
út úr fólki í vasa samsullarans.
En að hinu leytinu skal það ját-
að, að alþýðu var á eingan hátt
svo auðgefið að sjá við Bramanum.
Jeg man nú ekki, og nenni heldur
ekki að leita að því, hvort land-
læknirinn eða nokkur annar varaði
jijóðina við þessari svika blöndu
þegar hún streymdi inn yfir landið
miili 1870 og 80, en þó svo hefði
verið, þá er slíkt oft lítið lesið og
því enn þá minni gaumur gefinn.
Glösin fóru um landið í hundr-
uðum þúsunda með fylgibækling-
um, Iækna vottorðum og lofi. Al-
þýða sjálf gat ekki rannsakað hvað
í glösunum var og samsullarinn
Mansfeld-Búllner þekti tíma sinn
og var nógu slúnginn til að gefa
öllu vísindalegan blæ og blanda
svo lýgi og sannleika saman að
það var alþýðu eingu hægra að
greina þá blöndu heldur en hina
sem í glösunum var. Hann setur
á sig hátíðlegan spekíngssvip og
leggur vandlega út fyrir alþýðu
hvernig slæm meltíng sje undirrót
allra sjúkdóma, og geta þar lækn-
ar einir greint hvað satt er í því
og hvað logið. Svo lofar hann að
halda meltíngunni í reglu og koma
þannig í veg fyrir vcikindin og
bæta þau ef þau eru kornin áður.
F-rá hinu segir hann auð-
vitað ekki, að hann ætli að
gera öll þessi kraftaverk
með alkunnu laxermeðali,
alveg einu saman. Hefði hann
sagt það, þá er þó líklegt að ein-
hver hefði orðið svo skynsamur að
fara til einhvers læknisins eða á
eitthvert apótekið og kaupa þar
nægju sína fyrir einn fimtugasta
part af því sem Brama glasið
kostar.
I5að mun þó einkum hafa verið
hið stórkostlega lof og ljómandi
fógru vottorð sem sannfærðu al-
menníng um ágæti Bramans. Þar
cr gefið í skyn að undir þeim
standi heimsfrægir læknar nr ð
c.rðum og titlum í laui gum halaróír m
og forsetar í heilbrigðisráðum og þar
fram eftir götunum.
Það var rcyndar dálítið skrítið
að herra Mansfeld skyldi ekki
leita til landlæknisins á Islandi eða
neins annars læknis hjer sem ís-
lendíngar þektu til þess að fá
vottorð um lyf sitt. Það var
reyndar af gildum ástæðum, því
hvort sem manntetrið hefur reynt
það eða ekki, þá má óhætt full-
yrða hitt, að einginn læknir á öllu
landinu hefði verið svo viðbjóðs-
lega samviskulaus að þyggja mútur
til að svíkja þjóð sína á slíku.
En alþýða vissi ekki þetta held-
ur og gat ekki vitað það, og hún
treysti á útlendu læknana, heims-
frægu með laungu titlunum, sem
voru doktórar og margt fleira
merkilegt.
Það voru einkum tveir menn
sem voru stoðir og stytta undir
allri útbreiðslu Brama-lífs-elixírsins
bæði hjer á landi og annarstaðar
og höfðu með hinum heimsfrægu
nöfnum sínum geingið í ábyrgð
fyrir ágæti Bramans og ráðið öll-
um til að reyna hann. Þessir
menn voru:
Dr. Cohler i Gotha
mcdicinalráð og fjórðúngslæknir. Og
Dr, med. Alexander Groyen
keisaralegur, konúnglegur forustu-
floks og yfirlæknir m. m. í Berlín.
A Islandi var það sjerstaklega
hinn frægi Alex. Groyen sem tók
á sig alla ábyrgðina á Bramalífs-
eh'xir. Hann hefur staðið á öllum
bæklíngunum og stóru skjölunum
gulu og rauðu, sem Brama fylgja,
og stendur á þeim og er aðal
stytta þeirra enn í dag. Því fram-
an á gulskræpóttu bæklíngunum
stendur enn þá:
Brama-lífs-elixír.
vísindalega dæmt af
d r. m e d. A I e x. G r o y e n.
og svo stendur á titilblaðinu:
Læknisfræðislega dæmd-
ur af dr. med. Alexander
Groyen, keisaral. konúngleg-
um yfirlækni í Berlín.
Svo kemur hinn nafnfrægi for-
máli og hljóðar svo:
Formáli:
Fjelagið Mansfeld-Búllner og Lassen
sendi mjer fyrir nokkru síðan Mans-
fcld-Búllners bitterinn Brama-Iífs-elixír,
til nákvæmrar rannsóknar. Jeg hefi
jafnan haft illan grun á öllum þeim
lyfjum, sem mjög er haldið fram; þó
viðhafði jeg lyf þetta við læknistilraun-
ir mínar; og verð jeg að játa að það
hefur í alla staði reynst betur, en jeg
best gat vonast eftir. Jeg yrði að á-
líta það ómannúðlegt af mjer, ef jeg
ekki, þar sem um heilbrigði als mann-
kynsins er að tefla, gerði mitt til að
mæla fram með elixíri þessu, sem er
svo einstakt í sinni röð.
Einginn bitter nje blanda getur á
jafnskömmum tíma og Mansfeld-Búll-
ners Brama-lífs-elixír orðið eins heíms-
frægur og hann er orðinn nú. Sæll er
sá maður, sem í tíma grípur tíl Jiessa
læknismeðals.
Hinir tíðu sjúkdómar í meltíngar líf-
færunum, sem auk annara þjánínga
hafa stúngið sjer svo mjög niður manna
á meðal á síðari tímum, hafa oft gert
mjer sem lækni erfitt fyrir og jafn-
framt veitt mjer tækifæri til að við-
hafa ýms gömul og ný lyf, og ef satt
skal segja þá verð jeg að játa, að
Brama-lífs-elixír áðurnefndra fjelaga er
dýrmæt viðbót í fjesjóði læknisfræð-
innar.
Jeg skal nú Ieitast við að lýsa svo,
sem jeg sannast má, læknisafli þessa
elixírs og hversu ]>að skal nota í ýms-
um sjúkdómum. Eað er einlæg ósk
mín að mannkynið, er Jiað les-bæklíng
þennan, læri að nota Brama-lífs-elixír-
ið í rjettan tíma. Fyrirhöfn mín væri
fuillaur.uð, ef línur þessar gætu aftrað
mönnum frá að viðhafa önnur heilsu-
spillandi lyf.
Dr. med. A. Groyen,
Keisaral. konúngl. forystuflokks yfir-
Iæknir m. m.
Svo má heita að allur bæklíng-
urinn sje eftir þennan Alexander
Groyen, lýsíngin á magaveikinni og
öllum sjúkdómunum sem Braminn
á að lækna og alt það geingdar-
lausa lof um bitterinn sem þar má
lesa, og þá er ekki annað eftir í
bæklíngnum en vottorðin.
A gulu skjölunum stendur Alex.
Groyen líka undir lángri lofrollu
um Brama sem ágætt mcðal við
mörgum sjúkdómum, sjóveiki, tauga-
veiklun, bólusótt og mörgu fieira.
Þessi Alexander Groyen er því
og hefur verið aðalhyrníngarsteinn-
inn undir Brama lífs elixírnum og
undir hann og vottorð hans hafa
þúsundir manna lagt líf sitt og
heilsu, og hvernig líst nú mönnum
á þegar
Það e r áreiðanlega
sannað að þessi Alexand-
e r Gr oyen er ekki og hef-
ur aldrei verið til, og dr.
Cohler í Gotha ekki held-
u r.
Allir menn sem nokkuð þcktu
til læknínga, sáu strax að einginn
læknir í heiminum með viti gat
mælt með Brama við öllum þess-
um sjúkdómum, því meðalið var
beinlínis skaðlegt í fjölda af þeim
og gat og hefur jafnvel orðið að
bana við sjcrstök tækifæri.
Heilbrigðisráðið í Ivarlsruhe á
Þýskalandi tók sjer því fyrir hend-
ur að spyrjast fyrir um þessa herra
og árángurinn varð að 1 ö g r e g 1 u-
stjórnirnar í Berlín og
Gotha, þar sem þeir áttu
aðvera, gerðu kunnugtað
þeirværu ekki og hefðu
aldrei vcrið t i 1.
Skýrsla lögreglustjóranna cr
prentuð í »Pharmaceutiche Zeit-
ung« og þaðan aftur í Ny Pharma-
ceutisk Tidcnde 1885, 350. dálki,
og getur hver sjeð þar scm vill,
að hjer cr rjctt sagt frá.
Jeg vona nú að Icsendur mínir
sjái hvcrnig þessi Mansfeld-B. og
hans nótar svíkja og ljúga sam-
sulli sínu upp á almenníng, og það
er leitt að landlæknirinn, lyfsal-
arnir og læknarnir skuli ekki gera
sjer meira far um að draga skýl-
una ofan af þessum kynjalyfjum,
en gert hefur verið híngað til og
syna fólki svívirðínguna. Það gæti
orðið mörgum manni að gagni, og
á hinn bóginn ætti það að vera
Ijett 4 metunum, þó Austri eða
önnur blöð sem draga fram lífið
eingaungu á leyndarlyfja auglýs-
fngunum, mæli á rnóti þvf
að alþýða sje aðvöruð, og vilji
lofa þessum þrælum að svfkja hana
eftir vild. Allir skynsamir og
rjettsýnir menn munu þakka fyrir
að þeim sje bent á svikin og það
mun að lokum bjarga þjóðinni úr
klóm leyndarlyfjanna.
Það cr sorglegt að vita, að
heilsa alþýðu skuli ekki vera agn-
ar ögn betri eftir að hafa gefið
svo stóran skerf til, að þessi
svikasullari Mansfeld-B. er nú
orðinn milljónaeigandi í Kaup-
mannahöfn og hefur haft upp und-
ir hundrað þúsundir króna tekjur
á ári. Þó ekki væri nema fjár-
drátturinn einn, þá er hann voða-
legur, því með glasi og öllu sam-
an kostaði Braminn aðcins 16
eða 17 aura; en var svo seldur fyrir
I kr. og 50 aura á Islandi.
Braminn mun nú mjög farinn að
þverra á Islandi, en ef nokkrir
skyldu vera þeir, sem hafa vanið
sig svo á hann hjer á landi að
þeir þykjast ekki geta verið án
hans þá ættu þeir að biðja lyfsala
að setja hann saman. Þeir geta
látið Bramann á 40 au., þó þeir
hefðu á honum sama ágóða og
þeim er leyft að hafa á öðrum
lyfjum. Efnin í Brama eru þessi :
Aloe, myrrha, larixsveppur, safran,
theriac, gentianrót, rhabarberrót,
zedoarierót og kúrkúmarót út
drcgið með spírítus og bætt svo
við ofurlitlu af vanilletinktur og
irisrót Hina rjettu og ná-
kvæmu samsetníngu þekkir hver
lyfsali. E11 rjettast og skynsam-
legast er að eiga ekkert við þessi
leyndarlyf nema eftir samráði við
lækni, því þó ekki sje í þeim
annað en aloe þá geta þau vel
orðið skaðvæn fyrir heilsuna og
jafnvcl hættuieg í vissum sjúk-
dómum.
Margt mætti fleira um Bramann
tala, en rúmið cr lítið, og mikið
eftir enn þá um Kína, Sybillu og
Voltakross, og verður því að
nema hjer stað um stund.
Kina-lifs-eííxirinn
Bruggari Kína-lífs-elixírsips, herra